Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1977, Blaðsíða 12
12
STEFÁN KARLSSON
5. Tapað ogfundið
Þegar Jón Eggertsson skrifaði Kringlu upp í Kaupmannahöfn hefur
aðeins vantað tvö blöð í hana (auk formálans, ef hann hefur staðið í
handritinu í öndverðu) - annað með niðurlagi Ynglinga sögu, hitt
úr Haralds sögu hárfagra, en þegar Ásgeir Jónsson skrifaði hana upp
á Stangalandi einum átta árum síðar hafa blöðin verið einu færri.
Rúmum tveim öldum síðar var Finnur prófessor Jónsson að vinna
að Heimskringluútgáfu sinni og fékk þá að láni fimm skinnblöð úr
tveim Heimskringluhandritum frá Konungsbókhlöðu í Stokkhólmi,
sem þá báru safnmarkið Perg. 4to nr. 20, 1 og 4, en síðar Perg. fol.
nr. 9 II og I. Finni varð fljótlega ljóst að fjegur blaðanna (20, 1 = 9
II) vóru úr Jöfraskinnu, en eitt þeirra (20, 4 = 9 I) úr Kringlu, og
hann birti þessi blöð ljósprentuð með inngangi 1895. Texti Kringlu-
blaðsins er úr Ólafs sögu helga og er prentaður (með samræmdri
stafsetningu) í Heimskringluútgáfu Finns II, 364.9-376.1 (og í Heims-
kringluútgáfu Bjarna Aðalbjarnarsonar II, 280.16-288.8).
Röksemdir Finns Jónssonar fyrir því að þetta varðveitta blað sé úr
Kringlu eru annars vegar að samsvarandi texti í uppskrift Jóns
Eggertssonar sé greinilega skrifaður eftir þessu blaði, en að Ásgeir
Jónsson hafi orðið að grípa til Jöfraskinnutexta nákvæmlega á þessu
skeiði í AM 36 fol. til þess að fylla uppskrift sína, og hins vegar að
stafsetning á aðal-Kringluuppskrift Ásgeirs svari fullkomlega til staf-
setningar á þessu blaði. Fyrrnefnda röksemdin er óyggjandi og full-
nægjandi, en Kringluuppskriftir hafa ekki verið tiltækar við ritun
þessarar greinar, þannig að unnt hafi verið að leitast við að endur-
meta á grundvelli þeirra hvort Kringla hafi öll verið með einni hendi.
Ásgeir Jónsson fylgir að vísu aldrei stafsetningu forrita sinna af smá-
smygli, en í sumum uppskriftum fylgir hann henni í megintriðum, og
framan til í AM 35 fol. hefur Árni Magnússon leiðrétt stafsetningu
Ásgeirs eftir Kringlu.
Varðveitta Kringlublaðið hefur að öllum líkindum verið stakt blað
frá öndverðu. Vinstra megin á blaðinu að endilöngu er ofurlítill
geiri, 1,1 - 1,5 sm. að breidd, sem hefur verið brotinn um kjöl í
kverinu sem blaðið er úr. Brotið hefur nú verið sléttað, en samkvæmt
lýsingu Finns Jónssonar í ljósprentinu hefur hann verið brotinn fram
fyrir, þannig að blaðið hefur verið aftan til í kveri. Hefði blaðið verið
skorið úr Kringlu, hefði það að sjálfsögðu verið skorið hinum megin
við kjöl, og hefði það átt sér andblað í tvinni, sem hefði verði skorið