Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1986, Blaðsíða 64
64
LANDSBÓKASAFNIÐ 1984
Ólöf Bjarnadóttir afhenti úr búi sínu og manns síns, Agnars
Klemens Jónssonar sendiherra, er lézt 14. febrúar 1984, ýmis gögn,
komin úr fórum Jóns Borgfirðings, afa Agnars. Þar eru m. a. kver
með kvæðum eftir Þorstein Gissurarson tól og Mála-Davíð, skrifað af
Markúsi Loftssyni bónda á Hjörleifshöfða 1882; Rímur af Jóhanni
Blakk, kveðnar af Gísla Sigurðssyni og skrifaðar af NNÓ 1839;
Ljóðasafn að mestu með hendi Daða Níelssonar og minnisgreinar
með hendi Tryggva Gunnarssonar.
Halldór Laxness gaf um hendur Ólafs Pálmasonar klippusafn úr
íslenzkum og erlendum blöðum varðandi sig; ennfremur Fundarbók
undirbúningsnefndar listamannaþings 1945.
Frú Anna Vala Sveinsdóttir, nú búsett í Bandaríkjunum, gaf í
minningu um stjúpíoður sinn, Svein Ólafsson loftskeytamann, um
hendur fornbókasalanna Snæs Jóhannessonar og Gunnars Valdi-
marssonar, handrit kvæða úr Sæmundar-Eddu með hendi Bjarna
skálds Thorarensens; ennfremur Plánetubók með hendi frá 18. öld. Sjá
grein Nönnu Ólafsdóttur í þessari Árbók um eddukvæðahandrit
Bjarna Thorarensens.
Rímur af Svoldarbardaga eftir Sigurð Breiðfjörð, skrifaðar af
Bjarna Sveinssyni í Viðflrði 1851-1852. - Sálma- og bænakver. Hvort
tveggja gjöf úr dánarbúi Þorleifs Árnasonar frá Grænuhlíð í Norð-
firði. Sigrún, dóttir hans, og Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður,
systursonur Þorleifs, afhentu.
„Nokkrir sundurleitir þættir . . . “ eftir Björn Jónsson á Kóngs-
bakka. Gjöf höfundar.
Ólafur Emil Gestsson afhenti m. a. Skinfaxa, rit Framtíðarmanna,
byrjað 5. febrúar 1924 undir forsæti Sigurjóns Guðjónssonar, síðar
prófasts í Saurbæ, en því lýkur á fullveldisdaginn 1929 og er ekki
samfellt.
Skjalasafn Framtíðarinnar 1969—1975. Þrjár möppur. Björn
Björnsson afhenti.
Dr. Þorleifur Jónsson afhenti „Gerðabók Deildar bókavarða við
íslenzk rannsóknarbókasöfn“ 1966-1983.
Guðmundur Bernharðsson afhenti að gjöf útfararræður sr. Sig-
tryggs Guðlaugssonar og sr. Janusar Jónssonar.
Guðfmna Þorsteinsdóttir skáldkona frá Teigi í Vopnafirði, Erla:
1. Dagbækur, 17 bindi, 11.3.1948-7.12.1970. - 2. Málshættir og
spakmæli, 2 bækur. - 3. Ljóðaþýðingar, 1. bók. - 4. „Kvæði og
stökur“, 1 bók. — 5. „Lausavísur í einum graut.“ 6. Kvæðabók,