Vísbending - 19.12.1995, Síða 14
30. mars
Stefnan frá Viðey
Lof
Stjórnin hefur komið með nýjar áherslur í
hagstjórn, hjálpað atvinnulífmu til að hjálpa
sér sjálfu í stað fjárausturs og pólitískra
afskipta. Viðreisn atvinnulífs hefur falist því
að eyða arfleifð verðbólgutímans, firrtum
kostnaði á öllum sviðum, með stöðugleika,
skattalækkunum, auknu frjálsræði í viðskipt-
um, samkeppni, lækkuðu raungengi og hag-
stæðum milliríkjasamningum.
Last
Stjórnina hefur skort hugdirfð til þess að
takast á við hagsmunahópa, nokkuð vantar á
hugsjónaeld og stefnufestu og lítt bólar á
kerfisbreytingum á íslensku hagkerfi. Ríkis-
fjármál hafa verið í nokkrum ólestri, skulda-
söfnun gífurleg, skattar hafa hækkað á al-
menningi og niðurskurður handahófskenndur
eða flatur, í stað þess að forgangsraða.
Fráfarandi ríkisstjórn var helgað heilt blað
vikuna fyrir kosningar
30. mars
Aðrir sálmar - Fógetinn í
Nottingham á ferð?
Skattrannsóknarstjóri lét þess nýlega getið
í útvarpi að þeir sem kæmu til athugunar hjá
honum gætu gert ráð fyrir að verða refsað.
Sjónarmiðinu um sakleysi þar til sekt er sönn-
uð er varpað fyrir róða.
6. apríl
Fé í festum
Eins og fram kemur á myndinni, spáir Vís-
bending 20% aukningu í bílainnflutningi og
7% aukningu f fjárfestingu á þessu ári, 1995.
Ymsum kann að finnast að hér sé djarflega
reitt til höggs ...
24. apríl
Annaðhvort afturábak, ellegar ...
Hvítbók haustið 1991 vakti hörð viðbrögð
stjórnarandstöðu á sínum tíma og þótti argasta
frjálshyggja. Nýja stefnuskráin byggir á
nánast sömu forsendum og gengur lengra á
sumum sviðum. Það sýnir að íslensk stjórn-
mál hafa þroskast mikið á seinustu árum,
hagstjóm hefur færst í nútímalegra horf, en
hérlendir stjórnmálamenn hafa lengi leyft sér
að hundsa viðtekin hagfræðilögmál með alls
kyns pólitískum tilvísunum. Það sem helst er
saknað úr stefnuyfirlýsingunni er ákveðnari
stefna í einstökum málaflokkum.
Nýja ríkisstjórnin og sáttmáli hennar fengu
umfjöllun í blaði sem kom út daginn eftir að
stjórnin tók við.
4. maí
Aðrir sálmar - Sjávarútvegsstefna
Morgunblaðsins
Kjósi Morgunblaðið eitl þriggja: auðlinda-
gjald, sóknarmark eða heftingu á framsali, þá
gott og vel, en þetta eru ósamrýmanlegir hlutir
sem ekki er hægt að styðja alla í einu.
19. maí
Vinna og verkalýður
ASI og VSI eru bæði mjög miðstýrð sam-
tök sem stunda vfðtækt verðsamráð og geta
sveigt markaðinn fram og til baka. Verka-
lýðsforingjar hafa haldið því fram að fyrir-
tæki í sumum atvinnugreinum megi ekki ræða
við starfsmenn sína nema viðstaddur sé varð-
hundur frá atvinnurekendum til að hindra að
samið sé um meira en opinber stefna sam-
takanna segir til um. Þessu hefur einnig verið
snúið upp á verkalýðshreyfinguna sem sé illa
við samninga fjarri sinni launastefnu.
VSI sagði upp Vísbendingu sama dag og
þessi grein birtist.
19. maí
Aðrir sálmar - Hættuspll bæjarfélaga
í umræðum á Akureyri sögðu þekktir menn í
viðskiptalífi bæjarins hins vegar að koma yrði
í veg fyrir þá ósvinnu að utanbæjarmenn
eignuðust meirihluta í fyrirtækinu. Litið var
framhjá því að ef Akureyrarbær seldi sinn hlut
utanbæjarmönnum þá kæmi milljarður króna
inn í bæjarfélagið, fbúum til hagsældar. Til
lengri tíma er heppilegast fyrir heimamenn að
bæjarfélög noti hvorki fjárkúgun, gerræði né
mútur til þess að hafa áhrif á viðskipti
fyrirtækja. Sá leikur fælir frá fyrirtæki, fjár-
magn og loks vinnuna sem hann á að vernda.
26. maí
Hvernig má lækka jaðarskatta?
Þór Sigfússon
1) Aðafnema tekjutengingu vaxtabóta, húsa-
leigubóta og barnabótaauka og hinn sk. há-
tekjuskatt
2) Hægt er að draga úr háum jaðarsköttum
með því að koma á skattfrelsi sparnaðar.
3) Loks má draga úr bótakerfinu og lækka
skatthlutfall á móti.
