Vísbending - 19.12.1995, Side 4
ólahuavekja
J
Nú nálgast tími uppgjörs í fyrirtækjum. Hjá
einstaklingunum er líka uppgjörstími. A þeim
jólum er senn ganga í garð munu margir hugsa
til síðustu jóla og minnast stunda sem þeir áttu
með sínum. Þetta gerum við allflest um hver
jól. Jólin 1995 verða mörgum mjög erfið,
þeim sem hafa misst vini, ástvini, systkin,
börn, maka eða annan nákominn á þessu ári
sem er nú að líða.
Árið 1995 hófst nánast með einu mann-
skæðasta slysi sem sögur fara af á þessu landi,
snjóflóðinu í Súðavík. Á dögum þeirra hörm-
unga óraði engan fyrir því að annað mann-
skæðara snjóflóð ætti eftir að falla á Flateyri á
þessu sama ári. Og á milli þessara snjóflóða
fórust óvenju margir í öðrum slysum. Af þeim
koma upp í hugann flugslysið þar sem þrír
ungir menn létu lífið, rútuslys og mörg fleiri.
Já, jólin 1995 og áramótin 1995-’96 verða
mörgum erfið og þung. Margir munu gráta.
En af hverju á jólum? Vegna þess að jólin
eru sá tími sem er sérstaklega helgaður því
sem skiptir raunverulegu máli í lífi okkar.
Jólin segja okkur frá því, að sá einstaki
atburður gerðist í mannkynssögunni að Guð
kom í heiminn í líkingu manns. Hann kom til
þess að gefa mönnunum nýja möguleika, nýja
von.
Jólin eiga erindi við alla og sérhver sá sem
heyrir boðskap þeirra hlýtur að taka afstöðu.
Þau eru ekki eins og fluga sem svífur hjá í
hunangsleit. Jólin eru að sönnu gleðinnar tími
enda er boðskapur þeirra kallaður fagnaðar-
erindi. Þau eru fagnaðarerindi sem kemur eins
Séra Karl V. Matthíasson
og Ijós og hlýja í hjörtu þeirra sem syrgja,
kvíða og örvænta. Þeir sem nema staðar við
jötuna og gagntakast af boðskapnum: „Yður
er í dag frelsari fæddur,“ hljóta huggun og von
sem breytast mun í fögnuð um síðir. Þetta
jólaljós mun leiða þá, sem hafa það fyrir
vitann sinn, í þráða höfn. Þannig eru jólin
sveiflutími tilfinninga og trúar.
Jólin eiga erindi við alla - boðskapur þcirra
er ekki einungis huggun hinum sorgbitnu
heldur felst einnig í honum krafa, áskorun til
okkar um nýtt líf, nýjan lífsmáta. Þau eru
áskorun um að enginn einasti þurfi að fæðast
til engra verka, engra dáða. Þau eru áskorun
unt að slagsíða þjóðarskútunnar verði rétt af
áður en henni hvolfir. Jólin eru áskorun um að
allir á þessari skútu leggi hönd á ár og að allir
hafi frelsi og möguleika til sjálfstæðis. - Sjálf-
stæðs lífs í verkum huga og handar.
Ef notað er svokallað stofnanamál má
segja að hin fyrstu jól séu ný aðgerð Guðs í
málefnum heimsins. Með því að hann kom í
heiminn, sem lítið barn, er lagt var í jötu,
gerðist einstakur atburður. Mennirnir fengu nú
ráðgjafa, undraráðgjafa (það er eitt af heitum
hans í ritningunni). Kirkja hans hér á jörð er
því besta ráðgjafarfyrirtækið, þar sem ráðgjöf-
in og boðskapurinn er: Sannleikur, heiðarleiki,
kærleikur - einlægur vilji um góðan hag og
velferð þeirra sem með oss ganga á leiðinni
frá vöggu til grafar. Kærleikurinn, heiðarleik-
inn og drengskapurinn veita mjög hagstæða
ávöxtun.
Boðskapur jólanna er gjörtækur. Hann lýsir
jafnvel upp dimmustu skúmaskot heimsins -
hvort sem þau eru í huga manns eða annars
staðar.
Allt frá fyrstu jólunum hafa hundruð þús-
unda fyrirtækja verið stofnuð, en flest þeirra
eru nú aflögð. En Orð Guðs sem kom þá í
heiminn varir um eilífð og frelsar þig ef þú
tekur á móti því. Ef þú aðeins leyfir Jesú
Kristi að ganga inn í hjarta þitt og gera þig
nýjan.
Guð gefi þér gleðileg jól og farsælt kom-
andi ár.
Karl V. Matthíasson,
sóknarprestur í Grundarfirði.
4
VÍSBENDING