Veðráttan - 01.09.1993, Page 1
ISSN 0258-3836
VEÐRATTAN 1993
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
September
Tfðarfaríð í mánuðinum var talið gott. Hlýtt var um allt land og hægviðrasamt. Kartöflu- og
grasspretta tók vel við sér eftir mjög slæm skilyrði í júh' og ágúst, einkum norðanlands.
Þ. 1. var grunnt lægðardrag að þokast yftr landið með rigningu eða súld í flestum landshlutum,
en þ. 2. var hægviðri og víða þurrt nema sums staðar við ströndina voru þokubakkar.
Dagana 3. - 8. var hæð yfir hafinu milli fslands og Bretlandseyja og hæglætis veður á íslandi.
Víða var skýjað og súld eða þoka við ströndina nema á Suðausturlandi og inn til landsins þar var
þurrt og sums staðar léttskýjað einkum þ. 4., 5. og 6.
Sídegis þ. 8. myndaðist lægð á vestanverðu Grænlandshafi og þokaðist í átt að landinu með
hægri suðaustlægri átt. Úrkomusvasði var yfir sunnan- og vestanverðu landinu þ. 9. og þ. 10. og
rigndi einnig á Austfjörðum þ. 10. Dagana 11. og 12. var austlæg átt á landinu. Lægð var yfir
Skotlandi á hreyfingu norðvestur og frá henni lá lægðardrag norðvestur á Grænlandshaf. Væta var
við suðurströndina og sums staðar við austurströndina en þurrt og víða bjart í öðrum landshlutum.
Síðdegis þ. 12. lægði og létti til víða nema við ströndina norðan- og austanlands, þar var þokuloft.
Dagana 13. - 16. var hæg breytileg átt á landinu. Dálítil hæð var yfir landinu og hafinu norður
af því. Skýjað var í flestum landshlumm og þokubakkar eða súld einkum við ströndina. Þ. 17. -
20. var hægfara víðáttumikil lægð á hreyfingu austur talsvert langt suður í hafi og hæð var fyrir
norðan land. Á landinu var austlæg átt nokkuð stíf syðst en annars staðar var gola eða kaldi.
Léttskýjað var víða um land, nema við suður- og austurströndina þar var skýjað og sums staðar
rigning allra syðst þ. 17. og 18. og einnig við austurströndina 19. Síðdegis þ. 19. þokaðist
úrkomusvæði inn á suðausturströndina og þaðan norðvestur yfir landið. Rigndi um mest allt land
aðfaranótt þ. 20. og í kjölfarið snerist vindátt til norðausturs og létti til um sunnanvert landið en
súld og þoka var víða um norðan- og austanvert landið.
Dagana 22. - 29. voru fremur hægar suðlægar og suðvestlægar áttir á landinu. Smálægðir voru
á vestanverðu Grænlandshafi á hægri hreyfingu norðaustur á Grænlandssund. Þ. 22. var sunnan-
og suðaustanstrekkingur á landinu. Úrkomusvæði lá yfir vestan- og sunnanverðu landinu og þokaðist
það austur yfir landið næstu nótt. Rigndi í flestum landshlutum þ. 23. Næsm daga var þurrt og
bjart á norðan- og austanverðu landinu en á vestan- og suðvestanverðu landinu var skýjað, skúrir og
víða slydduél til fjalla. Aðfaranótt þ. 26. nálgaðist úrkomusvæði landið úr suðvestri með suðaustan
strekkingi og rigningu um mest allt land þann dag. Þ. 27. var nokkuð stíf suðvestanátt á landinu og
víða skúrir sunnan- og vestanlands en á Austur- og Norðurlandi létti til. Þ. 28. lægði verulega og
létti víða til, en skúrir voru vestast á landinu. Síðdegis þ. 29. snerist til austanáttar og úrkomusvæði
nálgaðist suðausturströndina. Það þokaðist norður yfir austanvert landið og rigndi víða austantil.
Þ. 30. var austanátt og rigning um allt sunnanvert landið og allvíðáttumikil lægð þokaðist austur
fyrir sunnan land.
Loftvægi var 5,6 mb yfir meðaltali frá því að vera 5,0 mb yfir meðallagi á Hbv að 6,6 mb yfir því
á Dt. Hæst stóð loftvog, 1027,9 mb, á Vopnafirði þ. 2. kl. 21, en lægst, 983,3 mb, á Galtarvita þ. 27.
kl. 6.
(65)