Veðráttan - 02.12.1990, Qupperneq 37
1990
VEÐRÁTTAN
Ársyfirlit
Þjóðviljann hvað varðar veðurhorfur um helgar. Yfirlit um veðurhorfur á hálendi landsins
var útvarpað í fréttum rásar 1 Ríkisútvarpsins kl. 0800 og 0900 og í fréttayfirlit á ensku að
morgni, tímabilið 9. júlí-31. ágúst. Þann tíma fóru fram veðurathuganir að Versölum á
Sprengisandsleið og við Snæfellsskála.
Útgáfustarfsemi, greinar og fyrirlestrar
Veðráttan: Gefin voru út mánaðarblöð frá september 1989 til júlí 1990, ásamt ársyfirliti
1989.
Jarðskjálftaskýrslur: Haldið var áfram útgáfu mánaðaryfirlita jarðskjálfta í samvinnu við
Raunvísindastofnun Háskólans. í yfirlitum þessum er getið um upphafstíma, staðsetningu og
stærð þeirra skjálfta hér á landi, sem eru 2,0 stig á Richterkvarða eða stærri.
Preliminary Seismogram Readings var gefið út vikulega.
Gefið var út ritið “Loma Prieta jarðskjálftinn í Kaliforníu 17. október 1989“. Páll Hall-
dórsson er einn sjö höfunda ritsins.
Gefið var út ritið “SIL project. Report, October 3, 1990“. Höfundar eru Ragnar Stefáns-
son, Steinunn Jakobsdóttir og Sveinn Ólafsson auk Reynis Böðvarssonar.
Guðmundur Hafsteinsson ritaði kaflann “Flóðaveðrið 9. janúar 1990“ í ritinu “Flóðaveðr-
ið 9.jan.l990 og sjóvarnir á svæðum sem fyrir því urðu“, sem verkfræðistofan Fjarhitun h/f
vann fyrir Hafnamálastofnun ríkisins.
Markús Á. Einarsson ritaði greinina “Nokkur orð um breytileika lofthita á íslandi“ í af-
mælisritinu “Brunnur lifandi vatns“, Háskóli íslands, Háskólaútgáfa, til heiðurs Pétri M.
Jónassyni prófessor.
Markús Á. Einarsson birti greinina “Úrkoma suðvestanlands" í bókinni “Vatnið og land-
ið“, Orkustofnun.
Sigurður Þorsteinsson flutti fyrirlestur á ráðstefnu Eðlisfræðifélags íslands um hreyfiafl-
fræði lofts 30.maí.
Barði Þorkelsson flutti á sömu ráðstefnu erindið “Ósonmælingar á Veðurstofu íslands“.
Páll Bergþórson flutti einnig erindi á sömu ráðstefnu sem nefnt var “Efni sem valda gróður-
húsaáhrifum".
Trausti Jónsson og Páll Bergþórsson fluttu fyrirlestra í janúar á námsstefnu um gróður-
húsaáhrif.
Magnús Már Magnússon flutti fyrirlestur á fundi Jöklarannsóknafélags Islands um eðli og
orsakir snjóflóða.
Magnús Már Magnússon flutti fyrirlestur á ráðstefnunni “Björgun 90“ um snjóflóð og
björgunarstörf. Jón Gunnar Egilsson hélt fyrirlestur á námskeiði á Egilsstöðum á vegum
Björgunarhundasveit íslands og á Eskifirði og Patreksfirði hélt hann fyrirlestur á námsskeiði
á vegum SVFÍ.
Flosi Hrafn Sigurðsson og Hreinn Hjartarson tóku saman greinargerð varðandi SO2
mengun frá álveri á Keilisnesi.
Flosi Hrafn Sigurðsson og Eyjólfur Þorbjörnsson tóku saman greinargerð um fjölda
þrumudaga á íslandi 1950-1989.
Á Evrópuráðstefnu jarðskjálftafræðinga í Barcelona 17,- 22. september flutti Ragnar Stef-
ánsson erindið “SIL-project, scientific background". Á sömu ráðstefnu flutti Steinunn S.
Jakobsdóttir erindið “SIL-project, the first data-records“.
Á ráðstefnu norrænna jarðskjálftafræðinga í Kaupmannahöfn L- 3. október flutti Ragnar
Stefánsson erindið “SIL related research". Steinunn S. Jakobsdóttir flutti þar erindið “Some
characteristics of the first recordings in the SIL-netwwork“.
Á ráðstefnu Verkfræðingafélags íslands 14.nóvember flutti Ragnar Stefánsson erindið
„Áhrif jarðskjálfta á Suðurlandi".
(133)