Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1992, Síða 40

Veðráttan - 02.12.1992, Síða 40
Ársyfirlit VEÐRÁTTAN 1992 Gunnar B. Guömundsson fór í mars til Japan í boöi háskólans í Hokkaido til að ræöa úrvinnslu hafsbotnsmælinga á Reykjaneshrygg 1990 og norður af íslandi 1991. Gunnlaugur Kristjánsson fór í apríl til Bandaríkjanna og sinnti í leiðinni nokkrum verkefnum fyrir Veöurstofuna. Haraldur Ólafsson og Þóranna Pálsdóttir sóttu í janúar alþjóðafund sjónvarps- veöurfræöinga í París. Hreinn Hjartarson sótti ráöstefnu TECO 1992 um veöurathuganir og veðurathugunartæki í Vínarborg í maí. Magnús Már Magnússon fór í september á ráðstefnu alþjóðajöklarannsóknafélagsins í Japan og hélt þar erindi um snjó og vandamál tengd snjó. Markús Á. Einarsson sótti í nóvember fund tækniráös Alþjóöaveðurfræðistofnunarinnar “Commission for Basic Systems”, í Genf. Ragnar Stefánsson fór í apríl og maí í boösferö til Japan, Kína og Bandaríkjanna vegna jarðeölisfræðirannsókna. Hann flutti erindi um jarðskjálfta á íslandi, rannsóknir á jarðskjálftaspám og SIL-verkefnið við háskólann í Hokkaido og tvær jarðskjálftastofnanir í Kína. Á ráðstefnu japanska Jaröeðlisfræöifélagsins sýndi Ragnar veggspjald, og hann var meöhöfundur erinda um skjálftavirkni á Reykjaneshrygg, sem þar voru flutt. Hann var einnig ásamt Gunnari Guðmundssyni meöhöfundur erindis um rannsóknir við Tjörnes. Ragnar og Steinunn Jakobsdóttir sátu í september fund jaröskjálftafræöinga í Finnlandi og stjórnarfund norræna SIL-verkefnisins og að lokum allsherjarþing Evrópska Jarðskjálftaráðsins í Prag. Á báðum stöðunum fluttu þau erindi um rannsóknir tengdar jarðskjálftaspám. Sigurður Þorsteinsson og Guðmundur Hafsteinsson sóttu í apríl fund í Kaupmannahöfn um veðurspálíkanið HIRLAM. Siguröur sótti fundi um sama efni í september í Norrköping og í október í Osló. í september fór hann á ráðstefnu um fjallaveðurfræði í Portland í Oregon og flutti þar erindi. í sömu ferð ræddi hann við vísindamenn í Yale og heimsótti rannsóknastöðvar hjá NCAR og í Los Alamos. Trausti Jónsson sótti fund nefndar um óson og loftslag í Stokkhólmi í febrúar; fund norræns vinnuhóps um veðurfarsbreytingar og rennslislíkön í Osló í mars; fund um veðurfar á 17.,18.og 19. öld í Stavanger í maí og hélt þar tvö erindi um veðurathuganir á íslandi á þessum tíma; 18. norræna veðurfræðingafundinn í Hirtshals í júní, og ræddi þar um notkun einfaldra vindafarskennitalna til aö greina loftslagsbreytingar; fund um loftslag á árunum 1675-1715 í Bern í september; fundi í Kaupmannahöfn í október um veðurfarsbreytingar og orkuframleiöslu og hélt þar tvö erindi, annað um samfelluvandamál í hitamælingum og einnig “Regional Climate and Simple Circulation Parameters”. í desember sótti Trausti fundi í Helsingfors um tölvuskráningu veðurfarssögu á Norðurlöndum og túlkun veöurfarslegra tölvulíkana og flutti erindi um túlkun veðurfarslíkans Max Planck veöurfarsrannsóknarstofnunarinnar á svæðinu umhverfis fsland. Kostnaður af flestum þessum fundum var greiddur af norrænu fé. Hluti vinnuhópsins um veðurfarsbreytingar og rennslislíkön hélt fund í Reykjavík í september, Trausti Jónsson sat þann fund. Um Jónsmessuna var haldinn alþjóölegur fundur um heimskautalægðir á Hvanneyri. Trausti Jónsson og Haraldur Ólafsson skipulögðu og undirbjuggu fundinn, sem var á vegum starfshóps evrópska Jarðeðlisfræðifélagsins um heimskautalægöir. Fundinn sóttu rúmlega tuttugu manns frá sjö þjóölöndum. Trausti Jónsson og Þór Jakobsson sóttu fund vinnuhóps Alþjóðaheimskautavísindaráösins (IASC) í Reykjavík í apríl, um hnattrænar breytingar á norðurslóöum. Trausti sat í undirbúningsnefnd fundarins og er varafulltrúi íslands í vinnuhópnum. Trausti Jónsson vann ásamt Birgi Jónssyni sagnfræðinema við (136)

x

Veðráttan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.