Vísbending


Vísbending - 05.02.1999, Side 4

Vísbending - 05.02.1999, Side 4
ISBENDING Springur Intemetblaðran? Hækkun á verði hlutabréfa í Intemetiyrirtækjum hef- ur verið ótrúlega mikil síðustu mánuði. Margir hafa af þessu áhyggjur og minnast ým- issa ævintýra sem orðið hafa í fjárfestingum allt frá tímum túlí- pananna í Hollandi seint á 16. öld. Fjárfestar hafa réttlætt við- skiptin með því að þeir séu að ljárfesta í framtíðarbyltingu og eru jafnframt að vona að þau íyrirtæki sem hafa verið í fremstu víglínu verði jafnokar Microsoft eftir nokkur ár. Menn horfa gjaman á að búist er við að um 40 milljónir bandarískra heimila verði „tengd“ árið 2003 ef spár ganga eftir. Nokkur atriði spilla draumsýninni, m.a. hefur hagnaður þeirra fyrirtækja sem mest hafa vaxið verið lítill og í tilfelli Amazon bókaverslunarinnar hefur að- eins verið um tap að ræða síðustu ár þótt það hafa minnkað í áranna rás. Sam- keppnin er einnig mikil því að mörg hefð- bundin fyrirtæki eru við það að hefja verslun á Intemetinu. í dag er álagningin á netinu mun minni en í hefðbundnum verslunum og því er ósennilegt Intemet- fyrirtækin nái meiri hagnaði þótt þau losni við einhverja þá rekstrarliði sem önnur fyrirtæki þurfa að kosta til, svo sem íburðarmiklum verslunarbygging- um. Eins og sjá má á myndinni hér ofar á síðunni er verulegur munur á verð- hækkun hlutabréfa þeirra þriggja fyrir- tækja sem mest hafa verið í sviðsljósinu og annarra hlutafélaga eins og þau eru mældmeð S&P 500 vísitölunni. Um tíma var markaðsvirði Amazon metið um 30 tnilljarðar Bandaríkjadala og var það meira en markaðsvirði Texaco olíufyrir- tækisins. Viðvörun Seðlabankastjóri Bandaríkjanna Alan Greenspan sá sérstaka ástæðu til að vara við því æði sem hefúr verið í gangi og líkti því við happadrætti þar sem möguleikarnir á vinningi væru einn á móti mi 1 lj ón. T íminn á síðan eftir að leiða í ljós hvort tekið verður mark á þessari viðvörun. Heimildir: Economist, CNN Framhald af síðu 2 Upplýsingar og samskipti Stjómendur þurfa að fá áreiðanlegar og viðeigandi upplýsingar til að geta stjómað rekstri. Vinnuferli geta leitt til þess að fjöldi starfsmanna hefur aðgang að gögnum og til þess að upplýsingar sem áður skiluðu sér beint til stjórnenda hafa hugsanlega farið um hendur margra starfsmanna áður. Starfsmenn verða að þekkja þá ábyrgð sem þeir bera á tiltekn- um þáttum í innra eftirliti. Samskipti verða að vera með þeim hætti að starfsmenn geti komið upplýsingum um veilcleika í innra eftirliti á ffamfæri við stjómendur. Samtímaeftirlit Sífellt þarf að iylgjastmeð innra eftirliti og meta hvort þær aðgerðir sem not- aðar em séu viðeigandi eða hvort ein- hverjar nýjar aðstæður breyti þar um. Ef eftirlitið er stöðugt er minni þörf á sér- stökum úttektum. Hægt er að meta innra eftirlit með því að bera saman upplýs- ingar sem eiga sér ólíkan uppmna. Upp- lýsingar frá utanaðkomandi aðilum ættu að vera samhljóða upplýsingum sem verða til innan íyrirtækisins. Kvartanir viðskiptavinar geta gefið til kynna brota- lamir. Fara þarf yfir villuboð úr upplýs- ingakerfúm og ábendingar um skráning- ar gagna. Bera ætti saman eignaskrár og kanna misræmi sem kann að koma fram. Stundum getur verið heppilegt að gera sérstakarúttektirátilteknum þáttum innra eftirlits og