Veðráttan - 02.12.1990, Side 38
Ársyfirlit
VEÐRÁTTAN
1990
Alþjóðasamstarf
Guðmundur Hafsteinsson sótti fund deildarstjóra tölvudeilda norrænna veðurstofa svo og
fund um tölvulíkanið HIRLAM í Helsinki 3.-9. febrúar. Einnig heimsótti hann finnsku veð-
urstofuna og flugveðurstofu á Kastrup.
Magnús Már Magnússon kynnti sér í febrúar snjóflóða- og grjóthrunsvarnarkerfi í Frakk-
landi. Hann tók síðan á móti framleiðendum þessara varnarkerfa í júní og athugaði með þeim
möguleika á uppsetningu slíkra kerfa hér á landi.
Pórir Sigurðsson heimsótti í mars Evrópuveðurstofuna í Reading og bresku veðurstofuna í
Bracknell til samninga um fyrirkomulag sendinga á veðurgögnum. Ennfremur sat hann ráð-
stefnu norrænna veðurfræðinga í Saarisalka í Finnlandi í ágúst og fund yfirmanna tölvudeilda
á veðurstofum Norðurlanda í Norrköping í september.
Páll Halldórsson sótti í apríl fund um jarðskjálftasögu í Liblice í Tékkóslóvakíu.
Dr. Þór Jakobsson sat 15. þing evrópskra jarðeðlisfræðifélagsins í apríl, ennfremur í októ-
ber ráðstefnu í Maryland um rannsóknaverkefni íslands og Bandaríkjanna á N-Atlantshafi.
Páll Bergþórsson sat í maí fund veðurstofustjóra V-Evrópu í Skotlandi og í framhaldi af því
fund í fulltrúaráði Evrópuveðurstofunnar í Reading. í ágúst sótti hann fund norrænna veður-
stofustjóra í Tromsö.
Trausti Jónsson sótti aðalfund Jarðeðlisfræðifélags Evrópu í Kaupmannahöfn í apríl. í
ágúst sat hann í Osló fund í norrænni nefnd um óson og loftslag, og í nóvember var hann á
fundi í Risö um sam-norðurevrópskt veðurfarsverkefni, á vegum Vísindanefndar Evrópu-
ráðsins. í sömu ferð var hann á fundi í Osló í veðurfarsnefnd á vegum norrænu vísindasjóð-
anna og á fundi norrænu vatnafræðiáætluninnar. Dagana 5.-7.september hélt norræna úr-
komunefndin fund á Veðurstofunni. Trausti Jónsson sat fundinn af hálfu Veðurstofunnar.
Sveinn Ólafsson, Jónas A. Pálsson, Hreinn Hjartarson, Magnús Jónsson og Flosi Hrafn
Sigurðsson sóttu um mánaðamótin maí-júní námskeið í Mölndal í Svíþjóð um veðursjár,
vegna kaupa Veðurstofunnar á veðursjá frá Ericsson Radar Electronics.
Flosi Hrafn Sigurðsson sat í júní fundi í París í stjórnar- og tækninefnd Evrópunefndar um
veðurathuganir á N-Atlantshafi (EGOS). í ágúst sótti hann í Genf stofnfund samvinnunefnd-
ar um athuganakerfi á N-Atlantshafi og síðasta reglulegan fund stjórnarnefndar NAOS um
veðurskip á N-Atlantshafi. í desember tók hann í Genf þátt í fundi stjórnar- og tækninefndar
Evrópusamtaka um veðurstöðvar á sjó, en hann var varaformaður stjórnarnefndarinnar og
formaður tækninefndarinnar á árinu.
Dr. Sigurður Þorsteinsson tók í júlí þátt í ráðstefnu sem haldin var í Boulder, Colorado, um
veðrabrigði á takmörkuðum svæðum (mesoscale processes). Einnig sat hann ráðstefnu um
fjallaveðurfræði í Boulder.
Gunnlaugur Kristjánsson fór til Kaupmannahafnar í júní og aflaði ýmiss konar hugbúnað-
ar hjá dönsku veðurstofunni. I september sótti hann Evrópumálþing DECUS í Cannes,
Frakklandi.
Barði Þorkelsson dvaldist í Arosa í Sviss frá 23.júlí til lO.ágúst og tók þátt í samanburðar-
prófunum á ósontæki Veðurstofunnar og þingaði um ósonmælingar.
Borgþór H. Jónsson sótti í september níunda fund um flugveðurfræði í Montreal.
Markús Á. Einarsson sótti þing “Commission for Basic Systems", þ.e. tækniráðs Alþjóða-
veðurfræðistofnunarinnar um veðurathuganir, fjarskipti og vinnslu gagna, í Lundúnum
24.september til 5.október.
Steinunn S. Jakobsdóttir og Ragnar Stefánsson sóttu í september Evrópuráðstefnu jarð-
skjálftafræðinga í Barcelona. Ragnar Stefánsson og Steinunn S. Jakobsdóttir sóttu einnig
ráðstefnu norrænna jarðskjálftafræðinga í Kaupmannahöfn 1.- 3.október, og Ragnar sat síð-
an fund stjórnarnefndar jarðskjálftaverkefnisins á Suðurlandi.
(134)