Vísbending - 19.12.1994, Síða 19
Framtíðin
Bill Gates hefur tekist að skapa fyrirtæki
sem skrifar einhver aðgengilegustu og öflug-
ustu forrit sem framleidd eru fyrir tölvur. Það
er öllum ljóst sem nota PC-tölvur að Micro-
soft hefur náð því stigi að vera sambærilegt
við Apple Macintosh í notendaviðmóti. Marg-
ir telja að með næstu útgáfu af Windows
stýrikerfinu, Windows 95, verði Microsoft
endanlega búið að tryggja sér markaðinn all-
an. Aðeins hörðustu sérvitringar muni nota
önnur stýrikerfi.
Þótt enginn neiti því að Microsoft búi til
öflug forrit þá óttast margir að fyrirtækið geti
orðið dragbítur á þróun hugbúnaðar í fram-
tíðinni. Þegar keppnautarnir koma með snið-
ugar nýjungar á markaðinn þá annað hvort
stelur Microsoft þeint og býður í sínum eigin
pökkum eða kaupir keppinautinn. Með þessu
móti sjá menn fram á að innan skamms verði
bara eitt fyrirtæki á markaðinum sem eitthvað
kveður að. Keppinautarnir verði að semja við
Gates, hvort sem þeim líkar betur eða verr.
Fyrirtækið IBM, sem sleit samstarfinu við
Gates eins og áður sagði, hefur nú orðið að
óska eftir samstarfi urn Windows 95. Reyndin
er sú að Windows hefur að minnsta kosti tíu
sinnum meiri útbreiðslu en OS/2. Það er
ekkert grín að keppa við fyrirtæki á borð við
Microsoft þar sem hagnaður fyrir skatta er um
30% af tekjum, sem á ári eru um 325 rnillj-
arðar!
Nýlega hafa borist fregnir af því að Gates
hyggist færa út kvíarnar með því að setja upp
mikið gervihnattanet sem verði grunnur að
fjarskiptasamskiptum í framtíðinni. Hann er
nýbúinn að semja við stjómvöld í Kína um
Windows-kerfið. Aður hafði hann lagt undir
sig Japansmarkað. Microsoft hefur hal'ið sókn
inn á heimilistölvumarkaðinn með því að
skrifa og kaupa ýmiss konar hugbúnað, til
dæmis fjármálaforrit fyrir einstaklinga, leikja-
og kennsluforrit.
Menn geta ekki varist því að hrífast af
afrekum þessa unga manns en á sama tíma
heyrast sífellt fleiri raddir sem óttast að fyrir-
tæki hans nái einokunaraðstöðu. En meðan
samkeppnin er enn við lýði geta tölvunotendur
um allan heim glaðst yfir stöðugt nýrri og
betri forritum frá Microsoft.
Aðalheimild við fyrri hluta þessarar greinar er
bókin Hard Drive eftir Wailace og Erickson.
Gleðilegjól
ogfarsœlt
komandi ár!
ÍSLENSK
ENDURTRYGCINC HF.
FJÖLNIR
sveigjanleiki er forsenda árangurs
STRENGUR hf.
- í stöðugri sókn
VÍSBENDING
19