Vísbending - 16.05.1997, Blaðsíða 4
ISBENDING
Framhald afsíðu 2
Útlánaáhætta
Ef skoðuð er skipting útlána þessara
sjö innlánsstofnana niður á einstakar
atvinnugreinar þá kemur í ljós að stærstu
bankarnir taka nokkra áhættu með of
miklum lánum. Heildarútlán þessara sjö
innlánsstofnananemaum 88% af heildar-
útlánum allra innlánsstofnana og um 35 %
af heildarútlánum alls lánakerfisins hér á
landi. Tafla 2 sýnir grófa skiptingu út-
lána viðskiptabankanna þriggja sem hlut-
fall af heildarútlánum títtnefndra sjö
stofnana til viðkomandi atvinnugreinar.
Það kemur ekki á óvart að Landsbankinn
hefur mikla hlutdeild í lánunt til sjávar-
útvegsfyrirtækja
og ekki kemur
heldur á óvart að
Búnaðarbankinn
lánar mikið til
landbúnaðar. A
það ber þó að líta
að áhættan af svo
einhliða lánveit-
ingum er nokkur.
Ef niðursveifla
kemur í sjávarút-
vegi þá þarf
Landsbankinn sennilega að sætta sig við
greiðsludrátt og jafnvel tap en þegar upp-
s veifla er þá fær bankinn engar aukatekjur
heldur aðeins þá vexti og þóknanir sem
honum bar. Með öðrum orðum þá ber
bankinn áhættuna þegar illa gengur en
nýtur ekki góðs af því þegar vel gengur.
Það verður þó ekki frant hjá því litið að
vegna smæðar efnahagskerfisins þá er
vart við því að búast að hægt sé að dreifa
áhættu án þess að rekast á slíka veggi.
Tengd fyrirtæki
Bankakerfið á Islandi er langt komið
miðað við þær aðstæður sem víða
ríkja. Þetta þekkja þeir sem hafa þurft að
skipta tékka frá einum banka í öðrum t.d.
í Bandaríkjunum. Tíminn sent slíkt tekur
Vísbendingin
Komið hefur fram í fréttum að Reuters
býðurþjónustu sem birtir beint upp-
lýsingar frá Verðbréfaþingi íslands. Þess-
arupplýsingareru lifandi, þ.e. uppfærast
um leið og viðskipti verða. Asamt upp-
lýsingunum frá Verðbréfaþingi eru einn-
ig birta lifandi upplýsingar frá öllum
kauphöllunum á Norðurlöndum. Þar að
auki eru ýmsar helstu upplýsingar frá öðr-
um mörkuðum heimsins birtar með 15
mínútna töf. Einnig fylgir með í pakkan-
um hugbúnaður til úrvinnslu upplýsing-
anna. Kostnaðurviðeinn skjáerumþrjá-
tíu þúsund krónur á mánuði en viðbótar-
^skjáir eru ódýrari.___;
er mikill, að ekki sé talað um kostnaðinn.
Hér á landi er Reiknistofa bankanna
hjartað í bankakerfinu. Því skiptir engu
hvort tékki er frá þessum bankanum eða
hinum, jafnauðvelt er yfirleitt að skipta
honum og kostnaðurinn er óverulegur.
Þótt þarna hafi tekist vel til verður þó að
gæta þess að slík samvinna hamli ekki
samkeppni t.d. ef nýr íslenskur banki eða
erlendur hyggst reyna sig á markaðinum
hér. Tryggja verður að aðgangur þeirra
að þeirri þjónustu sem reiknistofan veitir
sé opinn. Sameign viðskiptabankanna og
sparisjóðanna á greiðslukortafyrirtækj-
unum er ekki jafnsjálfsögð. Sú þjónusta
sem þau bjóða er samkeppnisþjónusta og
ólíklegt er að um virka samkeppni verði
að ræða þegar tvö fy rirtæki eru á markaði
og bæði eru í eigu sömu aðila, jafnvel
þótt eignarhlutdeild sé mismikil í hvoru
fyrirtæki.Mál eraðbankarogsparisjóðir
skipti þessum fyrirtækjum upp og ákveði
hvorum megin hryggjar þeir vilja liggja.
