Vísbending - 08.06.1988, Page 1
YIKURIT UM
VIÐSKIPTIOG
EFNAHAGSMÁL
22.6 8.JÚNÍ1988
ÁFRAM
ÓVISSA UM
VERÐ-
BÓLGU
Pegar hagfrœðingar eru spurðir um
verðbólguhorfur á Islandi er ekki óal-
gengt að þeir nefni œði mismunandi töl-
ur. Svo mikil er óvissan yfirleitt í efna-
hagsmálum, að ekki þykir tiltökumál
þótt einn hagfrœðingur spái 10% verð-
bólgu á meðan annar spáir 30% verð-
bólgu eða þaðan af meira. Hér á landi
getur óvissubilið hlaupið á tugum pró-
scnta á sama tíma og í flestum löndum
þykir það vera léleg spá, sem skeikar
um meira en eitt prósentustig.
Það er vissulega hœgara sagt en gert
að útbúa efnahagsspár fyrir ísland.
Engu að síður getur það skipt sköpum
fyrir bœði fyrirtœki og einstaklinga að
hafa sœmilega raunhœfar hugmyndir
um starfsskilyrði þeirra í nánustu fram-
tíð. Ef stjórnvöld megna ekki að tryggja
stöðugt verðlag, hlýtur nœst besti kost-
urinn að vera sá, að geta rétt til um verð-
lagssveiflurnar.
Verðbólguspár á íslandi
Hefðbundnar verðbólguspár á ís-
landi byggja í aðalatriðum á tveimur
þáttum. Annars vegar á launum og
hins vegar á gengisþróun. (Þar fyrir
utan taka þær einnig með í reikninginn
erlenda verðbólgu, og oftast er þá mið-
að við verðbólguspá fyrir OECD lönd-
in að meðaltali). Það er þess vegna
skiljanlegt, að fáir treysti sér til að spá
nokkru um verðbólgu áður en kjara-
samningar liggja fyrir og áður en stefna
stjórnvalda í gengismálum er Ijós.
Stundum hafa svona spár ekki reynst
illa. En það er líka ntjög oft sem þær
hafa brugðist hrapalega. Vanalega hef-
ur þá annað hvort launaþróun verið
vanmetin, eða þá að gengisstefnan hef-
ur ekki reynst sú sem ætla mátti. Ný-
legt dæmi um verulagt vanmat verð-
bólgu á grundvelli opinberra
kjarasamninga eru verðbólguspárnar
sem gerðar voru í upphafi ársins 1987.
Þá spáðu flestir, sem á annað borð fást
við gerð slíkra spáa, verðbólgu á bilinu
8-12% á árinu. Þegar upp var staðið
reyndist verðbólgan hins vegar vera
25% og var þó ekki gengisbreytingum
til að dreifa.
Þegar línur fóru að skýrast varðandi
kjarasamninga fyrir þetta ár, var ekki
laust við að menn færu varfærnislegar
en áður í spádómana. Ríkisstjórnin var
þó ekki af baki dottin og í kjölfar efna-
hagsaðgerðanna í lok febrúar s.l., þeg-
ar gengið hafði verið fellt um 6%,
reiknaði hún með 15% verðbólgu frá
upphafi til loka ársins, sem þýddi að
verulega myndi draga úr verðbólgu-
hraðanum þegar líða tæki á árið. Ef að
líkum lætur voru væntingar um verð-
bólgu á þessum tíma þó tæplega undir
Verðbólguspár á nýjum grunni
Á vegum Vísbendingar hefur um
nokkurt skeið verið unnið að gerð
verðbólgulíkans og gefa bráðabirgða-
niðurstöður til kynna, að afgerandi
samband sé á milli kaupbreytinga,
gengisbreytinga og verðbólgu. Á hinn
bóginn virðist sem launa- og gengis-
breytingar skili sér hægar út í verðlagið
á seinustu árum en fyrr á tímum.
Áfram verður unnið að líkansmíðinni
og er ætlunin sú, að Vísbending verði
innan tíðar reglulega með verðbólgu-
spár, sem byggja á bestu fáanlegri töl-
fræðitækni.
Til að hægt sé að gera sæmilega
raunhæfa spá við íslenskar aðstæður er
þó Ijóst að afla þarf betri upplýsinga en
nú liggja almennt fyrir; annars vegar
uui aKvoröunarþætti kaups og hins
vegar um líkur á stjórnvaldsaðgerðum.
Líkur benda til að þróun kauplags ráð-
ist m.a. af stefnu stjórnvalda í peninga-
málum og ríkisfjármálum og sagan
sýnir að stjórnvöld geta fyrirvaralítið
gripið til aðgerða sem breyta verð-
bólguþróuninni í skamman tíma.
Gengisbreytingar, niðurgreiðslur,
skattaálögur og íhlutun um launasamn-
inga eru dæmi um stjórnvaldsaðgerðir
sem geta gert lítið úr spám til skamms
tíma. En það er eðlilegt að menn reyni
þá að rýna í líklegar stjórnvaldsaðgerð-
ir. Þetta mun Vísbending líka freistast
til að gera í framtíðinni, og jafnvel
gangast fyrir könnunum á viðhorfum
manna í atvinnulífinu til þessara óvissu-
þátta.
Til að byrja með eru hér settar fram
spár, sem byggja á hefðbundnu verð-
bólgulíkani, en sem miðast við mjög ó-
líkar forsendur um stjórnvaldsaðgerð-
ir. Er þetta sett hér fram aðallega í
þeim tilgangi að sýna fram á hvað
miklu getur munað eftir því hvort
gengi verður fellt eða ekki, eða þá
hvort gripið verður inn í launasamn-
inga eða ekki. Hér er eingöngu spáð
fyrir um næstu tvo ársfjórðunga,en
jafnvel á svo skömmum tíma getur
verðbólgumunurinn verið um 10% eft-
ir því til hvaða aðgerða verður gripið.
Áður en langt um líður munu síðan
birtast í Vísbendingu spár lengra fram í
tímann með vísitölur fyrir hvern
mánuð.
Efni:
• Áfram óvissa um
verðbólgu
• Nýviðhorf innan og utan
Efnahagsbandalags Evrópu
• Erlend fréttabrot
20%.
Fjögur dæmi um verðbólguspár
Fyrirárið 1988
Spá 1 % Spá2 % Spá3 % Spá 4 %
2. ársfjórðungur 24.7 24.7 24.7 24.7
3. ársfjórðungur 22.5 30.1 30.7 38.7
4. ársfjórðungur 11.9 26.4 20.2 38.2
Allt árið 21.3 27.0 25.5 31.9
Forsendar:
10% lækkun 10% lækkun
Gengi: fast fast á 3. ársfjórð. á 3. ársfjórð.
laun (rauð strik): ógild í gildi ógild i gildi