Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 02.12.1992, Síða 42

Veðráttan - 02.12.1992, Síða 42
Ársyfirlit VEÐRÁTTAN 1992 Ragnar Stefánsson fór boösferð til Japan og Moskvu dagana 8.-25. mars til að ræða samvinnuverkefni og kynna sérjarðskjálftaspár í Japan og Sovétríkjunum. Ennfremur sótti hann ráðstefnu á vegum Evrópuráðsins um jarðskjálftaspár 15.-18. október í Strassbourg og flutti þar erindi. Dagana 9.-13. desember sat Ragnar haustþing AGU í San Fransisco og flutti þar fyrirlestur. Steinunn S. Jakobsdóttir flutti einnig fyrirlestur á þinginu í San Fransisco. Trausti Jónsson sótti fund í samstarfshópi um óson og loftslag í Helsingfors þ. 1. mars og annan fund í sömu nefnd í Kaupmannahöfn 27. ágúst. Nefndin hélt einnig fund í Reykjavík þ. 14. júní. í ferðinni til Finnlands fór hann jafnframt í skoðunarferð til Jokionen, en þar fer fram samanburöur á fjölmörgum gerðum úrkomumæla. Þ. 30. maí sat hann fund í Veðurfarsnefnd Norrænu vísindasjóðanna (NORDKLIM) í Stokkhólmi. í sömu ferð sótti hann fund norræna úrkomuhópsins í Norrköping. Þá sótti hann fund norræna úrkomuhópsins í Kaupmannahöfn 11.-13. nóvember. Þór Jakobsson sat ráðstefnu um umhverfisbreytingar á íslandi, í Miinchen og fund um Grænlandshafsverkefniö (hafísrannsóknir) í Kaupmannahöfn í desember. Þóranna Pálsdóttir fór á vinnufund í Osló um veðurfarsgögn (North Atlantic Climatological Dataset) dagana 11.-12. september. Þórir Sigurösson heimsótti dönsku Veðurstofuna í október til að fræðast um vinnustöðvar, gagnagrunn og vélreiknaöar spár. Útgáfustarfsemi, ráðstefnur, greinar o.fl. Veðráttan: Gefin voru út mánaöarblöð frá mars til desember 1991 og ársyfirlit fyrir það ár. Jarðskjálftaskýrslur: Útgáfa á mánaðaryfirlitum jarðskjálfta lá niðri á árinu. Preliminary Seismogram Readings var gefiö út vikulega, og vikuleg yfirlit um jarðskjálfta mælda í SIL- kerfinu voru send Almannavörnum og nokkrum öðrum stofnunum. Hafísskýrslur: Ritið “ Hafís við strendur íslands” var gefið út fyrir tímabilið október 1990 - september 1991. Ráðstefnur á íslandi. Vetrarmót norrænna jarövísindamanna var haldið í Reykjavík í janúar. Þar flutti Ragnar Stefánsson erindi sitt og Kristjáns Ágústssonar “The eruption of Hekla 1991 and its relation to strain release in southern Iceland” og ennfremur erindið “Earthquake prediction and the Nordic SIL-project”. Gunnár B. Guðmundsson flutti erindi sitt og Ragnars Stefánssonar “The OBS projects on the Reykjanes ridge and offshore northern Iceland”. Steinunn Jakobsdóttir flutti erindið “The overall performance of the SIL-network”. Baröi Þorkelsson var meðal höfunda erindisins “The Hekla eruption of 1991 -The tephra fali”. Trausti Jónsson og Þóranna Pálsdóttir sýndu veggspjaldiö “Meteorological observations in Iceland at the time of the Laki eruption”. í maí var haldin alþjóðleg ráöstefna í Reykjavík um náttúruhamfarir ( International Conference on Prepardness and Mitigation for Natural Disasters ’92 ). Þar flutti Magnús Már Magnússon erindið “Snow Avalanches: Hazard, Assessment, Defences”. Páll Halldórsson flutti erindiö “Seismic hazard assessment based on historical data and seismic (138)

x

Veðráttan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.