er þá er hægt að nota ýmsar aðferðir, gátlista, markmiðslista, flæðirit, mælingar og beinar prófanir. Einnig má beita samanburði við önnur fyrirtæki. Ef ffam kemur veikleiki í innra ef'tirliti þarf'að bregðast við slíku. Stundum koma veik- leikar ff am þegar tj ón verður og þá þarf að endurmeta viðkonrandi eflirlitsaðgerð og lagfæra ef þörf er á. Getur skipt sköpum Þótt innra eftirlit sé í sumra huga sam- þætt við starfsemi fyrirtækis getur verið gagnlegt að skoða það sem skipu- legt ferli sem sé fonnlegt og þar með opinber hluti af rekstri. Þau atriði sem tínd hafa verið til úr riti Ríkisendurskoð- unar eiga við um fleiri en rikisstofnanir og fýrirtæki og geta verið góður grund- völlur að skipulegu innra eftirliti. Heimild: Innra eftirlit, Ríkisendurskoðun.desember 1998. Glæsilegursigur? Eftirprófkjör Samfylkingar í Reykjavík er ljóst að ólíklegt er að hún muni fylgja þeiiTÍ frjálslyndisstefhu sem fleytt hefur krataflokkum til valda í Bretlandi og Þýskalandi. Reyndar má segja að R- listinn í Reykjavík byggi á svipaðri hug- mynd þar sem fundinn var frambærilegur leiðtogi sem ekki er bundinn í gamlar vinstrikreddur. Það hefur í tvigang nægt listanum til sigurs þrátt fyrir aö listinn hafi ekki verið sterkur að öðru leyti. Sam- fylkingin velur hins vegar vinstrimann af gamla skólanum til forystu. Þetta er þeim mun athyglisverðara að Jóhanna leiddi Þjóðvaka úr svipuðu fylgi og Sam- fylkingin hefúr nú samkvæmt skoðana- könnunum, eða 25-30%, í um 7% í kosn- ingum fyrir fjórum árum. I kosningabækl- ingum sem bárust í hvert hús í Reykjavík fýrir prófkj örið mátti sj á að J óhanna hafði leitað til ímyndarsmiða íýrir myndatöku. Kannski fær stefnan líka nútímalegra yfirbragð fýrir kosningar. Girðingar og múrar Girðingar og vandræðagangur Kvennalistans vekja menn til um- hugsunar um lýðræði í prófkjörum. Það er vissulega svo að alls ekki er ástæða til þess að flokkar bindi sig við prófkjör fýrir kosningar. Til dæmis var Ingibjörg Sólrún, borgarstjóri, ekki skipuö í sæti á framboðslista samkvæmt prófkjöri. En þegar tvö- til þrjú hundruð atkvæði nægja til þess að fíeyta mönnurn (þ.m.t. konum) inn á þing þá hljóta menn að efast um að reglumar séu eðlilegar. Sér- réttindi kvennalistakvenna eru hvorki þeim né öðrum konuin til framdráttar. Góðurhagnaður Hagnaður íslandsbanka og Fjárfest- ingabankans hefur nýlega verið kynnturog skiluðubæði fýrirtækin góðri aíkomu. Stærðargráðan af hagnaðinum varumeinnmilljarðurkrónasemermiklu ineira en menn þekktu hjá íslenskum fyrirtækjum fyrir skömmu. Eftir koll- steypur Utvegsbanka, Sambandsins og Álafoss, svo dæmi séu nefnd, hefur mönnum orðið ljóst að það er fýrirtækj- um nauðsynlegt að skila góðum hagn- aði og hafa styrka eiginfjárstöðu. Allt annað leiðir til ófamaðar eins og ffarn- angreind dæini sanna. c------------------------------- ÖRitstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri og ábyrgðarmaður., Benedikt Jóhannesson. Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23, 105 Reykjavík. Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646. Netfang:visbending@talnakonnun.is. Málfarsráðgjöf: Málvisindastofnun Háskólans. Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis ýútgefanda. / 4

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.