Veðráttan - 01.07.1992, Blaðsíða 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1992
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
JÚlí
Tíðarfar var talið sæmilegt en fremur svalt. Norðanlands var vætusamt síðari hluta
mánaðarins. Spretta var yfirleitt nokkuð góð en sums staðar léleg.
Þ.1.-4. var hæð fyrir norðan land og breytileg vindátt. Þ.l. var þurrt og bjart en
sums staðar súld, en skúrir hina dagana. Aðfaranótt þ.5. nálgaðist lægð úr suðvestri.
Vindur varð austlægur, allhvass eða hvass sunnanlands og um allt land rigndi. Hiti
var nálægt meðallagi 1.-5. Þ.6. og 7. var lægðin fyrir suðvestan land og suðaustanátt
og súld eða rigning, einkum á Suður- og Vesturlandi. Við suður og austurströndina
var þokuloft. Þ.6. var hlýjasti dagur mánaðarins, hitinn 3° yfir meðallagi en 2° yfir
því 7. og í meðallagi 8.
Þ.8. var útsynningur og rigning, mest á Suður- og Vesturlandi. Þ.9.-10. var lægð
fyrir norðaustan land og lægðardrag yfir því og vestan- eða norðvestanátt. Víða
rigndi. Þ.ll. og 12. var norðaustanstrekkingur og rigning á Norður- og Austurlandi.
Skúrir voru suðvestanlands 11. en bjart veður þ. 12. Hiti var 1-2° undir meðallagi
9.-11. og nálægt meðallagi 12.-20.
Þ.13.-15. var hæð fyrir sunnan land og breytileg eða vestlæg átt og víða léttskýjað
13, en skýjað við vesturströndina 14. Þ.16. snerist vindur í vestanátt með súld eða
rigningu. Lægð var fyrir norðan land á austurleið og 17. og 18. var austanstrekkingur
og rigning. Nokkuð djúp lægð var suður af landinu.
Þ. 19.-27. var vindur yfirleitt norðaustlægur, strekkingur 19,- 21. og sums staðar
hvass 20. Lægðir voru fyrir sunnan og austan land og hæð yfir Grænlandi. Á Norður-
og Austurlandi var rigning, víða mikil 19.-21. Suðvestanlands var lítil úrkoma þessa
daga. Þ.21.-31. var hitinn 1-3° undir meðallagi, lægstur 22. og 23. og voru það köld-
ustu dagar mánaðarins.
Að kvöldi 27. snerist vindur til austurs á Suðvesturlandi. Næstu tvo daga gekk
lægð norðaustur yfir land með suðaustlægri átt og rigningu og síðan breytilegri átt og
skúrum. Þ.30. fjarlægðist lægðin og norðaustanlands var norðvestanátt og rigning en
vestanlands stytti upp. Þ.31. var breytileg átt og súld eða dálítil rigning á Suður- og
Vesturlandi.
Loftvœgi var 1.0 mb fyrir neðan meðallag áranna 1931-60, frá 0.2 mb á Galtarvita
til 1.7 mb á Raufarhöfn.
Hæst stóð loftvog 1027,9 mb á Hjarðarnesi þ.4. kl. 15, en lægst 991,3 mb á Kirkju-
bæjarklaustri þ. 19. kl. 12 og á Egilstöðum þ.29. kl. 15 og sama dag kl.03 á Keflavíkur-
flugvelli.
Vindar: Norðaustan-, norðan- og norðvestanáttir voru algengari en meðaltal ár-
anna 1971-80 en aðrar áttir fátíðari.
Veðurhœð náði 11 vindstigum á Stórhöfða þ.5.
Þrumur heyrðust og/eða rosaljós sáust þ.29. á Þrv og Vpn. Skaðar og hrakningar:
Þ.3. fórst lítil flugvél og með henni einn maður í dimmviðri skammt suðaustur af
Heklu. Þ.18.-21. var úrhellisrigning á Bakkafirði. Nokkurt tjón varð er vatn flæddi í
kjallara grunnskólans. Þ.25. fauk hey á Snæfellsnesi. Þ.28. strandaði danska flutn-
ingaskipið Erik Boye fyrir utan höfnina á Breiðdalsvík á lágfjöru.
Jarðskjálftar: Þann 9. kl 1653 fannst jarðskjálftakippur í Hveragerði, á Reykjum,
(49)