Veðráttan - 01.10.1993, Page 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1993
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Október
Tíðarfarið í mánuöinum var talið mjög gott, einkum seinni hlutinn á Norður- og Austurlandi.
Þurrviðrasamt var og nokkuð hlýtt. Búfénaður var víða úti og gróður sums staðar enn í framfór.
Dagana 1. - 3. var víðáttumikil lægð á hreyfingu austur yfir Atlantshaf og voru austlægar áttir
ríkjandi á landinu. Skýjað var víðast hvar og þokusúld við ströndina einkum vestantil þ. 2. en víða
var þurrt í innsveitum. Síðdegis þ. 3. herti vindinn og áttin snerist til norðausturs og kólnaði. Þ. 4.
var norðaustan strekkingsvindur og létti þá til sunnan- og vestanlands en þokusúld og él voru
norðan- og austanlands. Síðdegis þ. 5. gekk norðanáttin niður og létti þá til um allt land.
Dagana 6. - 9. var hæð suðsuðvestur af landinu og lá hæðarhryggur til norðausturs um ísland.
Hægviðri var og víða léttskýjað nema við vesturströndina og á Vestfjörðum þar var skýjað og oft
súldarvottur einkum þ. 6. og 7. Einnig var þokusúld við norðurströndina þ. 9. Síðdegis þ. 9.
hörfaði hæðin fyrir suðvestan land norður fyrir land.
Dagana 10. - 13. var hæg austlæg átt eða hægviðri og léttskýjað á landinu nema við ströndina
norðaustan- og austanlands, þar var norðan og norðaustan gola eða kaldi og skýjað og dálítil él.
Síðdegis þ. 13. var norðaustanátt og él um allt norðanvert landið. Hæðin teygði sig suður á
Grænlandshaf og var norðanátt um allt land þ. 14. og víða él norðantil.
Aðfaranótt þ. 15. þokaðist hæðarhryggur inn á land og létti til um allt land. Þ. 16. var hægviðri
og léttskýjað nema á annesjum VestQarða, þar var suðvestanátt og smáél. Aðfaranótt þ. 17. fór
grunn lægð norðaustur milli íslands og Grænlands. Suðaustanátt var á landinu og fór úrkomusvæði
norðaustur yfir landið og hlýnaði heldur.
Dagana 18. - 20. var hæðarhryggur að hreyfast austur Atlantshaf og var vestan- og norðvestanátt
á landinu. Léttskýjað var víða um land nema á annesjym fyrir norðan og vestan þar voru smáél.
Síðdegis þ. 20. þykknaði upp um vestanvert landið með suðaustan kalda og rigndi víða um land um
nóttina og fram eftir morgni næsta dag einkum vestast.
Dagan 21. - 31. voru suðlægar og suðvestlægar áttir ríkjandi á landinu. Víðáttumikil hæð var
yfir Bretlandseyjum og teygði hún anga sína til landsins en lægðir fóru norðaustur með strönd
Austur - Grænlands. Aðfaranótt þ. 22. þokuðust kuldaskil inn á vestanvert landið með rigningu
víða nema á Suðausturlandi. í kjölfarið kólnaði með stífri vestan- og suðvestanátt og skúrum eða
éljum vestanlands, en víða létti til austanlands. Síðdegis þ. 23. snerist til sunnan- og suðaustanáttar
og hlýnaði. Víða var rigning eða súld nema á Austur- og Norðausturlandi þar var þurrt og hlýtt.
Síðdegis þ. 26. þokuðust skil yfir landið með hvassri sunnanátt og rigningu. í kjölfarið fylgdi hvöss
vestan- og suðvestanátt einkum um norðanvert landið aðfaranótt þ. 27. Fljótlega dró úr veðurhæðinni
og var hæg suðlæg eða suðvestlæg átt á landinu þ. 27. og víða léttskýjað nema við vesturströndina
þar var skýjað og dálítil rigning eða súld. Að morgni þ. 29. þokuðust kuldaskil inn á vestanvert
landið og fóru yfir landið með rigningu víða. í kjölfarið fylgdi suðvestlæg átt og létti til um norðan-
og austanvert landið en þokusúld eða rigning var sunnan- og vestanlands einkum við ströndina og
hélst veðrið þannig út mánuðinn.
(73)