Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1983, Blaðsíða 31

Veðráttan - 02.12.1983, Blaðsíða 31
1983 VEÐRÁTTAN Ársyfirlit Veðurstöðvar. Atliugunarmenn: Karl V. E. Norðdahl veðurathugunarmaður að Hólmi við Reykjavík andaðist 5. október. Féllu veðurfarsathuganir þar niður frá 1. október, en kona hans, Salbjörg Norðdahl annaðist þar úrkomumælingar til áramóta. Er mikil eftirsjá að veður- stöðinni að Hólmi, en þar hafði Karl gert veðurathuganir frá 1961 af hinni mestu sam- viskusemi. Guðmundur H. Gunnarsson tók við veðurathugunum á Möðruvöllum af Bjarna Guð- leifssyni. Heiðar Albertsson tók við athugunum af Indriða Guðjónssyni á Skeiðsfossi og Halldór Gunnarsson tók við athugunum af Ámunda Sigurðssyni í Þverholtum. Nýjar stöSvar og breytingar á eldri stöSvum: Ný veðurfarsstöð var sett upp að Hólum, Þingeyrarhreppi, V.-lsafjarðarsýslu og hófust athuganir þar 15. júlí Athugunarmaður er Guðbrandur Stefánsson bóndi. Ný stöð var sett upp á Patreksfirði í desember. Athugunarmaður er Þórarinn Kristjánsson. Þann 30. september hættu veðurathuganir á Þingvöllum en i stað þess var hafin sending veður- skeyta frá Heiðarbæ II í Þingvallasveit. Þar voru áður gerðar úrkomumælingar. Athug- unarmaður er sem fyrr Sveinbjörn Einarsson, bóndi. 1 byrjun nóvember var bætt við veðurathugun og veðurskeytasendingu kl. 3 á Hrauni á Skaga. Vindathuganir: Auk vindathugana á veðurstöðvum hafa vindmælingar verið gerðar á Skrauthólum á Kjalarnesi frá 4. mars 1975 og í Svartárkoti í Bárðardal frá 17. október 1982. Sigriður Arnfinnsdóttir athugar á Skrauthólum, en Elín Baldvinsdóttir í Svartár- koti. Ef tirlitsf erðir. Starfsmenn Veðurstofunnar heimsóttu eftirtaldar veðurathugunarstöðvar: Akureyri Hóla i Hjaltadal Kirkjubæjarklaustur Rjúpnahæð (lögreglustöð) Hóla í Hornafirði Kollaleiru Sandhauga Bergstaði Hólma Korpu Sand Bergþórshvol Hólm Kvígindisdal Sámsstaði Blönduós Hornbjargsvita Lambavatn Skóga Brjánslæk Hraun Lerkihlið Skrauthóla Fagurhólsmýri Húsavík Mánarbakka Staðarhól Galtarvita Hvallátur Mjólkárvirkjun Suðureyri Garð II Hveravelli Mýri Svartárkot Gjögur Hæl Möðruvelli Teigarhom Grímsstaði Höfn Nautabú Vík Grindavík Höskuldarnes Rauðamýri Þingvelli Haganes Irafoss Raufarhöfn Þóroddsstaði Heiðarbæ Jaðar Reykhóla Þórustaði Heiðmörk Kambanes Reykjahlíð Æðey. Hóla í Dýrafirði Keflavikurflugvöll Reykjanesvita Ýmsar athuganir. Athuganir á skipum: Á eftirtöldum skipum voru gerðar athuganir og skeyti send: Akranesi, Álafossi, Arnarfelli, Árna Friðrikssyni, Bakkafossi, Bjarna Benediktssyni, Bjarna Sæmundssyni, Dettifossi, Dísarfelli, Fjallfossi, Engey, Eldvík, Eyrarfossi, Fífli, Freyfaxa, Goðafossi, Göðanum, Grundarfossi, Guðsteini, Harðbaki, Helgafelli, Isbergi, Hofsjökli, Helgey, Hvalvík, Ingólfi Amarsyni, Irafossi, April, Jóni Finnssyni, Júní, Jökul- felli, Keflavík, Kaldbaki, Lagarfossi, Langá, Laxá, Ljósafossi, Mar, Mánafossi, Mælifelli, Óðni, Rangá, Sögu, Selá, Selnesi, Sigurði, Skaftafelli, Skaftá, Skeiðsfossi, Sléttbaki, Snorra Sturlusyni, Stuðlafossi, Suðurlandi, Svani, Tý, Urriðafossi, Vöku, Vesturlandi, Viðey, Vigra, Ægi. Háloftaathuganir voru gerðar tvisvar á sólarhring á Keflavíkurflugvelli. Heildarfjöldi athugana var 720, athuganir á vindi voru 714. (127)

x

Veðráttan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.