Vísbending


Vísbending - 06.11.1992, Page 1

Vísbending - 06.11.1992, Page 1
V Viku ISBENDING r i t um viðskipti og efnahagsmál 6. nóvember 1992 44. tbl. 10. árg. Háir vextir rýra hag banka og sparisjóða Um áttatíu milljóna króna tap varð af rekstri Islandsbanka fyrstu átta mánuði ársins. Búast má við að halli verði á rekstri bankans á árinu í heild, en í fyrra varð lítils háttarhagnaður. Athygli vekur að almennur rekstrarkostnaður hefur lækkað um 13% að raungildi frá fyrra ári. Hins vegar hefur framlag í afskrifta- sjóð útlána hátt í tvöfaldast en það var um það bil milljarður króna fyrstu átta mánuði ársins. Þá var nýlega skýrt frá því að Búnaðarbankinn hefði verið rekinn með 26 miiljóna króna tapi fyrstu átta mánuði árs. Það var einkum skýrt með auknu framlagi til afskriftareiknings útlána. Almennur rekstrarkostnaður hefur þó lækkað hjá bankanum og vonast er til að hann verði „réttu megin við strikið“ á árinu, eins og í fyrra. Segja má að þessar niðurstöður séu dæmigerðar fyrir rekstur banka og sparisjóða undanfarin ár. Kostnaðurvið daglegan rekstur fer minnkandi, meðal annars vegna sameiningar banka. A hinn bóginn er sífellt meira lagt til hliðar vegna tapaðra útlána og það hefur orðið Arðsemi bankastofnana fer minnkandi vegna aukinna framlaga í afskriftasjóði. Heimildir: Eigin útreikningar, reistir á j ársskýrslum bankaeftirlits Mynd 1. Raunvextir útlána og lántökugjöld b. & spsj. (vinstri), framlag í afskriftasjóð (% útlána og ábyrgða, hægri), 1992 spá Heimildir: Ársskýrslur bankaeftirlits, eigin útreikningar. Myndin sýnir þá vexti, sem færðir eru til tekna í bókhaldi, en þeir eru jafnan lægri en álagðir vextir. til þess að afkoma bankastofnana hefur versnað. Raunvextir útlána banka og sparisjóða hafa hækkað nær samfellt undanfarin ár. Hagvöxtur hefur verið lítillsíðan 1988og greiðslugetalánþega hefur því ekki aukist til jafns við vextina. Þess vegna hefur gjaldþrotum fjölgað og lánastofnanir súpa nú seyðið af því. Bankar og sparisjóðir lögðu um tvo og hálfan milljarð króna til hliðar vegna útlánaáhættu í fyrra, en alls var afskriftaframlag bankastofnana og lánasjóða atvinnuvega nálægt níu milljörðum króna 1991. Vextir fara hækkandi Raunvextir banka og sparisjóða hækkuðu um mitt ár í fyrra, en lækkuðu svo aftur framan af ári 1992. Þó er útlit fyrir að raunvextir verði að meðaltali 1 - 2% hærri á líðandi ári en 1991. Hér er því spáð að raunvextir útlána banka og sparisjóða að viðbættum lántöku- gjöldum verði að meðaltali urn 12% á árinu. Mynd 1 sýnir þróun raunvaxta útlána banka og sparisjóða frá 1984. Vextimir hafa hækkað ár frá ári með tveimur undanlekningum. Ovenjulága vexti 1987 og 1989 má að nokkru leyti skýra með því að of lágar verðbólguspár réðu vöxtum á óverðtryggðum útlánum. Lántökugjaldi er bætt við vextina á myndinni. Gjaldið hefur hækkað undanfarin ár og er nú ríflega 1 % útlána á ári að meðaltali. í ágúst 1984 voru vextir banka og sparisjóða gefnir frjálsir að mestu leyti og hækkuðu raunvextir talsvert í framhaldi af því. Meginástæða hækkandi vaxta er þó hallarekstur ríkissjóðs sem hefur verið samfelldur allt frá 1985 (sjá 41. tölublað). Undanfarin ár hefur útgáfa húsbréfa einnig ýtt raunvöxtum upp á við. Stefnt er að því að innlendar lántökur ríkis, sjóða og ríkisfyrirtækja minnki heldur 1993, en ekki er óhætt að treysta því að sú verði raunin. Stefnt er að því að koma upp vísi að gjaldeyrismarkaði á komandi ári, en þá geta Islendingar keypt erlend langtímaverðbréf að vild. Vera kann að að stjómvöld þurfi að beita sér fyrir vaxtahækkunum til þess að koma í veg fyrir fjármagnsflótta og til þess að verja gengi krónunnar. Allt bendir að minnsta kosti til þess að vextir verði háir enn um stund, hagvöxtur lítill og gjaldþrot tíð. Mat endurskoðenda ráði framlagi í afskriftasjóð Eins og komið hefur fram hér á undan leggja lánastofnanir fé í varasjóði til þess að standa straum af töpuðum útlánum og ábyrgðum sem falla á þær. Stærð sjóðanna sýnir hve mikið er talið að tapist. Um síðastliðin áramót vom slrkir varasjóðir sem svarar 3% útlána og ábyrgða banka og sparisjóða hér á landi. Hlutfallið var hæst hjá Islandsbanka, • Vextir og staða banka • Samdráttur í iðnaði • Gengi krónunnar • Hlutabréf

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.