Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Blaðsíða 41
ÞJÓÐARBÓKHLAÐA
41
Við tilkomu nýrrar ríkisstjórnar vorið 1991 hét Ólafur G.
Einarsson menntamálaráðherra þegar stuðningi við bókhlöðu-
málið og beitti sér fyrir því, að bókhlöðunni yrði í frumvarpi
fjárlaga fyrir árið 1992 ætlaður meginhluti eignarskattsaukans,
eða 335 m. kr. Við þeirri upphæð var ekki hróflað í meðferð
fjárlaga á Alþingi. Ekki reyndist unnt, þótt eftir væri leitað, að fá
heimild til útboðs 12. áfanga á árinu 1991 og vinna þannig
dýrmætan tíma. Útboðið varð að bíða nýs árs.
Hinn 31. maívar haldinn fundur með starfsliði Landsbókasafns
og Háskólabókasafns, þar sem fjallað var um Þjóðarbókhlöðu.
Finnbogi Guðmundsson ræddi um fjármál og framkvæmdir, en
Einar Sigurðsson um endurskoðaða rýmisskrá, er hönnuðir bók-
hlöðunnar mundu nú snúa sér að ásamt samstarfsnefnd um
Þjóðarbókhlöðu undir forystu Egils Skúla Ingibergssonar verk-
fræðings, framkvæmdastjóra byggingarnefndar.
Á fundinum 31. maí gerði Þórir Ragnarsson jafnframt grein
fyrir hinu nýja tölvukerfi, Libertas, er síðar var gefið íslenzka
nafnið Gegnir.
Eins og fram er komið, varð að bíða fram yfir áramót heimildar
til að bjóða út 12. áfanga. Jafnskjótt og sú heimild fékkst snemma í
janúar 1992, var áfanginn boðinn út með tilboðsfresti til 24. marz,
enda þar um að ræða mikinn og allflókinn áfanga, svokallaðan
loftaþátt. Tilboð reyndust, þegar á hólminn kom, mun lægri en
kostnaðaráætlun hönnuða. Hvort tveggja var, að þröngt var á
vinnumarkaði og efnissalar höfðu lækkað verð til mikilla muna frá
því er hönnuðir unnu að áætlun sinni og könnuðu verð hjá þeim.
Tilboð það, er tekið var, reyndist vera frá Hagtaki og hljóðaði
upp á 218 milljónir, en áætlun hönnuða var 321 milljón.
I greinargerð byggingarnefndar í maí um fjárþörf á árinu
umfram 12. áfanga, svo sem til reksturs byggingar, hönnunar og
undirbúnings flutninga, kom fram, að eftir urðu 39 m. til annarra
verka. Tillaga var gerð um, hver þau verk væru, og féllst ráðuneyt-
ið síðar á árinu á þá tillögu.
Heildarfjárveiting til Þjóðarbókhlöðu á árinu var 335 m. kr.
Vegna þess hve seint framkvæmdir hófust við 12. áfanga, var sýnt,
að áfanganum yrði ekki lokið fyrr en á árinu 1993 og hluti
fjárveitingar ársins 1992 yrði því fluttur á milli ára.
Einar Sigurðsson var leystur frá háskólabókavarðarstarfi sínu
frá 1. febrúar allt til nóvemberloka 1992 til þess að geta einbeitt sér
að vinnu með hönnuðum og aðdráttum margvíslegra gagna, er að