Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Blaðsíða 35
ÞJÓÐARBÓKHLAÐA
35
Fyrst var að koma sér upp úr jörðinni.
Sótt var þegar 20. janúar 1988 um heimild til að bjóða út 9.
áfanga byggingarframkvæmdanna. Þar sem sýnt var, að 50 millj-
ónir þær, er settar voru í fjárlög ársins, nægðu ekki til að ljúka
hinum nýja áfanga, var beðið átekta, meðan Birgir Isleifur Gunn-
arsson menntamálaráðherra freistaði þess að tryggja meira fé til
framkvæmdanna, enda ærið fé til, ef farið væri eftir lögunum um
þjóðarátakið. En Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra lét
sig hvergi, og var því ekki annar kostur en bjóða út 9. áfanga
þannig að ekki yrði lokið við hann fyrr en á árinu 1989.
í fjárlagafrumvarpinu fyrir það ár voru einungis 90 milljónir
króna vegna Þjóðarbókhlöðu, þótt gert væri ráð fyrir, að álagður
eignarskattsauki yrði 240 milljónir króna.
Álagningin 1989 reyndist, þegar til kom, 284 milljónir eða alls á
árunum 1987-89 684 milljónir. Af þeim hafði innheimzt í árslok
1989 501 milljón, en af því fé verið ráðstafað til bókhlöðunnar 244
milljónum króna, þar sem á miðju sumri var ákveðin 30 milljóna
króna aukafjárveiting til bókhlöðunnar.
í tillögum byggingarnefndar 2. júní 1988 um fjárveitingar á
árinu 1989 var þess getið, að eignarskattsaukinn myndi, þótt hann
skilaði sér allur, ekki nægja til að ljúka bókhlöðusmíðinni, nauð-
synlegt yrði að framlengja gildistíma hans.