Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1977, Blaðsíða 95
LANDSBÓKASAFNIÐ 1976
95
Filmun helzta blaðakostsins er því mikið nauðsynjamál, og er að
henni vikið annars staðar í þessu yfirliti.
Seðlabanki íslands veitti snemma á árinu safninu einnar milljón
króna styrk, en fyrir vikið reyndist kleift að hefja að nýju vinnu við
íslenzka bókaskrá, áfangann 1534-1844, verk, sem verið hefur lengi
á döfinni og dregizt hefur sökum liðsskorts að ljúka. Ólafur Pálmason
var ráðinn um áramótin 1965/66 að safninu gagngert til að vinna að
þessu verki, en fékk síðar ekki sinnt því, er hann réðst forstöðumaður
þjóðdeildar safnsins og ný og brýn verkefni kölluðu að.
Einar G. Pétursson cand. mag. var fyrir hluta af styrk Seðlabankans
lausráðinn um nokkurra mánaða skeið, svo að losa mætti um Ólaf
Pálmason, en jafnframt heimilaði Menntamálaráðuneytið, að Har-
aldur Sigurðsson veitti þjóðdeildinni forstöðu þann tíma, er Ólafur
ynni að umræddri skrá. Þungur skriður er nú á verkinu, og standa
vonir til, að fyrrnefndum áfanga verði lokið í þessari hríð.
FLOKKUNAR- OG
SKRÁNINGARDEILD
(DEILD ERLENDRA
RITA)
Fastir starfsmenn voru hinir sömu og á
síðasta ári.
Lausráðnar voru í hálfu starfi hvor,
Kristín Gústafsdóttir og Kristín Björgvins-
dóttir, og aðrar í minna starfi Sigríður
Helgadóttir B. A., Jósefína Ólafsdóttir, Hadda Þorsteinsdóttir, Laufey
Þorbjarnardóttir, Gerður Guðmundsdóttir B. A. og Ingibjörg Sæ-
mundsdóttir B. A. Ennfremur Skjöldur Eiríksson, er einkum hafði
umsjón með bókageymslum utan safns.
Áslaug Ottesen bókavörður hafði sem fyrr umsjón með Samskrá
um erlendan ritauka íslenzkra rannsóknarbókasafna.
Aðalheiður Friðþjófsdóttir bókavörður vann ásamt Þóri Ragnars-
syni bókaverði í Háskólabókasafni að Samskrá þeirri um erlend tíma-
rit í íslenzkum söfnum, sem dregizt hefur nokkuð að ganga endanlega
frá, enda þar um mikið verk að ræða.
Erlendur ritauki nam á árinu 2040 ritum, og koma þar ekki öll kurl
til grafar. Um 400 bækur voru endurflokkaðar og endurskráðar.
Landsbókasafn fékk geymslurými að Sölvhólsgötu 1, og kom það
sér vel, þar sem rýma varð geymslu þá, er það hafði haft á Skúla-
götu 26.
Bókahillur voru settar upp í geymslunni á Sölvhólsgötu og raðað á
þær ritum um guðfræði og náttúrufræði, en jafnframt fekkst þar í