Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1985, Blaðsíða 73
LANDSBÓKASAFNIÐ 1983
73
af úrklippum úr bæði
innlendum og erlend-
um blöðum með grein-
um Kristmanns sjálfs -
og skrifum annarra um
verk hans, og eru hinar
síðari einkum mikils-
verðar heimildir hverj-
um þeim, er kanna vill
rithöfundarferil Krist-
manns Guðmundsson-
ar. Gegnir raunar
furðu, hve vel skáldinu
hefur tekizt að halda
saman verkum sínum
og því, sem um þau
hefur verið ritað, svo
víða sem rit hans hafa
dreifzt um veröldina.
I gjöfinni voru loks
handrit nokkurra verka
Kristmanns Guð-
mundssonar, og verður
þeirra getið síðar í
þessu yfirliti.
Frú Karen Jónsson,
ekkja Péturs Jónssonar
óperusöngvara, gaf
Landsbókasafni ýmis
gögn, einkum nótna-
bækur og óperuverk,
sem reynast munu
gagnlegar heimildir um
söngferil og viðfangs-
efni Péturs Jónssonar. Bókagjöf Kristmannsdætra.
Þá skal hér loks getið mikillar bókagjafar, er Landsbókasafni barst
á árinu frá Landsbókasafni Grænlendinga í Nuuk (Godthaab), alls
182 bindi. Langflest ritanna eru á grænlenzku, nokkur á dönsku eða
báðum málunum, örfá á ensku. Landsbókasafn er fátækt fyrir af