Vísbending - 09.02.1995, Side 4
ISBENDING
S v a r t
Hagtölur LB-r,
frá fyrra tbl.
Fjármagnsmarkaður Verðtryggð bankalán 8,3% 08.02
Óverðtr. bankalán 10,9% 08.02
Lausafjárhlutfall b&s 12,5% 12.94
Húsbréf, kaup (ný. flokk.) 5,93% 08.02
Spariskírteini, kaup (5-ára) 5,50% 08.02
M3 (12 mán. breyting) 2,2% 12.94
Þingvísitala hlutabréfa 1022 08.02
Fyrir viku 1024
Raunáv.-3 mán. 3%
- ár 24%
Lánskjaravísitala 3.396 02.95
spá m.v. fast gengi, 3.400 03.95
og ekkert launaskrið 3.406 04.95
3.456 05.95
3.473 06.95
Verðlag og vinnumark. Framfærsluvísitala 172,3 02.95
Verðbólga- 3 mán. 3,8% 02.95
-ár 1,7% 02.95
Framfvís.-spá 172,6 03.95
(m.v. fast gengi, 173,1 04.95
ekkert launaskrið) 173,6 05.95
174,1 06.95
Launavísitala 133,8 01.95
Árshækkun- 3 mán. 2% 01.95
-ár 1% 01.95
Kaupmáttur-3 mán. -0,6% 01.95
-ár -0,2% 01.95
Skorturávinnuafli 0,0% 09.94
fyrir ári -0,6%
Atvinnuleysi 5,6% 12.94
fyrir ári 6,4%
Gengi (sala) Bandaríkjadalur 67,5 08.02
fyrir viku 67,2
Sterlingspund 104,7 08.02
fyrir viku 107,1
Þýskt mark 44,0 08.02
fyrir viku 44,6
Japansktjen 0,680 08.02
fyrir viku 0,682
Erlendarhagtölur Bandaríkin
Verðbólga-ár 2,7% 12.94
Atvinnuleysi 5,4% 12.94
fyrir ári 6,4%
Hlutabréf (DJ) 3.941 08.02
fyrir viku 3.834
breyting á ári 0%
Evróvextir-3 mán. Bretland 6,3% 06.02
Verðbólga-ár 2,9% 12.94
Atvinnuleysi 8,6% 12.94
fyrir ári 9,8%
Hlutabréf (FT-SE 100) 3.069 08.02
fyrir viku 2.985
breyting á ári -10%
Evróvextir-3 mán. Þýskaland 6,8% 06.02
Verðbólga-ár 2,3% 01.95
Atvinnuleysi 8,2% 12.94
fyrir ári 8,1%
Hlutabréf (DAX) 2.090 06.02
fyrir viku 2.035
breyting á ári 0%
Evróvextir-3 mán. Japan 5,0% 06.02
Verðbólga-ár 0,7% 12.94
Atvinnuleysi 2,8% 12.94
fyrir ári 2,8%
, Hlutabréf-ár -8,7% 31.01
V J
Minni afskriftaframlög
bæta hag Islandsbanka
Hagnaður varð af rekstri Islandsbanka
áárinu 1994aðupphæðum 185 milljónir
króna. Þetta er mikill viðsnúningur frá
árinu 1993, en þá var bankinn rekinn með
um 654 milljóna króna tapi. Bent er á
þennan umtalsverða árangur, eins og það
er orðað, í frétt frá Islandsbanka.
Þegar að er gáð kemur í ljós að afkonru-
batinn stafar fyrst og fremst af lægra
framlagi í afskriftasjóð útlána. Islands-
banki lagði verulegarfjárhæðir í afskrifta-
sjóð á árinu 1993, eða 2.204 milljónir
króna, en á síðasta ári var samsvarandi
upphæð 1.341 milljón króna. Framlagið
lækkaði því um 863 milljónir. Hagur
bankans batnaði hins vegar um 839
milljónir króna og er því ljóst að afkoma
af almennum rekstri versnaði milli ára.
-----------♦---♦----♦------
Talsvert minni verð-
bólga en í ESB
Framfærsluvísitalanfyrirfebrúarmán-
uð reyndist 172,3 stig og hækkaði um
0,1% frá janúar samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá Hagstofunni. Þetta er nokkru
minni hækkun en gert var ráð fyrir í
síðustu verðbólguspá Vísbendingar og
stafar frávikið einkum af bensínverðs-
lækkun olíufélaganna og verðlækkun á
nýjum bílum. Matar- og drykkjarvörur
hækkuðu hins vegar um tæp 2% sem
getur gefið til kynna að áhrifa aukinnar
eftirspurnar að undanförnu sé farið að
gæta að einhverju rnarki í verðlagi.
