Vísbending - 15.06.1988, Side 1
VIKURIT UM
VIÐSKIPTIOG
EFNAHAGSMÁL
23.6 15. JÚNÍ1988
PORTUGAL:
HLUTFALLS-
LEGA FÁ-
TÆKIR EN
EFNAHAG-
UR FER ÖRT
BATNANDI
Árið 1987 keyptu Portúgalar vörur af
íslendingum fyrir um 5 milljarða
króna, sem samsvarar 9,4% allra út-
fluttra vara. Voru Portúgalar þá fjórðu
í röð þeirra landa sem við flytjum mest
út til, en aðeins Bandaríkin, Bretland
og V.Þýskaland keyptu meira. Það
hlýtur þess vegna að vera afar áríðandi
að vel sé fylgst með þessum mikilvæga
útflutningsmarkaði; ekki síst fyrir þá
sök að um þessar mundir eru Portúgal-
ar að ganga í gegnum mikið breytinga-
skeið. Breytingarnar standa í nánu
samhengi við aðild landsins að Evrópu-
bandalaginu, en í það gengu Portúgalar
árið 1986 ásamt Spánverjum. Hér á eftir
verður reynt að varpa Ijósi á það helsta
sem er að gerast í portúgölsku efnahags-
lífi um þessar mundir.
Mikill hagvöxtur í kjölfar aðhaldsaö-
gerða_ _____________________________
Á s.l. tveimur árum hefur hagvöxtur
verið örari í Portúgal en í nokkru öðru
landi innan Evrópubandalagsins og allt
bendir til þss að svo verði áfram á þessu
ári og jafnvel lengur. Árið 1986 var
hagvöxtur 4,3% og árið 1987 varð
hann 5%. Samhliða þessu hefur verð-
bólga síðan farið ört lækkandi. Hún var
rúmlega 25% á árunum 1983 og 1984,
en var í vor komin niður í um 8%. Og
aðrar hagtölur hafa sömu hagstæðu
söguna að segja. Atvinnuleysi hefur
minnkað úr 9% í 6,6%, óhagstæðum
viðskiptajöfnuði hefur verið snúið upp
í hagstæðan og hallinn á ríkissjóði hef-
ur minnkað talsvert.
Eins og flestar aðrar þjóðir nutu
Portúgalar góðs af lækkun olíuverðs og
lækkun vaxta á sínum tíma, en það
kom ýmislegt fleira til. í samráði við
Alþjóða gjaldeyrissjóðinn voru árið
1985 gerðar ráðstafanir til að draga úr
útgjöldum og hemja þenslu með þeim
árangri að í lok þess árs var verðbólga
komin niður fyrir 20%, jafnvel þótt
ýmsum verðlagshömlum hefði samtím-
is verið aflétt og Styrkir afnumdir. Ráð-
stafanirnar þýddu einnig að raunlaun
urðu 15% lægri en þau höfðu verið árið
1980, en miklum halla á utanríkisvið-
skiptum var hins vegar snúið upp í af-
gang.
Og áfram hefur verið stigið á brems-
urnar. Halli á rekstri hins opinbera var
árið 1987 orðinn u.þ.b. helmingi minni
en hann var árið 1984, þótt enn sé hann
mikill. (Hallinn í fyrra var um 11% af
landsframleiðslu, en hafði verið rúm-
lega 20% þremur árum áður). Aukinn
hagvöxtur á sinn þátt í þessum árangri,
en það skiptir líka máli í þessu sam-
bandi að stjórnvöld notuðu tækifærið
þegar olíuverð féll og hækkuðu skatt á
olíu. Og þá hafa óbeinir skattar hækk-
að töluvert í kjölfar virðisaukaskatts,
en upptaka virðisaukaskatts var eitt af
þeim skilyrðum sem Portúgalir urðu að
uppfylla til þess að geta gengið í Evr-
ópubandalagið.
EB ogsameiginlegi markaðurinn
Án efa á aðild Portúgala að Evrópu-
bandalaginu sinn þátt í þeim hagstæðu
breytingum sem hafa átt sér stað, og
ekki síst sá þrýstingur sem áformin um
sameiginlegan markað árið 1992 setur
varðandi skipulagsbreytingar. Hingað
til hafa Portúgalar líka þar að auki ver-
ið aðnjótandi styrkja frá Evrópu-
bandalaginu til að þeir eigi auðveldara
með að aðlaga sig breyttum aðstæðum.
Styrkirnir hafa m.a. farið í að bæta
samgöngukerfið; vegi, járnbrautir og
símakerfi, en um 30% hefur farið til
landbúnaðarmála.
Að sumu leyti hefur aðlögunin geng-
ið fljótt og eðlilega fyrir sig og í raun-
inni betur en hjá nágrönnum þeirra,
Spánverjum. Ekki er ólíklegt að það sé
vegna þess að Portúgalar voru áður
Efni:
• Portúgal: Hlutfallslega
fátækir en efnahagur
fer ört batnandi
• Efnahagsbandalag
Evrópu, annar hluti
• Erlend fréttabrot
Landsframleiðasla