Veðráttan - 02.12.1983, Blaðsíða 33
1983
VEÐRÁTTAN
Ársyfirlit
Frá strandarstöðvum Póst- og símamálastofnunar var útvarpað almennu yfirliti,
stormaðvörunum og spám fyrir þau spásvæði sem næst eru hverri stöð, sem hér segir:
Að næturlagi var útvarpað frá Isafirði, Neskaupstað og Vestmannaeyjun\ kl. 0133 og
0503, en frá Siglufirði og Hornafirði þrem mínútum síðar í báðum tilvikum. Að degi
til var útvarpað frá Neskaupstað kl. 1045, 1645 (aðeins mánuðina jan,—mars) og 2245,
og hverju sinni þrem mínútum síðar frá Siglufirði og Hornafirði. Útvarpað var á aðal-
vinnutíðnum stöðvanna að undangengnu tilkynningakalli á 2182 kílóriðum.
Auk þessara veðurfrétta var veðurspám fyrir miðin útvarpað á íslensku og ensku
i loftskeytalykli kl. 0530, 1130, 1730 og 2330.
Greind veðurkort voru send til skipa kl. 1000 og 2300, en seinni útsendingartíminn var
færður til kl. 2200 frá 4. maí. Sent var á 6482 kílóriðum og með 120 snúninga hraða
á mínútu.
Veðurfréttir birtust í sjónvarpi alla daga sem sjónvarpað var.
Útgáfustarfsemi og fleira.
Veöráttan: Prentuð voru mánaðaryfirlit fyrir alla mánuði ársins 1982 og ársyfirlit
1981. Mánaðaryfirlit fyrir fjórar stöðvar voru unnin um hver mánaðamót og send
áskrifendum.
Jaröskjálftaskýrslur: Gefin voru út skjálftabréf í samvinnu við Háskóla íslands.
Preliminary Siesmogram Readings var gefið út vikulega.
Gefin var út ritgerðin Breytileiki og einkenni nokkurra veðurþátta eftir veðurlagi á
íslandi eftir Markús Á. Einarsson.
Flosi Hrafn Sigurðsson og Hreinn Hjartarson tóku saman þrjár skýrslur sem Veður-
stofan gaf út. Hin fyrsta þeirra Hitahvörf og stöðugleiki lofts yfir Keflavíkurflugvelli
var unnin fyrir Staðarvalsnefnd, en hinar tvær, Vindmælingar á Stjórnarsandi og Vind-
mælingar að Gröf í Miðfirði fyrir Flugmálastjórn.
Veðurfræðingarnir Hreinn Hjartarson og Magnús Jónsson fluttu framsöguerindi á
ráðstefnu sem haldin var í nóvember á vegum Orkusparnaðarnefndar iðnaðarráðuneytis-
ins og verkfræði og raunvísindadeildar Háskóla Islands. Erindi Hreins nefndist: Sól-
geislun á Islandi, en erindi Magnúsar: Vindur og vindorka á Islandi. Framsöguerindin
voru gefin út í sérriti sem nefndist: Nýting vinds, sjávarfalia og lítilla vatnsfalla til
orkuframleiðslu.
Greinar prentaöar erlendis.
„Strain signals in Iceland" eftir Ragnar Stefánsson, A. T. Linde, og I. S. Sacks, birt í
Carnegie Institution of Washington Year Book 82 (1983), bls. 512-514.
„Seismic image of the hypothesized Icelandic hot spot“ eftir Kristján Tryggvason,
Eystein Husebye og Ragnar Stefánsson, birt í Tectonophysics, 100 (1983), bls. 97-118.
Flosi Hrafn Sigurðsson tók saman greinargerðina Drifting COST-43 Buoy Network in
the Atlantic til undirbúnings nefndarfundi um rekdufl til veðurathugana á N.-Atlantshafi.
Var hún gefin út sem COST-43 Technical Document No. 96.
Alþjóðasamstarf.
Fram var haldið þátttöku í COST-43, samstarfi Evrópuríkja á sviði tækni og vísinda,
samstarfsverkefni (nr. 43) sem lýtur að veðurduflum og notkun þeirra við veður og
haffræðilegar athuganir. Var samningur um framhald þessa samstarfs undirritaður af
íslands hálfu í desember.
Samstarf var sem fyrr milli Veðurstofu Islands og Christian Michelsens Institutt I
Noregi og Meteorological Office í Englandi um rekstur veðurdufls ODAS-451 tæpar
200 sjómílur SSA af Homafirði.
Norskt rekdufl til veðurathugana nr. 70 var sjósett frá íslensku skipi þ. 8. mars á
62°50'N og 28°13'V og annað nr. 131 þ. 7. desember á 62°20'N og 29°07'V.
Franskt rekdufl Marisonde B nr. 1471, sem sett hafði verið í sjó þ. 14. ágúst 1982 á
60,0°N og 35,0°V var tekið upp af íslensku varðskipi þ. 12. júlí 1983 á 62°33'N og 17°52'V
og hafði það þá verið á reki og sent athuganir sem næst 11 mánuði. Duflið var sent
til frönsku Veðurstofunnar.
Unnið var á vegum COST-43 að tillögugerð um samstarf nokkurra aðildarþjóða um
sjósetningu 30 rekdufla á þriggja ára tímabili á svæðinu 55°—63°N og 25°—45°V, suð-
vestur af íslandi.
Hlynur Sigtryggsson sótti fund um fjarskipti í London 21,—23. mars, fund veðurstofu-
stjóra í Vestur-Evrópu í Helsinki 6.-8. apríl, síðari hluta níunda allsherjarþings Alþjóða-
veðurfræðistofnunarinnar í Genf 16.—27. maí og áttunda fund stjórnarnefndar NAOS í
Genf 28. júní — 1. júlí.
Páll Bergþórsson sótti fund varðandi norræna samvinnu um tölvuveðurspár í Kaup-
mannahöfn 8.-9. ágúst.
(129)