Vísbending - 29.01.1999, Side 4
ISBENDING
Framhald af síðu 1
verslunarvöru á höfuðborgarsvæðinu
kann að vega þyngra í buddunni þegar
horft er á öll útgjöld fjölskyldu. Þótt
búið sé að greina þá þætti sem valda
neikvæðri afstöðu til búsetu á lands-
byggðinni (meðal þeirra sem þar búa)
þá er ekki þar með sagt að sömu atriði
eigi við um þá hópa sem gætu verið að
velta fyrir sér að flytja úl á land. For-
senda númer sjö um að ný byggðastefiia
muni leiða til flóðbylgju fólks út á
landsbyggðina er álíka vafasöm og hinar
forsendumar og er þá ekki tekið djúpt í
árinni.
Eitthvaðfyriralla
Það er lítt umdeilt að fólk eigi að geta
valið sér búsetu eftir því sem það
vill en spumingin er hversu miklu púðri
eigi að eyða til að halda fólki á stöðum
sem það vill ekki eiga heima á. Er ekki
kominn tími til að styrkja lífvænlega staði
en jafnframt að hætta að lappa sífellt
upp á smástaði sem ekki eiga sér lífs-
von? Það er sagt beint og óbeint á nokkr-
um stöðum í skýrslunni að árangur af
staðbundnum björgunaraðgerðum síð-
ustu áratugi hafi enginn verið. Stundum
er þörf á aflimun ef bjarga á lífi. Núver-
andi stefna virðist ekki beinast að neinu
sérstöku átaki, nema ef vera skyldi að
því að reyna að bjarga með peninga-
austri jaðarsvæðum á heljarþröm.
Raunveruleg stefna
Það er ljóst að sú byggðastefna sem
boðuð er í þingsályktunartillögunni
miðar að því að móðga engan en hún
gerir samt engum til geðs. Æskilegt væri
að flokka byggðarlög landsins með
hlutlægum aðferðum og ákveða í fram-
haldi af því hversu lífvænlegar þær eru.
Síðan mætti hugsanlega styrkja þá sem
vilja flytja úr dauðvona þyggðum og
veita fé til atvinnuþróunar í hinum sem
eiga sér einhverja lífsvon. Byggða-
kjamahugmyndin er sennilega eina von
landsbyggðarinnar. I sterkum byggða-
kjömum er gmndvöllur fyrir uppbygg-
ingu þjónustu og menningar sem höfðar
til þeirra sem þar vilja búa. Það hefúr
sýnt sig á undanförnum áratugum að
björgunaraðgerðir hafa sjaldnast náð
markmiði sínu þegar til lengri tíma er I itið
en kostnaðurinn hefur oft verið ótæpi-
legur. Stjómvöld eiga völina hvort þau
vilja leiðaþessa þróun og reyna að stýra
þvi hver útkoman verður eða hvort þró-
unin verður af sjálfri sér. Flótti af lands-
byggðinni er löngu brostinn á, spurn-
ingin er einungis hvort undanhaldið eigi
að vera skipulagt eða hvort ringulreið
muni ríkja. Byggðastefnan sem kynnt
er í þingsályktunartillögunni virðist því
miður hneigjast að síðari valkostinum.
Aðgerðir í byggðamálum
Nýsköputt i atvinnulifmu
1. Aukiti fjölbreytni atvinnulífs á landsbyggð-
inni. Þróunarstofur verði efldar og grund-
völlur nýsköpunar og fjölbreytni treystur.
2. Lánastarfsemi Byggðastofnunar verði rek-
in á arðsemisgrundvelli.
3. Komið verði á eignarhaldsfélögum með
aðild Byggðastofnunar. Framlagtil þessarar
starfsemi verði allt að 300 milljónir króna
á hverju ári.
4. Grípa má til sérstakra aðgerða á afmörk-
uðum svæðum þar sem veruleg röskun
verður á atvinnuháttum og búsetu.
5. Fjárfestingar í samgöngum verð örvaðar.
6. Opinberum störfum fjölgi hlutfallslega jafnt
á landsbyggð og á höfuðborgarsvæðinu.
7. Stóriðja verði staðsett utan atvinnusvæð-
is höfuðborgarinnar.
8. Fram fari greining á möguleikum einslakra
landshluta.
Menntun, þekking, menning
9. Menntun á landsbyggðinni verði stórefld.
1 0. Auknu fé verði varið til hvers konar menn-
ingarstarfsemi.
I 1. Ríkisfjölmiðlar efli slarfseini á landsbyggð.
Jöfnun lífskjara - bcett samkeppnisstaða
12. Unnið verði að lækkun kostnaðar við hit-
un íbúðarhúsnæðis.
