Veðráttan - 02.12.1990, Qupperneq 36
Ársyfirlit
VEÐRÁTTAN
1990
Ýmsar athuganir
Athuganir á skipum: Veðurskeyti voru send frá eftirtöldum skipum: Akranesi, Arnarfelli,
Árfelli, Árna Friðrikssyni, Bakkafossi,Bjarna Sæmundssyni, Brúarfossi, Dettifossi, Dísar-
felli, Dorado, Dröfn, Esju, Fjallfossi, Grundarfossi, Hauki, Heklu, Helgafelli, Heru Borg,
Hofsjökli, Hvítanesi, Hvassafelli, írafossi, ísbergi, ísnesi, Jarli, Jökulfelli, Lagarfossi, Lax-
fossi, Ljósafossi, Mánafossi, Óðni, Reykjafossi, Saltnesi, Selfossi, Selnesi, Skógafossi,
Stuðlafossi, Svani, Tý, Urriðafossi, Val, Ægi og Öskju.
Háloftaathuganir voru gerðar tvisvar á sólarhring á Keflavíkurflugvelli. Heildarfjöldi at-
hugana var 715, athuganir á vindi voru 710.
Jarðskjálftamœlar voru á eftirtöldum stöðum: Reykjavík, Síðumúla, Hrauni á Skaga,
Hveravöllum, Grímsey, Akureyri, Húsavík, Grímsstöðum á Fjöllum, Gilhaga í Öxarfirði,
Leirhöfn, Eyvindará, Kvískerjum, Kirkjubæjarklaustri, Vík í Mýrdal og Laugarvatni. Jarð-
skjálftamælar á vegum SIL, þ.e. norræns samstarfsverkefnis um jarðskjálftarannsóknir, voru
á eftirtöldum stöðum: Bjarnastöðum í Ölfusi, Sölvholti í Flóa, Heiðarbæ í Þingvallasveit,
Gýgjarhólskoti í Biskupstungum, Ásmúla í Ásahreppi, Saurbæ í Holtum, Haukadal í Rang-
árvallahreppi og Mið- Mörk í V-Eyjafjallahreppi.
Þenslumœlar voru á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Stórólfshvoli, Hellu, Saurbæ í Holt-
um, Búrfellsvirkjun, Gljúfurleit við Þjórsá, Jaðri í Hrunamannahreppi og í Skálholti. Mælar
þessir eru steyptir niður í djúpar borholur og eru tengdir við skrifara á yfirborðinu. Tilgangur-
inn með þeim er að meta hægfara þreytingar á spennuástandi jarðskorpunnar á þessu svæði. í
sömu borholum eru hitamælar með mælinákvæmni 1/1000 C°. Sendibúnaður er á þenslu-
mælastöðvunum og endurvarpsstöð í Bláfjöllum, til að koma mælingum til Reykjavíkur. Sí-
ritandi þyngdarmælum var komið fyrir á Búrfelli og í Saurbæ í Holtum.
Útvarp veðurfregna
Útvarpstímar veðurfregna á rás 1 Ríkisútvarpsins voru í árslok sem hér greinir: Kl. 0100,
0430 (á þessum tíma var einnig útvarpað um loftskeytastöðina í Reykjavík á 1650 kílóriðum),
0645, 0815, 1010,1245, 1615, 1845 og 2215.
Kl. 0100, 0645, 1010 og 1845 var útvarpað veðurlýsingu frá einstökum veðurstöðvum og
skipum (kl. 0645 aðeins innlendar stöðvar), almennu yfirliti og veðurspá fyrir einstök veður-
spásvæði á landi, miðum og djúpum. Á öðrum tímum var útvarpað almennu yfirliti og veður-
spá fyrir landið, miðin og djúpin. Ýmsar útvarpsstöðvar gátu á 3 klst. fresti fengið stutt yfirlit
um veðurhorfur á landinu.
Veðurhorfum á öðrum og þriðja degi var útvarpað í lok veðurfregnatíma kl. 1245, 1615 og
1845.
Frá strandarstöðvum Póst- og símamálastofnunar var útvarpað almennu yfirliti, storm-
aðvörunum og spám fyrir þau spásvæði sem næst eru hverri stöð, sem hér segir: Að næturlagi
var útvarpað frá ísafirði, Neskaupsstað og Vestmannaeyjum kl. 0133 og 0503, en frá Siglu-
firði og Hornafirði þrem mínútum síðar í báðum tilvikum. Að degi til var útvarpað frá Nes-
kaupstað kl. 1045 og 2245 og hverju sinni þrem mínútum síðar frá Siglufirði og Hornafirði.
Útvarpað var á aðalvinnutíðnum stöðvanna að undangengnu tilkynningakalli á 2182 kílórið-
um.
Veðurspá fyrir miðin var lesin á ensku kl. 0533, 1133, 1733 og 2333 á tíðni 1876 kílóriðum
að undangenginni tilkynningu á 2182 kílóriðum.
Útvarpi veðurspáa fyrir miðin í loftskeytalykli, á íslensku og ensku, var hætt 1. jan.
Endurtekning á lestri veðurspár var felld niður frá 1. okt. í þeim veðurfregnatímum þar
sem það hafði tíðkast, þ.e. kl. 0100, 0430, 1010,1615 og 2215.
Veðurfréttir birtust í Ríkisútvarpinu-sjónvarp alla daga, nema í ágústmánuði, er ágrein-
ingur var um kjör. Drög að spákorti fyrir ísland voru daglega gerð fyrir sjónvarpsstöðina Stöð
2. Svipuð drög voru reglulega gerð fyrir tvö dagblöð, DV og Morgunblaðið, og einnig fyrir
(132)
t