Dótturfyrirtæki
Flestofangreindarafjármálafyrirtækja
reka hluta af starfsemi sinni undir hatti
dótturfyrirtækja. Sum þeirra eru arfleifð
frá fyrri tíð en önnur hafa verið stofnuð
af hagkvæmnisástæðum. Afkoma verð-
bréfafyrirtækja og fjármögnunarleigu-
fyrirtækja var góð á síðasta ári. Þessi af-
koma flyst sem hlutdeild í hagnaði til
móðurfélaganna og á ekki lítinn þátt í
bættri afkontu þeirra á síðasta ári. Sumar
innlánsstofnanir hafa stofnað rekstrar-
félög sem ætlað er að yfirtaka erfið lán
og koma fasteignum í verð. En slík mál
vinnast seint og þarf yfirleitt að sinna
sérstaklega. Rekstrarfélög Landsbankans
eru Hörnlur hf., Reginn hf. og Rekstrar-
félagið hf. Ekki er með beinum hætti hægt
að lesa afkomu þessara fyrirtækja úr árs-
reikningi bankans. Grænibær, rekstrar-
félag Búnaðarbankans, tapaði tæpum
fimm milljónum króna á síðasta ári og
var það meginhluti eigin fjár fyrirtækis-
ins. Búast má við að með batnandi efna-
hagsástandi og aukinni eftirspurn eftir
atvinnu- og íbúðarhúsnæði fari verulegir
fjármunir að skila sér til baka til móður-
félaganna.
Heimildir: Ársreikningar inniánsstofnana og
Hagtölur mánaöarins.
( N
Aðrir sálmar
Framleiðni á Alþingi
Enn eru alþingismenn að Ijúka þing-
störfummeðnæturvinnuaðgömlum
íslenskum sið. I þinglokrennafrumvörp-
in í gegn á færibandi, stundum án þess að
gefist hafi nægur tími til þess að lagfæra
margt það sem betur mætti fara. Þetta
vinnulag getur því orðið til þess að ekki
sé vandað nægilega til verka, en á sama
tíma getur það gefið stjórnarandstöðu
óeðlileg völd til þess að stöðva mál með
því að halda uppi málþófi á síðustu dög-
um þingsins. Jafnframt verður þessi
hamagangur til þess að sum mál eru ekki
afgreidd vegna tímaskorts. Betra skipulag
og takmörkun á ræðutíma getur dregið
úr því að leggja þurfi fram sömu mál á
þingi eftir þing. Norðmenn hafa tamið
sér mun agaðri vinnubrögð að þessu leyti
og munu leggja áherslu á að leggja fram
dagskrá fyrirfram þar sem tekið er frant
h vaða má verði rædd á hverj um þingdegi.
Mikilvæg mál fá langan tíma til umfjöll-
unar. Til dæmis mun heilum tólf tímum
hafa verið eytt í EES-málið! Ekki skal
dregið úr því að vinnubrögð hafi batnað
á Alþingi á undanförnum árurn og oft er
ráðherrum, sem leggja mál seint fram,
fremur en þingmönnum um að kenna.
Það væri þó stórt stökk framávið að lak-
marka ræðutíma almennt og leggja þar
áherslu á gæði fremur en magn, sem
vissulega væri nýjung í þingsögunni.
Mikil eftirspurn
s
Igrein Þórs Sigfússonar í 17. tbl. Vís-
bendingar bendir hann á að nú gæti
verið heppilegt að setja annan ríkisbank-
anna á hlutabréfamarkað en með því ynn-
ist tvennt, annars vegar kæmist raunveru-
leg hreyfing á einkavæðingu og einnig
væri aukið framboð hlutabréfa á markaði
en þar virðist vera mikil þörf fyrir ný
fyrirtæki. Af þessu getur sennilega ekki
orðið því að samþykki Alþingis þarf fyrir
sölu hlutabréfa ríkisins og það er ekki á
dagskrá. Þótt hugsanlegt sé að Viðskipta-
ráðherra nýti sér ákvæði um aukningu
hlutafjár þá tekur það væntanlega tölu-
verðan tíma og þá kann þetta tækifæri að
vera runnið út í sandinn.
V____________________________
Ritstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri og
ábm., Benedikt Jóhannesson. Útg.:
Talnakönnun hf., Borgartúni 23, 105 Rvík.
Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Internetslóð:http://www.strengur.is~talnak/
vief95.html, netfang:talnak@strengur.is
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskól-
ans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700
eintök. Öll réttindi áskilin. Ritið má ekki
afrita án leyfis útgefanda.
Tafla 2. Hlutdeild viðskiptabanka af útlánum sjö
stærstu innlánsstofnana til einstakra atvinnugreina
Landshankinn Islandsbanki Búnaðarbankinn
Landbúnaður 28% 10% 62%
Sjávarútvegur 60% 29% 8%
Verslun 42% 20% 23%
Iðnaður 34% 28% 25%
Þjónusta 21% 23% 40%