I frétt Hagstofunnar er birtur saman-
burður á verðlagi hér og í ríkj um Evrópu-
sambandsins. Samkvæmt honum hækk-
aði neysluvöruverð í ESB um 3,1 % milli
desembermánaða 1993 og 1994. A sama
tíma voru verðlagsbreytingar hér á landi
einungis um 0,5%.
-----♦---♦----♦------
/
Ovenjumikil hreyfing á
hlutabréfamarkaði
Alls átlu sér stað viðskipli með hluta-
bréf á Verðbréfaþingi Islands og Opna
tilboðsmarkaðinum fyrir um 354 millj-
ónirkrónaíjanúarsl. Þetta eru mun meiri
viðskipti en venja er í þessum mánuði
eftir jólavertíðina á hlutabréfamarkaði í
desember. I janúar 1994 námu hluta-
bréfaviðskipti l.d. aðeins um 23 millj-
ónum króna. Af einstökum félögum var
mest hreyfing á bréfum í Islandsbanka,
Olíufélaginu og Flugleiðum í síðasta
mánuði. Aukin viðskipti nú má eflaust
rekja til meiri bjartsýni meðal fjárfesta
um afkomu fyrirtækja á síðasta ári.
Stórauknar erlendar lán-
tökur ríkissjóðs 1994
Halli á rekstri ríkissjóðs á greiðslu-
grunni nam um 7,4 milljörðum króna á
síðasta ári samkvæmt fréttatilkynningu
frá fjármálaráðuneytinu. Þetta er um 2,2
milljörðum króna lægri fjárhæð en gert
var ráð fyrir í fjárlögum og má einkum
rekj a til um 5Vi millj arðs króna tekj uaukn-
ingar vegna meiri umsvifa í efnahagslífi,
en gjöld fóru um 3,2 milljörðum fram úr
fjárlögum. Frá árinu 1993 jukust tekjur
um 4,1% að raungildi, þar af skatttekjur
um 3,7%, og gjöld um tæp 2%.
Mikil aukning lánsfjárþarfar hjá ríkis-
sjóði á síðasta ári og fjármögnun hennar
vekursérstaka athygli. Aðfrádreginnium
7,3 milljarða króna lánveitingu til Bygg-
ingasjóðs ríkisins vegna erfiðleika hans
við sölu húsnæðisbréfa var heildar-
lánsfjárþörfin um 23,1 milljarður króna,
en samsvarandi tala var 16,6 milljarðar á
árinu 1993. Skýrist þelta eingöngu af
mikilli aukningu í afborgunum af lánum,
en erlendar afborgarnir jukust um tæpa
8,2 milljarða króna og innlendar um 1,5
milljarða milli ára. Alls voru tekin ný
erlend lán að upphæð um 20,5 milljarðar
króna á síðasta ári, en innlendar lántökur
námu um 10 milljörðum. Erlendar lán-
tökur hafa ekki verið jafn nriklar, frá árinu
1986 a.m.k.
------♦---♦----♦------
Seðlabankinn hækkar
vexti
Seðlabanki fslands hækkaði vexti í
endurkaupaviðskiptum við innlánsstofn-
anir um 40 punkta sl. mánudag (6.
febrúar). Eftir hækkunina eru 10 daga
endurkaupavextiráríkisvíxlum6,7%,en
endursöluvextir 5,4%. Með þessu er
bankinn að bregðast við hækkun skamm-
tímavaxta í útlöndum, en bæði bandaríski
seðlabankinn og Englandsbanki hækk-
uðu vexti um 50 punkta í síðustu viku.
Seðlabankinn hækkaði ávöxtunar-
kröfu sína á þriggja mánaða ríkisvíxlum
á Verðbréfaþingi úr 6,69% í 7,06%, eða
urn 37 punkta, á föstudaginn 3. febrúar.
Hækkunin kom í kjölfar víxlaúlboðs
Lánasýslunnar daginn áður sem fól í sér
nokkra hækkun vaxta. Eftir þessar breyt-
ingar eru peningamarkaðsvextir hér á
landi orðnir nokkru hærri en á helslu
fjármagnsmörkuðum erlendis.
Ritstj.ogábm.: SverrirGeirmundsson.
Útg.: Talnakönnun hf., Borgartúni 23, 105
Rvík. Sími: 561 -7575. Myndsendir: 561 -8646.
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskól-
ans. Umbrot: SverrirGeirmundsson. Prentun:
Steindórsprent-Gutenberg. Upplag: 600
eintök. Öll réttindi áskilin. Rit þetta má ekki
afrita með neinum hætti án leyfis útgefanda.