Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1985, Blaðsíða 72
Landsbókasafnið 1983
BÓKAKOSTUR OG Bókakostur Landsbókasafns var í árslok
BÓKAGJAFIR samkvæmt aðfangaskrá 373.658 bindi og
hafði vaxið á árinu um 6656 bindi. Veru-
legur hluti ritaukans var þjóðdeildarefni eða 4839 bindi.
Mikill íjöldi binda var sem fyrr gefinn safninu eða fenginn í
skiptum.
Af einstökum gjöfum skal nokkurra getið sérstaklega:
Viggó Gíslason alþingisbókavörður afhenti með bréíi 18. marz
1983 Landsbókasafni til eignar og varðveizlu úrklippur varðandi
ísland úr dönskum blöðum 1905-1950. Þessi gjöf Bókasafns Alþingis
er hin merkasta og kemur til viðbótar öðrurn áþekkum úrklippusöfn-
um, svo sem hinu mikla úrklippusafni Jóns Sigurðssonar frá 19. öld.
Kristmann Guðmundsson skáld lézt 20. nóvember 1983.
Að honuni látnum gáfu dætur hans, Ninja, Randí, Vildís, Hrefna,
Ingilín og Kaðlín, Landsbókasafni íslands þann hluta bókasafns
hans, er í voru verk skáldsins bæði á frummálunum, íslenzku og
norsku, og í þýðingum á fjölda tungumála, ennfremur ýmis safnrit,
sem hann átti eitthvert efni í. Þá eru margvísleg verk, er hann sneri á
íslenzku. Alls er þessi bókagjöf 455 bindi prentaðra rita.
Þótt Landsbókasafn íslands kappkosti að draga að verk íslenzkra
skálda og rithöfunda hvaðanæva, voru um 30 bindi í þessum hluta
gjafar Kristmannsdætra, er safnið átti ekki fyrir, mestmegnis erlendar
útgáfur.
Hið sama má segja um mikið safn af úrklippum úr erlendum
blöðum og tímaritum, er sögur og þá einkum smásögur Kristmanns
birtust í á sínum tíma. En þær úrklippur hafði skáldið látið binda inn
í átta bindi. Eins og nærri má geta, átti Landsbókasafn íslands fyrir
einungis sumt af þessu efni, enda erfitt að henda reiður á því og afla
þess. Auk hins innbundna úrklippusafns eru í gjöfinni miklar syrpur