Vísbending - 19.10.1988, Qupperneq 1
VIKURIT UM
VIÐSKIPTIOG
EFNAHAGSMÁL
40.6 19. OKTÓBER1988
HEFST
ALPJÓÐLEG
EFNAHAGS-
KREPPAÁ
NÆSTA ÁRI?
Dr. RagnarÁrnason
Upphaf næstu efnahagskreppu:
Álit bandarískra hagfræðinga
Undanfarin misseri hefur gætt vax-
andi taugatitrings í hinum alþjóðlega
viðskiptaheimi um framvindu efna-
hagslífsins. Núverandi hagvaxtarskeið
hefur varað óvenjulega lengi, og mið-
að við fyrri hegðun hagsveiflunnar
hefði samdráttur í efnahagslífinu átt
að hefjast fyrir löngu. Enginn efast
um, að kreppan komi. Spurningin er
hins vegar hvenær. Þeirrar spurningar
spyrja nú frammámenn í hinu alþjóð-
lega viðskipta- og fjármálalífi nú hvern
annan í ofvæni. Pað er engin furða.
Gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir
eru bundnir því, að búa sig tímanlega
undir efnahagssamdrátt. Á hinn bóg-
inn er það afskaplega kostnaðarsamt
að draga rekstrarseglin of snemma
saman.
Efnahagsstofnanir og hagfræðingar
hafa dundað sér við að spá efnahags-
kreppu allt frá árinu 1986. Slíkar spár
fengu byr undir báða vængi eftir verð-
bréfahrunið í nóvember í fyrra. 1 kjöl-
far þess komst mikill meirihluti hag-
fræðinga og efnahagsstofnana á þá
skoðun, að efnahagskreppa hæfist á
árinu 1988. Góðærið hefur á hinn bóg-
inn reynst lífseigara en flestir töldu, og
nýjustu reikningar benda til þess, að
hagvöxtur á vesturlöndum verði þrátt
fyrir allt meiri í ár en í fyrra.
Vísbendingar um yfirvofandi kreppu
Nú þegar má greina ýmis merki
þess, að það tímabil hagvaxtar í heim-
inum, sem hóf göngu sína fyrir alvöru í
Bandaríkjunum á síðari hluta ársins
1982 sé að renna skeið sitt til enda. Á
meðal vísbendinga í þessa veru má
nefna eftirfarandi:
1) Núverandi hagvaxtartímabil hef-
ur staðið í 6 ár og er þegar orðið
lengsta samfellda hagvaxtarskeið-
ið frá lokum síðari heimstyrjald-
arinnar.
2) Framleiðslugeta í ýmsum af helstu
iðnaðarsvæðum vesturlanda er nú
því sem næst fullnýtt. Þannig er
nýtingarhlutfall verksmiðja í
Bandaríkjunum og Kanada nú
með því hæsta, sem þekkst hefur á
friðartímum. Atvinnuleysi hefur
farið hraðminnkandi og skortur á
vinnuafli farinn að verða tilfinn-
anlegur.
3) Vegna mikillar eftirspurnar og lít-
illa birgða hefur verð á mörgum
þýðingarmiklum hráefnum til iðn-
aðarframleiðslu hækkað mjög á
þessu ári. M.a. hefur málmverð
hækkað um meira en fjórðung að
jafnaði. Svipaða sögu má segja
um flest önnur hráefni til iðnaðar,
þó að verðhækkun þeirra hafi ver-
ið heldur minni. Eina markverða
undantekningin frá þessari verð-
hækkanaskriðu hafa verið olíu-
vörur, en verðlækkun þeirra hef-
ur þó engan veginn vegið upp á
móti verðhækkun annarra hrá-
efna.
4) Verðbólga er farin að láta á sér
kræla á nýjan leik. Verðbólgan í
Bandaríkjunum er nú á milli 5 og
6% og hefur farið ört vaxandi á ái-
inu. Ifyrra var hún t.d. innan við
3%. Verðbólga í flestum öðrum
iðnaðarlöndum er einnig á hraðri
Efni:
• Hefst alþjóðleg efnahags-
kreppa á næsla ári?
• Umhverfismengun og ofveiði
síðari grein
« Erlend fréttabrot