Veðráttan

Ukioqatigiit

Veðráttan - 02.12.1992, Qupperneq 43

Veðráttan - 02.12.1992, Qupperneq 43
1992 VEÐRÁTTAN Ársyfirlit measurements”. Ragnar Stefánsson flutti erindiö “Earthquake prediction research in the South Iceland Lowland and the SIL-system”. Meöhöfundar voru Baröi Þorkelsson og Steinunn Jakobsdóttir. Á ráöstefnu Eðlisfræðifélags íslands í Munaðarnesi í október flutti Steinunn Jakobsdóttir erindin “SIL-kerfiö: Sjálfvirkt kerfi til jarðskjálftamælinga á Suðurlandi” og “SIL-kerfið: Útkoma úr kerfinu”. Einnig var sýnt veggspjaldið “óson yfir íslandi”. Á fundi Alþjóðaheimskautavísindaráðsins (IASC) um hnattrænar breytingar á norðurslóðum, kynnti Trausti Jónsson norræna veðurgagnagrunninn (NACD). Ýmsar greinar, skýrslur o.fl. Erindi, sem flutt voru á ráðstefnunni “Natural Disasters” voru birt í riti um ráðstefnuna. Barði Þorkelsson og Þór Jakobsson eru meöal höfunda skýrslunnar “Analysis of Total Ozone Data from Reykjavik for the period 1957-1991”, sem Raunvísindastofnun Háskólans gaf út. Þeir áttu einnig hlut aö veggspjaldi um sama efni, sem sýnt var áráðstefnu um óson í Bandaríkjunum í júní og á íslandi í október. Barði er einnig einn þriggja höfunda greinarinnar “Heklugosiö 1991. Gjóskufallið og gjóskulagiö frá fyrsta degi gossins”, en hún birtist í Náttúrufræðingnum. Páll Halldórsson birti greinina “Um jaröskjálftasvæði Suðurlands” í árbók VFI. Markús Á. Einarsson ritaöi greinina “Climatic conditions of the Thingvallavatn area” í bókina “Ecology of oligotropic, subarctic Thingvallavatn” Ragnar Stefánsson er höfundur skýrslanna “SIL project. Report” frá mars og ágúst 1992. Hann er einn höfunda greinarinnar “The 1991 eruption of Hekla, Iceland”, en hún birtist í Bulletin of Volcanology. Ragnar og Gunnar B. Guðmundsson eru meðal höfunda greinarinnar “Microseismity in the Reykjanes Ridge, July 1990: Hypocenter distribution derived from an OBS arrey”, sem birtist í japanska ritinu Zisin. Sigurður Þorsteinsson ritaði greinina “ Flow over and around mountains “ í Sixth Conference on Mountain meteorology, sem Ameríska veöurfræðingafélagið gaf út. Þór Jakobsson og Halldór Bjömsson sömdu skýrsluna “Late Summer Sea Surface Energy Fluxes in the Iceland and Greenland Seas in 1987-1991”, sem Veðurstofan gaf út. Þann 17. mars var opið hús í Jarðeðlisfræðideild fyrir félagsmenn í Jarðfræðafélagi Islands. Ragnar Stefánsson, Páll Halldórsson, Barði Þorkelsson, Kristján Ágústsson og Steinunn Jakobsdóttir skýrðu starfsemi deildarinnar, fluttu erindi og sýndu veggspjöld. (139)

x

Veðráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.