Veðráttan - 02.12.1990, Síða 39
1990
VEÐRÁTTAN
Ársyfirlit
Nýir símsvarar
Nýir símsvarar með valsímanúmeri 990600 og s.990601-990605 fyrir einstaka valkosti voru
teknir í notkun 5. apríl. Var þá hætt notkun símsvarans í s. 17000. Peir valkostir sem kynntir
eru í s.990600, og þar má velja sé um tónvalssíma að ræða, eða með því að hringja í einstök
númer eru:
S. 990601: Veður og veðurhorfur fyrir landið í heild
S. 990602: Veðurspá fyrir einstök spásvæði á landi og miðum
S. 990603: Veður og veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
S. 990604: Veðurlýsing fyrir valdar erlendar veðurstöðvar
S. 990605: Upplýsingar fyrir flugmenn.
, , loon VIÐAUKAR
Januar 1990:
Sícaðar og hrakningarþ. 8 urðu tvö umferðaóhöpp á höfuðborgasvæðinu vegna hvassviðr-
is. Rútu hlekktist á við Höfðabakka og lenti á kyrrstæðri bifreið og sendiferðabíll fór út af
Reykjanesbraut við Blesugróf. Engin meiðsl urðu á fólki. Mikið tjón varð víða um land í
óveðrinu þ. 9. Mest varð tjónið í sjávarflóði við Suðvesturströndina. Á Stokkseyri braut
sjórinn og flæddi inn í fiskvinnsluhús og veiðafærageymslu á sjávarkambinum. Einnig komst
sjór í nokkur íbúðarhús. Á Eyrarbakka braut flóðið um 300 af 750 fermetra fiskverkunar-
húsi Bakkafisks og skemmdi vélar og áhöld. Verulegt tjón varð á einu íbúðarhúsi er sjórinn
braut rúður og flæddi um allt húsið. Sjór komst líka í nokkra kjallara. í Grindavík varð stór-
tjón á bryggjum, Kvíabryggja eyðilagðist og Eyjabakki stórskemmdist. í Sandgerði brann
fiskverkunarhús til kaldra kola en slökkvistarf gekk erfiðlega vegna veðurs. Bátur valt á
hliðina við Norðurgarðinn og skemmdist talsvert. Þrír menn fóru í sjóinn, tveir í Sandgerð-
ishöfn og einn í Grindavíkurhöfn og björguðust þeir allir. Þ. 17. rákust tveir strætisvagnar
saman í Reykjavík á mótum Hosvallagötu og Túngötu og flytja varð sjö manns á slysadeild.
Þ.21. fauk rúta út af veginum og valt hjá Litlu-Hámundarstöðum við Árskósströnd. Sex
skólabörn voru í bílnum, ekkert þeirra sakaði. Blindhríð var og byljótt. Þ. 25. rakst rúta á
fólksbifreið á Biskupstungnaubraut, rann út af veginum og valt. Kona og ung dóttir hennar
í fólksbílnum meiddust. Mikil hálka var. Þ. 26. var afspyrnurok á sunnanverðu Snæfell-
snesi. Áætlunarbíll fauk út af veginum undir Hafursfelli. íbúar níu húsa við Ólafstún á Flat-
eyri þurftu að yfirgefa hús sín vegna snjóflóðahættu. Þ.27. féll snjóflóð á Hnífsdalsveg á
Eyrarhlíð og hreif með sér snjóruðningsbíl út í sjó. Einn maður var í bílnum og bjargaðist
hann við illan leik. Snjóflóð féll á Selabólsurð á Flateyri og hreif með sér þriggja mastra
staurastæðu. Þ. 29. fauk póstbíll út af veginum og fór á hliðina 5 km vestan við Vík,í
Mýrdal. Mikil hálka var.
Nesjavellir Úrkoma alls
Mest Dag Hæst hám. Dag Lægst lágm. Dag
Nóv. ’90 179.7 49.0 6. 8.4 13. -7.3 3.
Des. '90 Árið 346.5 2590.9 55.5 1. 7.6 1. -12.5 7.
LEIÐRÉTTINGAR
1989 Október bls. 76: Gjögur: Úrkoma alls 43.6 mm (47.0).
Ársyfirlit 1989 bls. 133: Hreinn Hjartarson (ekki Páll Halldórsson) sótti í september ráð-
stefnu í Brussel um tæki til veðurathugana.
1989 Desember bls. 98 og Ársyfirlit 1989: Lægst stóð loftvog 926.5 mb þ. 24. kl 10 í Vm.
(927.5 mb þ. 24 kl. 22).
1990 Júlí bls.49: Veðurhæð náði 11 vindstigum í Vm. þ. 7. og í Strm.,Hvrv. og Vm. þ.
14.(veðurhæð náði 11 vindstigum í Vm þ. 7. og í Strm. og Hvrv. þ. 14.).
1990 Ágúst bls. 62: Stórhöfði: úrkoma alls 116.9 mm (103.6 mm).
(135)