Veðráttan - 01.11.1993, Page 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1993
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Nóvember
Tíðarfar var talið mjög hagstætt norðan- og norðaustanlands, en í öðrum landshlutum var
umhleypinga- og úrkomusamt. Sums staðar suðvestanlands varð mánuðurinn einna úrkomusamastur
nóvembermánaða, en fram til heiða norðaustanlands var kvartað undan sandfoki og vatnsskortur
gerði vart við sig í Eyjafirði. Óvenju snjólétt var norðaustanlands. Gæftir voru víða stopular.
Fyrstu 3 daga mánaðarins var lægð á Grænlandshafi, en hasð yfir Skandinavíu. Suðaustanátt
var ríkjandi með rigningu á Suður- og Vesturlandi, en víðast þurru norðan heiða.
Þ. 4. var alldjúp lægð á leið norður með Vesturlandi og síðdegis snerist vindur til suðvesturs
með slydduéljum sunnan- og vestanlands, en norðaustanlands létti til. Svipað veður hélst 5., en
aðfaranótt 6. hvessti af suðaustri með rigningu á Suður- og Vesturlandi og austur á Firði, en
norðaustanlands var úrkomulítið. Vindur snerist aftur í suðvestur með éljum á Suður- og Vesturlandi.
Aðfaranótt 8. snerist vindur enn til suðausturs með rigningu á Suður- og Vesturlandi, en
norðaustanlands var úrkomulaust að mestu.
Að kvöldi 8. dýpkaði lægð allmikið við suðausturströndina og fór svo norður með Austurlandi.
Þá rigndi um mikinn hluta landsins, en úrkoma var þó mest í skúraformi suðvestanlands og slydda
var á Vestfjörðum. Vindátt var fyrst nokkuð breytileg, en varð vestlæg þegar lægðin fór norður fyrir
land og 9. var allhvöss vestanátt á landinu.
Svipað veður hélst næstu daga. Éljagangur var á Suður- og Vesturlandi en lengst af bjartviðri
norðaustanlands. Sums staðar vestanlands var allmikill snjór í nokkra daga.
Aðfaranótt 15. nálgaðist mjög djúp lægð úr suðvestri og gerði þáhvassasuðaustanátt ummestallt
land. Lægðin fór norður með Vesturlandi sfðdegis og um kvöldið og snerist vindur þá til suðvesturs
á landinu með skúrum á Suður- og Vesturlandi. Þ. 16. og 17. fór önnur djúp lægð svipaða leið og
olli fyrst suðaustan- og síðar suðvestanátt. Víða rigndi mikið á Suður- og Vesturlandi, en sáralítið
norðaustanlands. Aðfaranótt 18. fór lægð norður yfir landið og rigndi þá um mestallt land. Vindátt
var mjög breytileg, en var orðin vestlæg um hádegi. Mjög hvasst var við norðurströndina. Vindur
snerist nú enn til suðvesturs með skúrum á Suður- og Vesturlandi. Að kvöldi 19. og aðfaranótt 20.
gerði suðaustan ofsaveður um suðvestan- og vestanvert landið er lægð fór hjá fyrir vestan land. Um
morguninn lægði. Veður var mun skaplegra um austanvert landið.
Lægðin grynntist ört, en enn hélst sunnanátt með rigningu austast á landinu, en skúrir voru
suðvestan- og vestanlands. Skilasvæði hélst yfir Austurlandi 21. og þá rigndi um allt austanvert
landið, en vestanlands var úrkomulítið. Vægt frost varð á Vesturlandi, en eystra hélst 1-6 stiga hiti.
Síðdegis 22. fór að rigna vestanlands og sunnan í vaxandi suðaustanátt. Norðaustanlands var þá
léttskýjað. Þ. 23. var skilasvæði yfir landinu. Vestan við skilin var hægviðri og dálítil él, en austan
þeirra var sunnanátt og rigning. Norðaustanlands hélst þó úrkomulítið. Ný lægð þokaðist nær
landinu úr suðvestri 24. Þá rigndi enn úr gamla skilakerfinu suðaustanlands. Aðfaranótt 25. hvessti
af suðaustri um sunnan- og vestanvert landið er mjög skörp skil nálguðust. Þau fóru yfir Suðurland
snemma um morguninn og samfara þeim var mikil snjókoma á Suðurlandi í hægri vestanátt. Um
kvöldið voru skilin komin austur af landinu og þá létti til um mestallt land.
Að morgni 26. hvessti enn af suðaustri vegna lægðar á Grænlandshafi. Síðdegis og um kvöldið
var foráttuveður um sunnan- og vestanvert landið, en undir miðnætti komu skil inn á landið og þá
lygndi mjög. Skilin voru síðan komin austur af landinu um hádegi 27. Þá var suðvestanátt með
smáskúrum á Suður- og Vesturlandi, en norðaustanlands létti til.
(81)