Vísbending - 02.11.1988, Blaðsíða 1
VIKURIT UM
VIÐSKIPTIOG
EFNAHAGSMÁL
42.6 2. NÓVEMBER1988
ÞENSLA
MINNKAR(
KJOLFAR
HÁRRA
RAUNVAXTA
Aðliald í ríkisfjármálum lykill
að jatavægi til lengri tíma
Nú eru línur farnar að skýrast um af-
komu þjóðarbúsins á þessu ári. Skv.
spá Pjóðhagsstofnunar dregur úr lands-
framleiðslu um 1,4% frá því ífyrra, við-
skiptahalli eykst á árinu og verður 4,6%
af landsframleiðslu og halli á ríkissjóði
verður mun meiri en áœtlað var. Verð-
og launastöðvun, sem í gildi verður
seinustu fjóra mánuði ársins og liðlega
það, leiðir til minni verðbólgu á árinu
en hefði mátt œtla í Ijósi ríkissjóðshalla
og endurtekinna gengislœkkana. Engu
að síður má greina ýmis merki þess að
þensla fari minnkandi og ekki er ólík-
legt að háir vextir eigi mestan þátt í því
auk minni útflutningsverðmœta.
Merki um minni þenslu
Allt frá árinu 1985 og til skamms
tíma hefur ríkt þensluástand á vinnu-
markaði. Þetta hefur m.a. lýst sér í
tæpast merkjanlegu atvinnuleysi (í
kringum 0,5% af vinnuafli) og miklum
fjölda lausra staða (rúmlega 3% af
vinnuafli). Samkeppni fyrirtækja um
starfsfólk hefur svo knúið laun upp á
við, langt umfram það sem um var
samið í almennum kjarasamningum.
Og jafnvel þótt verðbólgan hafi verið
talsverð þá hækkuðu tekjur mun
meira. Árið 1986 hækkuðu atvinnu-
tekjur á mann um 33% að meðaltali á
milli ára á meðan verðbólga hækkaði
um 21,5%, og árið 1987 hækkuðu at-
vinnutekjur um 42% þegar verðbólg-
an hækkaði um 18,5%. Reikna má
með 25,5% verðbólgu á milli áranna
1987 og 88 og má því af þessu ráða að
við höfum verið að festast í ákveðnu
verðbólgufari (um og yfir 20%), þrátt
fyrir fyrirheit um að ná verðbólgu 'nið-
ur á það stig sem ríkir í helstu við-
skiptalöndum.
Annað merki um minnkandi þenslu
eru nýjar upplýsingar um fjölda lausra
staða og atvinnuleysi. Þjóðhagsstofn-
un lét kanna atvinnuástandið fyrir um
mánuði síðan og kom þá í ljós að fjöldi
lausra staða hafði hrapað úr tæplega
3000 í vor niður í um 500. Atvinnuleysi
hefur síðan næstum tvöfaldast frá því á
sama tíma í fyrra þótt ennþá sé það
innan við 1% af mannafla. Af viðtöl-
um við talsmenn ýmissa fyrirtækja má
einnig ráða að þeim haldist betur á
Úr þjóðarbúskapnum 1988
MINNI ÚTFLUTNINGUR1...
• Samtals vörur og þjónusta =-1,0% m.v. 1987)
[Þaraf:vörur -1,7%
Þjónusta 0,9%]
...OG HÆRRIRAUNVEXTIR2...
• Verðtryggð skuldabréf = 9,5% (5,2% '86)
• Óverðtryggð skuldabréf = 8,8% (4,3% '86)
...HAFA DREGIÐ ÚR ÞENSLU...
• Styttri vinnutími = 2-3 stundirá viku m.v.'87
• Fleiri gjaldþrot = a.m.k. þrefalt umfangsmeiri en '87
• Færri lausar stöður = 500 í haust, 3.500 i fyrra
... ÞRÁ TT FYRIR HALLA Á R/KISSJÓÐI3...
• Halli = -5.252 millj. kr.
• Hrein lánsfjárþörf = 5.973 millj. kr.
• Eftirspurnaráhrif = 2.696 millj. kr.
...OG LÆKKUN GENGIS
• 21 % lækkun á árinu
• 4% lækkun raungengis m.v. verðlag (frá 4. ársfj. '87 til 4. ársfj. ’88).
[Verð á dollar • = 47 kr. í okt. (36 kr. í jan.)
Verð á pundi = 78 kr. í okt. (67 kr. I jan.)]
1 spáfyrir '88. 2aðmeðaltalifyrstu9mán. 3 fyrstu9mán.
En nú eru ýmis merki á lofti um að
þensla fari verulega minnkandi.
Vegna verðstöðvunar verður sú álykt-
un þó vart dregin af tölum um verð-
bólgu, heldur vill bara svo til að verð-
stöðvunin kemur á tíma þegar
samdráttareinkenni eru að koma
fram. í fyrsta lagi er ljóst að vinnutími
hefur styst og má m.a. ráða það af
könnun Kjararannsóknarnefndar um
vinnutíma verkafólks og iðnaðar-
manna á fyrri hluta ársins. Skv. henni
hefur vinnutími styst um 2-4 stundir á
viku samanborið við sama tímabil í
fyrra. Af innheimtu skatta sem nú eru
staðgreiddir má einnig ráða að vinnu-
framboð hefur minnkað. Raunar er
ekki ólíklegt að fleira komi til en minni
efnahagsumsvif, því einmitt stað-
greiðslukerfi skatta gæti út af fyrir sig
leitt til minni yfirvinnu.
starfsfólki og að mikið hafi dregið úr
launaskriði. Og enn ein vísbendingin
um minni þenslu er svo aukning gjald-
þrota, en til marks um umfang þeirra
eru útgjöld ríkissjóðs vegna ríkisá-
byrgðar á launum vegna gjaldþrota. Á
fyrstu níu mánuðum ársins greiddi rík-
issjóður 70 milljónir króna vegna
slíkra ríkisábyrgða, en aðeins 30 millj-
ónir í sama skyni árið 1987.
Eíni:
• Þensla minnkar í kjölfar
hárra raunvaxta
• Þyngri skuldabyrði
í vændum
• Erlend fréttabrot