Vísbending - 20.01.1988, Qupperneq 1
VÍSBENDING
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL_
3.6 20. JANÚAR 1988
Raunvextir: Svipaðir hér og víða erlendis
Allt frá seinni hluta árs 1986 hafa
vextir verðtryggðra bankalána hér á
landi farið jafnt og þétt vaxandi og
voru 9.3% að meðaltali á síðasta
ársfjórðungi 1987. Raunvextir af
óverðtryggðum skuldabréfum
bankastofnana hafa á hinn bóginn
sveiflast mikið upp og niður á síð-
ustu tveimur árum, en voru að með-
altali 6.3% á síðasta ársfjórðungi.
Allt árið 1987 voru vextir verð-
tryggðra skuldabréfa 7.7% og raun-
vextir óverðtryggðra skuldabréfa
4.7%. Á sama tíma voru raunvextir
af hagstœðustu lánum í Danmörku,
Ástralíu, Portúgal og Spáni á bilinu
9 til 11% og þeirfóru upp í 17.4% á
Nýja Sjálandi.
Raunvextir erlendis
Á flestum þróuðum fjármagns-
mörkuðum erlendis býðst mismun-
andi lántakendum mismunandi
kjör. Þeir sem bankar tclja hvað
traustasta, t.d. stór og stöndug
fyrirtæki, býðst hagstæðari kjör en
öðrum. Lánakjörin verða síðan
lakari eftir því sem áhætta eykst og
vextir til einstaklinga geta orðið
helmingi hærri ef ekki meira, en
svonefndir ”bestukjaravextir”. Á
töflunni hér á síðunni eru sýndir
raunvextir í ýmsum iðnríkjum 1984
til 1987, eins og þeir voru hvað hag-
stæðastir í hverju landi.
Tvennt vekur einkum athygli.
Annars vegar eru raunvextir mjög
mismunandi eftir löndum og hins
vegar geta þeir verið mjög mismun-
andi frá ári til árs í einstöku landi.
Frá árinu 1986 hafa raunvextir
lækkað' úr 5.5% í Japan í 2.1% og
úr 6.4% í Bandaríkjunum í 2.9%,
en í þessum löndum eru raunvextir
einna lægstir um þessar mundir.
Raunvextir hafa hins vegar hækkað
úr 7.0% í Danntörku í 9.0%, úr
6.6% í 10.5% á Spáni og úr 3.3% á
Nýja Sjálandi í hvorki meira né
minna en 17.4%, en þar munu
raunvextir vera hæstir. Sveiflurnar
geta verið mun meiri ef litið er til
lengri tíma og t.d. voru
”bestukjararaunvextir” í Banda-
ríkjunum 9-10% á árunum 1981 og
1982.
Lög um vexti
Samkvæmt lögum um Seðlabanka
er gert ráð fyrir frelsi til vaxta-
ákvarðana, en þó með tveimur undan
tekningum.Stjórnvöldum er leyfi-
legt að grípa inn í vaxtaákvarðanir
annars vegar ef vaxtamunur inn- og
útlána reynist vera of mikill að
þeirra mati og hins vegar ef raun-
vextir reynast vera hærri hér en í
helstu viðskiptalöndunum. Fyrri
varnaglinn er væntanlega settur
með það fyrir augum að banka-
stofnanir geti ekki tekið sig saman
um að auka ágóða sinn óhóflega á
kostnað viðskiptavina sinna.
Ástæðulaust er hins vegar að hafa
Efni: Raunvextir: Svipaðirhérog erlendis 1-3
Hagvöxtur framleiðni
og fiskstofnar 3-4
Raunvextir í ýmsum löndum
-bestu kjör-
1984 1985 1986 1987
Bandaríkin 7,9 6,4 6,4 2,9
Bretland 4,3 6,6 6,9 6,0
V-Þýskaland 5,4 6,3 7,7 5,4
Frakkland 5,1 6,7 7,0 6,2
Japan 3,5 3,9 5,5 2,1
Kanada 8,1 6,1 6,1 4,8
Danmörk 7,9 10,5 7,0 9,0
Finnland 4,0 5,5 5,1 4,1
Noregur 6,9 6,5 5,0 -
Svlþjóö 3,3 8,8 8,6 6,5
Belgía 8,5 9,0 9,5 7,1
Holland 3,8 5,4 7,0 5,0
Sviss 2,5 3,6 5,3 3,6
Italía 7,5 7,9 7,1 8,4
Irland 8,3 8,7 9,9 4,8
Austurríki 5,9 6,5 8,2 5,3
Portúgal 5,2 11,9 9,5 10,9
Spánn 5,5 5,4 6,6 10,5
Ástralía 8,3 8,0 8,5 9,3
Nýja Sjáland -1,2 6,2 3,3 17,4
Heimild: Seðlabanki íslands.