1 3. Gert verði átak í uppbyggingu vega á jaðar-
svæðum.
14. Heimilt verði að selja félagslegt íbúðarhús-
næði þar sem offramboð er á því vegna
fækkunar íbúa.
15. Stefnt verði að auknuni hlut sveitarfélaga
í opinberum rekslri.
16. Kostnaður samfélagsins vegna byggðar-
þróunar verði metinn.
Bœtt umgengni við landið
17. Atak til að stöðva landeyðingu.
1 8. Sveitarfélög vcrði aöstoðuð við gerð fram-
kvæmdaráætlunar í umhverfismálum.
19. Atak til umhverfisbóta vegna aukinnar
ferðamennsku.
20. Rannsökuð verði langtímaáhrif stofnvega
á miðhálendinu.
21. Lögð verði áhersla á að hraða gerð staf-
rænna korta fýrir landið.
ATH. Aðgeröirnar eru umoröaöar og þvi ekki
samhljóma þingsályktunartillögunni________
Aðrir sálmar
Tölvu- og verkfræðiþjónustan hefur
hafið útgáfu vikulegs tímarits um
tölvumál og er það í sama broti og Vís-
bending. Af fyrstu tölublöðum má ráða
að í Tölvuvísi verði smáfréttir af hinum
ýmsu vígstöðvum upplýsingabylting-
arinnar, hvort sem er á sviði tölvubún-
aðar, hugbúnaðar eða fjarskiptabúnað-
ar. Að auki eru í blaðinu viðtöl við ýmsa
sem starfa í þessum geira atvinnulífsins.
Tímaritið er selt í áskrifl og kostar þriggja
mánaða áskrift 3.300 krónu.
Götígrunninum
Rári Stefánsson læknir hefur að und-
anfömu fjallað um andstöðu við
gagnagrunn sinn í DV. Mánudaginn 25.
janúar segir Kári: „Lewontin [sem skrif-
aði gagnrýna grein í New York Times um
gagnagmnnsmálið] er þekktur fyrir öfga
og hann barðist gegn sameindalífíræði á
sínum tima og hélt hún væri til bölvunar.
[...] Hann hefiir barist gegn líftækniiðn-
aðinunt og heftir haldið því fram að það
leiddi til spillingar að búa til verðmæti úr
þekkingu. [...] Hann hefur barist gegn
því að erfðaefni sé notað til þess að kom-
ast að niðurstöðum í dómsmálum [...] Ég
þekki ekkert til þessa manns ..."
Miðvikudaginn 27. j anúar segir Kári íDV:
„Tómas Zoega [yfirlæknir á geðdeild
Landspítalans] hefur gengið ansi hvasst
fram í gagnrýni sinni á þennan gagna-
gmnn eins og gagnagmnnsfrumvarpið
áður. Af hvaða ástæðum það er veit ég
ekki. Það er raunar ekki mitt að tj á mig um
það þar sem ég hef ekki aðgang að innstu
leyndarmálum í huga Tómasar.“
Nöfn eru ekki trygging
Það er alþekkt í fyrirtækjum erlendis
að keppst er við að fá þekkta menn til
þess að sitja í stjómum fyrirtækja. Til
dæntis sat Gerald Ford, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, í stjómum ýmissa fyrirtækja.
Almennt bar mönnum saman um að hann
hefði verið atkvæðalítill en engu að síður
skreytti hann stjómimar og vakti eflaust
virðingu og traust viðskiptavina. Það
sarna gildir um ýmsa aðra fræga menn,
eftirþeim er sóst í góðgerðasamtök, félög
ogfyrirtæki, oftþannigaðþeirþurfi aðeins
að Ijá nafn sitt. Hamborgarakeðjan Planet
Hollywood hampar til dæmis frægum
leikurum sem aðaleigendum,þóttþeireigi
aðeins lítinn hlut. Viðvera þeirra við ýmis
tækifæri dregur að viðskiptavini. Þeir ljá
þvi nafii sitt sem auglýsingu. Þeir sem
skipta við fyrirtæki eða fjárfesta í þeim
mega aldrei setja traust sitt um of á það
að í stjórn sitji þekktir einstaklingar eða
að stór fýrirtæki séu hluthafar. Það eitt er
engin trygging fyrir því að stjómamienn
geri eitthvað. Jafhframt verða menn að
gæta þess vel hverjum þeir lána nafn sitt
til skreytingar og ættu aldrei að gera það
Vnema þeir ætli að vera virkir,____
(Ritstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri 'ög'
ábyrgðarmaður., Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23,
105 Reykjavík.
Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang:visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvisindastofnun Háskólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin.© Ritið má ekki afrita án leyfis
^útgefanda.______________________^
4