Með þessum breytingum lækkuðu jaðar-
skattar fjölskyldna með meðallaun úr allt að
60-80% niðurí 15%.
2. júní
Aðrir sálmar - Nýfundið
Nýfundnaland
En hvf þetta ósætti og deilur? Hver á fætur
öðrum skrifar samanherptur í blöðin gegn
þeim sem gera gull úr sjávarfangi og skapa
þjóðinni gjaldeyristekjur. Af skrifunum má
ráða að sjávarútvegur eigi að vera atvinnu-
bótavinna, byggðaviðvera eða Iitið er á sókn-
armark sem leið til þess að moka upp fiski
framhjá ráðleggingum fiskifræðinga.
10. júní
Aðrir sálmar - Hagkvæmni í Ijósriti
Fyrir nokkrum árum, kannski meira en áratug,
settu alþingismenn lög til þess að vernda
höfundarrétt. Lögin segja efnislega að ef
menn afrita verk með kerfisbundnum hætti
þá beri þeim að greiða eiganda efnisins fyrir.
Nokkrum árum eftir að lögin tóku gildi var
alþingismönnum boðið að fá rit í áskrift í
Ijósriti frá bókasafni þingsins. Þessi þjónusta
mun þó ekki hafa náð til barnabóka.
Eftir að þessi grein birtist hœtti Ijósrit af
Vísbendingu að liggja frammi í Seðlabank-
anum.
23. júní
Pitsu-áhrifin
En hörð samkeppni um viðskiptin sér til þess
að engin makráð hugsun getur læðst að pitsu-
sölunum, ekkert lát getur orðið á tilboðunum
og enginn þorir að hækka verðið. Þeir sem
fylgjast ekkert með tilboðum og eru kannski
sæmilega fjáðir fá pitsurnar á uppsettu verði,
en þeir sem horfa í krónurnar og fylgjast með
fá hana með afslætti sem getur orðið allt að
30-40%. Þetta vill Vísbending kalla pitsu-
áhrifin; ekki er lengur eitt verð í gildi, hömlu-
laus samkeppni ríkir og vandi er að segja
hvaða áhrif hækkun á einum kostnaðarlið
hefur á markaðsverð.
23. júní
Hvað er hæfilegt atvinnuleysi á
íslandi?
Sigurður Jóhannesson
I nokkrum löndum Vestur-Evrópu hefur verið
reynt að „dreifa atvinnuleysinu" með því að
setja reglur um hámarkstíma á ári. Ennfremur
hefur ellilífeyrisaldur verið Iækkaður. Við
þetta lækkar atvinnuleysishlutfall um tíma á
pappírnum, en líklegt er að það sæki fljótt
aftur í sama far. Eftir stendur að auk atvinnu-
leysis sem fram kemur í opinberum tölum er
nú komið lögþvingað atvinnuleysi.
Greinarnar í þessu blaði voru hrikaleg
frjálshyggja, varð fonnanni Dagsbrúnar að
orði.
30. júní
Markaður og miðstýring
Gauti B. Eggertsson
An þess að nóbelsskáldið hafi gert sér grein
fyrir því komst hann að kjarna þess í þessari
ræðu af hverju kommúnisminn endaði með
ósköpum. Vandamálið er að kommúnisminn
gerir þá kröfu til manna að þeir séu jafnsið-
ferðislega staðfastir, góðir, gegnir og gjaf-
mildir og kristnir menn í munkaklaustrum.
Hver maður líti á sig sem órofa hluta af stórri
heild en ekki sjálfstæðan og frjálsan ein-
stakling með eigin markmið. Kommúnisminn
gerði einfalda kröfu um grundvallarbreytingu
á mannlegri hegðun og siðferðislegum við-
horfum mannsins. f ljós kom að sú krafa var
óraunhæf.
Ein af verðlaunagreinum úr samkeppni
meðal háskólanema.
7. júlí
Innlánsstofnanir 1994
Minni afskriftir, en afkoma er
svipuð
Pólitík og lánaviðskipti fara hins vegar illa
saman og miklir íjármunir hafa glutrast niður.
Þó ber ekki að skilja það svo að hægt sé að
kenna pólitík um öll útlánatöp f bankakerfinu,
en t.d. Islandsbanka hefur heppnast að tapa
drjúgum þótt ekki hafi hann notið pólitískrar
leiðsagnar. Hins vegar er það skilyrði þess að
bankarnir, sem önnur fyrirtæki, séu reknir á
viðunandi hátt að til staðar séu eigendur sem
geri skýra kröfu um arðsemi.
21. júlí
Á að fella gengið?
Þó krónan virðist styrk í bráð, er staðan frem-
ur tvísýn í lengd. Þjóðin er ásótt af draugum
fortíðar, erlendum skuldum og vanburða at-
vinnulífi, og ef ekkert happ kemur í hendi er
útlitið fremur dökkt. Þennan vanda geta ís-
lensk stjórnvöld leyst með slröngum aga í fjár-
og peningamálum eða með gengisfellingu
með hliðaraðgerðum. Og miðað við reynslu
fyrri ára er seinni lausnin líklegri.
14
VÍSBENDING