Veðráttan

Árgangur

Veðráttan - 01.12.1993, Síða 1

Veðráttan - 01.12.1993, Síða 1
ISSN 0258-3836 VEÐRÁTTAN 1993 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS Desember Tíðarfarið í mánuðinum var talið fremur gott þrátt fyrir talsverða kulda. Hægviðrasamt var nema á norðaustanverðu landinu þar var viðloðandi næðingssöm norðaustanátt með snjókomu. Þ. 1. var lægð við suðurströndina á hreyfingu norðaustur og frá henni lægðardrag suðvesmr á Grænlandshaf. Nokkuð hvöss norðaustanátt og snjókoma var á Vestfjörðum en í öðrum landshlumm var breytileg átt og skúrir syðra en dálítil slydda nyrðra. Um morguninn þ. 2. hvessti að vestan með éljagangi á Suður- og Suðvesmrlandi, en með kvöldinu gekk í stífa norðan- og norðvestanátt með slyddu og snjókomu norðantil og létti þá til um sunnanvert landið. Dagana 4.-5. var fremur hæg norðaustlæg átt á landinu. Smáél vom við norðurströndina en víða bjart í öðmm landshlutum. Undir kvöld þ. 5. nálgaðist lægð suðvesturstöndina með snjókomu og þokaðist hún norðausmr. Snjóaði um nóttina sunnan- og vestanlands og síðar einnig um austan- og norðanvert landið. Víða var hvöss austanátt og síðar norðaustanátt. Þ. 7. dró úr veðurhæðinni og létti til en smáél vom við norður- og austurströndina. Dagana 8.-11. var fremur hæg austan- og norðaustanátt á landinu. Víðátmmiklar lægðir vom langt suður í hafi á hægri hreyfingu austur yfir Atlantshaf. Léttskýjað var víða um land en þó vora stöku él við ströndina austantil og einnig var nokkuð hvöss austanátt og slydda eða snjókoma við suðurströndina aðfaranótt þ. 10. og fram eftir degi. Aðfaranótt þ. 12. myndaðist smálægð við vesturstöndina. Snjóaði víða á vestan- og norðanverðu landinu um leið og lægðin þokaðist ausmr og grynntist. í kjölfarið fylgdi hæg norðaustlæg átt. Aðfaranótt þ. 13. þokaðist hæð austur yfir landið. Lægði og Iétti til á öllu landinu um tíma. Síðdegis þ. 13. þykknaði upp með vaxandi austanátt á landinu þegar dýpkandi lægð nálgaðist landið úr suðvestri. Lægðin þokaðist austur með suðurströndinni þ. 14. með mikilli snjókomu og slyddu við suðurströndina en snjókomu varð vart í öllum landshlumm. Mjög hvöss austan- og norðaustanátt var á annesjum norðanlands og á Vestfjörðum síðegis þ. 14. en næstu nótt dró verulega úr veðurhæðinni. Dagana 15.-16. var norðaustlæg átt á landinu, sums staðar allhvöss austast. É1 vom á Norður- og Austurlandi en bjart að mesm suðvestanlands. Síðdegjs þ. 17. nálgaðist víðáttumikil lægð landið úr suðri og þokaðist austur fyrir sunnan land. Mjög hvasst var við suðurströndina og víða snjókoma en einnig var allvíða hvasst í öðmm landshlutum og éljagangur og skafrenningur einkum á Austur- og Norðausturlandi. Síðdegis þ. 18. snerist til norðaustanáttar og létti þá til um suðvestanvert landið en talsverður skaffenningur var. Aðfaranótt þ. 19. dró verulega úr veðurhæðinni og létti til. Um kvöldið þ. 19. myndaðist smálægð við Vestfirði og þokaðist hún suðausmr um nóttina og snjóaði víða. Síðdegis þ. 20. snerist vindur til norðurs og síðar norðvesturs og var nokkuð hvasst austantil á landinu. Létti til um allt sunnanvert landið. Hélst veður þannig þar til síðdegis þ. 22. þegar gekk í hvassa norðanátt um leið og kröpp lægð sem var við Jan Mayen þokaðist suðaustur. Snjókoma og éljagangur var um allt norðanvert landið þ. 23. og víða skafrenningur syðra. Aðfaranótt þ. 24. lægði og létti víða til. Dagana 24. og 25. var hæg breytileg átt og léttskýjað víðast hvar á landinu nema við suðvesturströndina þar var suðaustlæg átt og skúrir eða él. Aðfaranótt þ. 26. dýpkaði lægð á sunnanverðu Grænlandshafi og þokaðist í átt að landinu. Úrkomusvæði fór norðaustur yfir landið og rigndi í öllum landshlutum. í kjölfarið fylgdi suðlæg átt og létti til norðantil en smáskúrir eða él vom sunnantil á landinu. Undir kvöld þ. 27. hvessti af austri syðst á landinu er ný lægð nálgaðist landið úr suðri. (89)

x

Veðráttan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.