Veðráttan

Årgang

Veðráttan - 01.03.1994, Side 1

Veðráttan - 01.03.1994, Side 1
ISSN 0258-3836 VEÐRÁTTAN 1994 MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS Mars Tíðarfarið í mánuðinum var kalt einkum fyrri hlutinn. Umhleypingar vom talsverðir en stórviðri sjaldgæf. Snjóalög vom talsverð einkum um norðanvert landið. Fyrsm daga mánaðarins var hægfara, víðáttumikið lágþrýstisvæði suðvestur af landinu. Þ.l. fóm samskil norðaustur yfir landið með hvassri suðaustanátt og rigningu í öllum landshlutum. í kjölfarið fylgdi hægari suðvestanátt og vom slyddu- og snjóél um sunnan- og vestanvert landið en bjartviðri á norðan- og austanverðu landinu þ. 2. og 3. Síðdegis þ. 4. snerist smám saman til norðanáttar og létti til sunnan- og vestanlands en dálítill éljagangur var norðaustanlands. Norðanáttin gekk niður aðfaranótt þ. 6. Þ. 6. var lægð á Grænlandshafi og vaxandi austanátt á landinu. Hvassviðri og snjókoma var syðst á landinu um tíma en hægari vindur og él í öðrum landshlutum. Næsm nótt snérist vindátt til suðurs og síðdegis þ. 7. kólnaði þegar gekk í stífa vestan- og suðvestanátt með éljagangi um vestanvert landið. Þ. 8. þokaðist lægðin austur yfir landið og vindur snerist smám saman til norðurs og var hvöss norðanátt og snjókoma á norðanverðu landinu þ. 9. Þ. 10. nálgaðist lægð landið úr suðvestri með hvassri austanátt og snjókomu um allt sunnan- og vestanvert landið. Lægðin þokaðist austur með suðurströndinni þ. 11. og snerist til norðaustan- og norðanáttar með éljagangi fyrir norðan og austan en bjartviðri suðvestanlands. Dagana 12. - 19. vom norðaustlægar áttir ríkjandi og kalt í veðri. Víðáttumikil lægð var austur við strönd Noregs og þaðan lá lægðardrag til suðvesturs fyrir sunnan land. Smálægðir fóm austur fyrir sunnan land og hæð var yfir Norður- Grænlandi. É1 vom við norðurströndina þ. 12. og 13. og fremur hægur vindur. Að kvöldi þ. 13. myndaðist smálægð við suðvesturströndina og þokaðist austur þ. 14. með snjókomu í flestum landshlutum og stífri norðaustanátt. Þ. 15. snerist vindur til norðurs og létti til sunnan til á landinu en éljagangur var fyrir norðan. Þ. 16. var hvöss norðanátt um allt land en verulega dró úr henni þ. 17. og létti þá víða til nema við norðausturströndina þar vom él. Fremur hæg norðaustlæg átt var og víða bjart veður næsm daga nema síðdegis þ. 18. þá snjóaði vestanlands í hægri breytilegri átt og um kvöldið þ.19. herti norðanáttina um tíma norðaustanlands en lægði þegar leið á nóttina. Þ. 20. þykknaði upp með vaxandi austanátt á landinu og hlýnaði vemlega. Djúp og víðáttumikil lægð nálgaðist landið úr suðvestri og var hvöss suðaustanátt og rigning þ. 21. Lægðarmiðjan þokaðist norðaustur yfir landið þ. 22. í kjölfarið fylgdi hvöss sunnan- og suðvestanátt um sunnanvert landið og kólnaði. Þ. 23. og 24. var norðanátt og slydda og snjókoma norðan til á landinu en víða léttskýjað sunnan til. Aðfaranótt þ. 25. lægði og létti til en með kvöldinu þykknaði upp með suðvestlægri átt og slydduéljum suðvestanlands og dálítil snjókoma var á annesjum norðvestan til á landinu. Þ. 26. nálgaðist lægð landið úr suðvestri og varð kyrrstæð skammt vestur af landinu. Næstu daga var suðaustan strekkingur og hlýtt á landinu og víða rigning öðm hveiju. Þ. 28. fóm samskil norðaustur yfir landið og kólnaði. í kjölfarið fylgdi suðvestan- og vestanátt með éljum á víð og dreif um landið nema austast þar var að mestu þurrt. Síðdegis þ. 30. nálgaðist djúp lægð landið úr suðri og fór norðnorðaustur skammt fyrir austan land. Gerði hvassa norðaustanátt og snjóaði víða um austan- og norðanvert landið þ. 31. en úrkomulítið var suðvestanlands. (17)

x

Veðráttan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðráttan
https://timarit.is/publication/278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.