Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Blaðsíða 44
44
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
með árinu 1990 séu teknar úr endurbótasjóðnum svonefnda. Og
verður nú vikið að honum.
Á árinu 1990 brá svo við, að ákvæðinu um forgang Þjóðarbók-
hlöðu á ijárveitingum úr þeim sjóði var hrundið með eftirfarandi
ákvæði, 36. gr. lánsfjárlaga 1990:
„Þrátt fyrir ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 83/1989 um
Þjóðarbókhlöðu og endurbætur menningarbygginga, skal á árinu
1990 heimilt að ráðstafa fé af sérstökum eignarskatti samkvæmt
lögunum til framkvæmda við eftirtalin mannvirki: Þjóðleikhús,
Þjóðminjasafn íslands, Þjóðskjalasafn íslands og Bessastaði."
Framlög til þessara mannvirkja urðu á árinu 1990 463 m. kr.
í lánsfjárlögum 1991 var aftur sams konar ákvæði, í 34. gr., og
þar nefndar framkvæmdir við eftirtalin mannvirki: Þjóðleikhús,
Þjóðminjasafn íslands og Bessastaði.
Framlög til þeirra urðu á árinu 1991 190 m. kr.
Ekkert svipað ákvæði var í lánsljárlögum 1992, en þó hrukku úr
sjóðnum á því ári 30 m. kr. til Bessastaða.
Alls urðu framlögin til umræddra mannvirkja á árunum
1990-92 683 m. kr.
Á umræddum árum urðu fjárveitingar til Þjóðarbókhlöðu
samkvæmt könnun ríkisendurskoðunar 67 m. 1990, 143m.og500
þús. 1991 og 324 m. 1992, samtals 534 m. 500 þús. kr.
Framlög til Þjóðarbókhlöðu og fyrrnefndra stofnana eða mann-
virkja á þeirra vegum á árunum 1990—92 urðu þannig 1217 m. og
500 þús. kr. Samkvæmt skýrslu ríkisendurskoðunar innheimtist
1990-92 endurbótasjóðsfé uppá 884 m. og 80 þús. kr. Sé sú
upphæð dregin frá hinni, 1217.500 h- 884.080, komaút333 m. og
420 þús. kr.
í fjárlögum 1990 var endurbótasjóði ætlað að taka 300 m. kr.
lán, en frá því var horfið.
Byggingarnefnd fagnar þeim fjárveitingum, sem Þjóðarbók-
hlöðu hafa verið ætlaðar árin 1992 og 1993, þegar hún hefur
fengið mestallan eignarskattsaukann. í skýrslu ríkisendurskoðun-
ar segir, að 185 m. og 72 þús. kr. hafi gengið til bókhlöðunnar árið
1992 á móti 324 m. ijárheimild (í raun 335 m.), en mismunurinn
hefur verið færður yfir á árið 1993 og bókhlöðunni því nýtzt til
fulls af fjárveitingu ársins 1992. Horfur eru á, að ljárveiting ársins
1993, 338 m. kr., verði ekki fullnýtt á árinu, en þess vænzt, að
mismunurinn verði á sama hátt fluttur yfír á árið 1994.