Vísbending - 14.12.1988, Page 1
VIKURIT UM
VIÐ8K1PTIOG
EFNAHAG8MÁL
49.6 14. DESEMBER1988
ÞYNGRIOG
FLÓKNARI
SKATT-
HEIMTA
Ríkisstjórnin hefur nú kynnt hug-
myndir sínar um viðbótarskatta sem Al-
þingi mun taka afstöðu til á nœstu dög-
um. Ljóst er að heildarskattar munu
þar með aukast verulega og kerfið verða
flóknara. I hugmyndunum felast að
ýmsu leyti róttœkar breytingar frá þeirri
stefnu sem mörkuð hefur verið hér á
undanförnum árum og sem tók mið af
alþjóðlegri þróun. Höfuðeinkenni
hennar er einmitt einföldun skattkerf-
anna og lœkkun skattprósenta.
Áform ríkisstjórnar______________________
Það er víða komið við í nýrri tekju-
öflunarherferð ríkisstjórnarinnar.
Vörugjald, sem nýlega var einfaldað
og lækkað í 14%, á skv. hugmyndun-
um að verða þrefalt (10%, 20% og
25%) og fellur m.a. á nýja vöruflokka.
Almennt skatthlutfall tekjuskatts ein-
staklinga á að hækka og sömuleiðis
persónuafsláttur og barnabætur.
Tekjuskattur á fyrirtæki á að hækka
og dregið verður úr ýmsum frádráttar-
heimildum þeim til handa; eigna-
skattshlutfall á að hækka og verður nú
tvískipt í stað eins áður; skattur á versl-
Aðgerðir og áform stjórnvalda í skattamálum:
■ Vörugjald: Hækkun og fjölgun skatthlutfalla.
■ Tekjuskattur einstaklinga: Hækkun skatthlutfalls,
persónuafsláttar og
barnabóta.
■ Tekjuskatturfyrirtækja: Hækkun skatthlutfalls, og fækkun
frádráttarheimilda.
■ Eignaskattur: Hækkun skatthlutfalls og nýtt skattþrep.
■ Skattur á verslunar-og skrifstofuhúsnæði: Framlenging og
hækkun.
■ Gjald af erlendum lántökum: Framlenging.
■ Skattaráfjárfestingarsjóði: Til jafns við bankastofnanir.
■ Virðisaukaskattur: Upptöku frestað.
unar- og skrifstofuhúsnæði verður
framlengdur og hækkaður; gjald af er-
lendum iántökum, sem búið var að
lofa að fellt yrði niður um næstu ára-
mót, verður framlengt; Fallið verður
frá upptöku virðisaukaskatts á næsta
ári og fjárfestingarsjóðir verða skatt-
lagðir til jafns við aðrar bankastofnan-
ir.
Að undanskildum skatti á fjárfest-
Eflli:
• Þyngri og flóknari
skattheimta
• Ríkisfjármál: Þenslan
heldur áfram
• Erlend fréttabrot