Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1983, Blaðsíða 2

Veðráttan - 02.12.1983, Blaðsíða 2
Arsyfirlit VEÐRÁTTAN 1983 Tíðarf arsyf irlit. Framhald af bls. 97. Sumarið (júní—september) var mjög óhagstætt sunnanlands og vestan nema september. Norðanlands og austan var sæmiiega hagstæð tið. Hiti var 1.4° undir meðallagi. Frá 1963 hefur aðeins sumarið 1979 orðið kaldara, en þá var vik hitans frá meðallagi —1.9°. Heyskap lauk ekki fyrr en i september á Suður- og Vesturlandi. Hey urðu yfirleitt all- mikil en kartöfluuppskera mjög léleg. Kaldast var á Hveravöllum 4.0° og í Möðrudal 6.0°. Á 12 stöðvum var sumarhitinn 6.1—7.0°. Hlýjast var á Hallormsstað og Kirkjubæjarklaustri 8.8°. Úrkoma var meiri en í meðalári nema á Austfjörðum, 2 stöðvum í Skaftafellssýslum og 2 stöðvum á Vestfjörðum. Á Suðurlandsundirlendi var allt að tvöföld meðalúrkoma. Mest var úrkoman 1000 mm á Skógum og 899 mm á Reykjum í ölfusi. Minnst var úrkoman 127 mm á Akureyri og 149 mm á Dratthalastöðum. Sólskinsstundir urðu flestar i Haga- nesi 604. Á Akureyri, Höskuldarnesi, Hallormsstað, Hólum og Hveravöllum var sólskinið 88—98% af meðaltali sumranna 1971—80 og 26 til 34% af þeim tíma sem sól er á lofti. 1 Reykjavík, á Reykhólum og Sámsstöðum var sólskinið 67—71% af meðaltali 1971—80 og 22% af þeim tíma sem sól er á lofti. Haustið (oktöber—nóvember) var fremur /hagstætt. Snjór var lítill i byggð og færð góð. Hiti var 1.4° undir meðallagi. Hlýjast var i Vík og Vatnsskarðshólum, hiti 3.6°—3.8°, og á 3 stöðvum var hitinn 3.1—3.5°. Kaldast var —3.2° á Hveravöllum og —2.7° I Möðrudal, á 8 öðrum stöðvum var hitinn undir frostmarki. Úrkoma var mun meiri en í meðalári á norðaustanverðu landinu nema í innstu byggðum. Sums staðar mældist meira en tvöföld meðalúrkoma. Sunnanlands og vestan var hún víða undir meðallagi og hvergi meira en Vi umfram meðallag. Úrkoman var mest 789 mm á Kvískerjum og næstmest 656 mm á Nes- kaupstað, en minnst á Blönduósi 76 mm og 78 mm á Möðrudai. (98)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.