Veðráttan - 02.12.1983, Blaðsíða 34
Árgyfirlit
VEÐRÁTTAN
1983
Ragnar Stefánsson sótti fund samvinnunefndar Evrópuþjóða um jarðskjálftarann-
sóknir í Strassbourg 19.—21. desember.
Þór Jakobsson var við rannsóknastörf við kanadísku Veðurstofuna í Toronto 4. ágúst
til 1. september. Hann sótti einnig fundi er fjölluðu um hafisrannsóknir og samvinnu
um þær í Bremerhaven 14.—21. nóvember.
Flosi Hrafn Sigurðsson var fulltrúi Islands á fundi Commission for Basic Systems
umfangsmestu tækninefndar Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar í Genf 31. jan,—11. febr.
Hann sat fund stjórnar COST-43 í Reading í Englandi 17. júní, fund svæðisnefndar sömu
samtaka 13. júní og var einn af fundarstjórum á fræðsluráðstefnu samtakanna í Reading
14.—16. júní.
Þá sat Flosi fund vinnunefndar á vegum COST-43 í De Bilt i Hollandi 15. september
en þar var fjallað um tillögur um kerfi rekdufla til veðurathugana á Norður-Atlantshafi.
Loks sat Flosi fund stjórnar og tækninefndar COST-43 í Briissel 6.-7. desember.
Námskeið — kynnisferð.
Hafliði H. Jónsson kynnti sér snjóflóðarannsóknir hjá snjóflóðarannsóknastöð
svissneska sambandsríkisins í Davos 7.-26. febrúar.
Þórir Sigurðsson sótti námskeið í tölvustjórnun og forritum hjá IBM í Los Angeles
6.-9. desember.
Viðaukar.
Janúar:
SJcaöar og hrakningar: Þ. 1. biðu tveir menn bana í fjallgöngu á Vifilsfelli. Þ. 3.
gerði ófærð í Reykjavík og nágrenni og 4.-5. voru miklir umferðarörðugleikar um
allt sunnan- og vestanvert landið. Tveir menn slösuðust, þegar verið var að draga bíla
úr sköflum. Einn maður lenti í hrakningum við Þrengslaveg. Fólk átti í erfiðleikum
með að komast til og frá vinnu og mjólkurflutningar fóru úr skorðum. Þ. 6. eyði-
lögðust 2 fjárhús í snjóflóði á Súðavík og 20—30 kindur drápust. Þ. 8. fauk áætlunar-
bifreið út af vegi og valt undir Eyjafjöllum, nokkrir farþegar meiddust. Þ. 9. fór
rafmagn af á Suðurnesjum og víða urðu truflanir á Suðurlandi. Menn lentu í hrakn-
ingum á Breiðavíkurheiði þ. 8.-9. Langferðabíll fauk út af vegi í Kjós þ. 13. og valt.
Þ. 22. féllu tvær snjó- og aurskriður á Patreksfirði. Fjórir létu lífið, þrjú íbúðarhús
eyðilögðust, 11 skemmdust og margar bifreiðar eyðilögðust. Sama dag féll snjóflóð
á tvö fjárhús á Bíldudal, 60 kindur voru i húsunum, snjóflóðið tók einnig 4 staura úr
raflínu. Stórflóð urðu í Borgarfirði þ. 22. Mikið flóð var i Hnifsdalsá, og komst vatn
inn í nokkur hús, þ. á m. félagsheimilið, þar sem talsvert tjón varð. Mikið flóð varð
einnig í ölfusá og öðrum ám suðvestanlands. Vatn flæddi í kjallara húsa á Selfossi.
Snjóflóð olli skemmdum á hitaveituleiðslu við Húsafell.
Hajís: Hinn 7. var hafísjaðarinn r/v 298° 62 sjóm. frá Bjargtöngum, 295° 60 sjóm.
frá Kópanesi, 305° 58 sjóm. frá Barða, 317° 78 sjóm. frá Straumnesi, og 352° 51 sjóm.
frá Kögri, en lá þaðan i NA. Á 66°50'N og norðar var sjór að frjósa á um 8—10 sjóm.
breiðu belti við jaðarinn. Isinn færðist nær og þ. 12. var ís, að þéttleika 1—3/10, 34
sjóm. NA af Horni, 30 sjóm. N af Horni, 15 sjóm. N af Kögri og 32 sjóm. NV af
Straumnesi. Þ. 19. var ísrönd 285° 48 sjóm. frá Deild og lá þaðan í NA átt. Isinn var
næst landi 311° 22 sjóm. frá Kögri og lá þaðan í NA. Innan við ísbrúnina var íshrafl
og stakir iakar á um tveggja mílna breiðu belti.
Jarðskjálftar: Þ. 4. kl. 2130 fannst skjálfti á Siglufirði. Upptökin voru SA af Grimsey
og stærðin 3.6. Þetta var mesti skjálftinn í hrinu, sem hófst þennan dag.
Mars:
Hafís: Hinn 2. var ísjaðar 2 milur frá skipi á 66°52'N og 18°32'V og lá til ANA. Þ. 8.
voru stakir jakar á reki á 66°35'N og 20°13'V og á siglingaleið undan Hornströndum.
Hinn 9. var ísjaðarinn 279 ° 46 sjóm. frá Gelti, og næst landi 342° 42 sjóm. frá Horni.
Einstaka rastir og íshrafl var nær landi, og stakir jakar á siglingaleiðum frá Kögri
að Skaga. Þ. 10. var talsvert íshrafl A af Horni og þ. 11. stakir jakar NA af Dranga-
skörðum. Þ. 16. var meginísinn næst landi 325° 43 sjóm. frá Straumnesi. Þ. 22. var
isbrúnin næst landi 15° 40 sjóm. frá Horni, og jakahröngl á 66°55'N og 21°24'V. Þ. 30.
var íshrafl og dreifðir jakar á siglingaleið frá Kögri að Sauðanesi við Súgandafjörð.
Þ. 31. náði jakahraflið suður á móts við Barða og inn á Isafjarðardjúp, og marga jaka
hafði rekið á fjöru við Galtarvita.
(130)