Vísbending - 05.02.1999, Qupperneq 4
ISBENDING
Springur Intemetblaðran?
Hækkun á verði hlutabréfa
í Intemetiyrirtækjum hef-
ur verið ótrúlega mikil
síðustu mánuði. Margir hafa af
þessu áhyggjur og minnast ým-
issa ævintýra sem orðið hafa í
fjárfestingum allt frá tímum túlí-
pananna í Hollandi seint á 16.
öld. Fjárfestar hafa réttlætt við-
skiptin með því að þeir séu að
ljárfesta í framtíðarbyltingu og
eru jafnframt að vona að þau
íyrirtæki sem hafa verið í fremstu víglínu
verði jafnokar Microsoft eftir nokkur ár.
Menn horfa gjaman á að búist er við að
um 40 milljónir bandarískra heimila verði
„tengd“ árið 2003 ef spár ganga eftir.
Nokkur atriði spilla draumsýninni, m.a.
hefur hagnaður þeirra fyrirtækja sem
mest hafa vaxið verið lítill og í tilfelli
Amazon bókaverslunarinnar hefur að-
eins verið um tap að ræða síðustu ár
þótt það hafa minnkað í áranna rás. Sam-
keppnin er einnig mikil því að mörg hefð-
bundin fyrirtæki eru við það að hefja
verslun á Intemetinu. í dag er álagningin
á netinu mun minni en í hefðbundnum
verslunum og því er ósennilegt Intemet-
fyrirtækin nái meiri hagnaði þótt þau
losni við einhverja þá rekstrarliði sem
önnur fyrirtæki þurfa að kosta til, svo
sem íburðarmiklum verslunarbygging-
um. Eins og sjá má á myndinni hér ofar
á síðunni er verulegur munur á verð-
hækkun hlutabréfa þeirra þriggja fyrir-
tækja sem mest hafa verið í sviðsljósinu
og annarra hlutafélaga eins og þau eru
mældmeð S&P 500 vísitölunni. Um tíma
var markaðsvirði Amazon metið um 30
tnilljarðar Bandaríkjadala og var það
meira en markaðsvirði Texaco olíufyrir-
tækisins.
Viðvörun
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna Alan
Greenspan sá sérstaka ástæðu til að
vara við því æði sem hefúr verið í gangi
og líkti því við happadrætti þar sem
möguleikarnir á vinningi væru einn á
móti mi 1 lj ón. T íminn á síðan eftir að leiða
í ljós hvort tekið verður mark á þessari
viðvörun.
Heimildir: Economist, CNN
Framhald af síðu 2
Upplýsingar og samskipti
Stjómendur þurfa að fá áreiðanlegar
og viðeigandi upplýsingar til að geta
stjómað rekstri. Vinnuferli geta leitt til
þess að fjöldi starfsmanna hefur aðgang
að gögnum og til þess að upplýsingar
sem áður skiluðu sér beint til stjórnenda
hafa hugsanlega farið um hendur margra
starfsmanna áður. Starfsmenn verða að
þekkja þá ábyrgð sem þeir bera á tiltekn-
um þáttum í innra eftirliti. Samskipti verða
að vera með þeim hætti að starfsmenn
geti komið upplýsingum um veilcleika í
innra eftirliti á ffamfæri við stjómendur.
Samtímaeftirlit
Sífellt þarf að iylgjastmeð innra eftirliti
og meta hvort þær aðgerðir sem not-
aðar em séu viðeigandi eða hvort ein-
hverjar nýjar aðstæður breyti þar um. Ef
eftirlitið er stöðugt er minni þörf á sér-
stökum úttektum. Hægt er að meta innra
eftirlit með því að bera saman upplýs-
ingar sem eiga sér ólíkan uppmna. Upp-
lýsingar frá utanaðkomandi aðilum ættu
að vera samhljóða upplýsingum sem
verða til innan íyrirtækisins. Kvartanir
viðskiptavinar geta gefið til kynna brota-
lamir. Fara þarf yfir villuboð úr upplýs-
ingakerfúm og ábendingar um skráning-
ar gagna. Bera ætti saman eignaskrár og
kanna misræmi sem kann að koma fram.
Stundum getur verið heppilegt að gera
sérstakarúttektirátilteknum þáttum innra
eftirlits og er þá er hægt að nota ýmsar
aðferðir, gátlista, markmiðslista, flæðirit,
mælingar og beinar prófanir. Einnig má
beita samanburði við önnur fyrirtæki. Ef
ffam kemur veikleiki í innra ef'tirliti þarf'að
bregðast við slíku. Stundum koma veik-
leikar ff am þegar tj ón verður og þá þarf að
endurmeta viðkonrandi eflirlitsaðgerð og
lagfæra ef þörf er á.
Getur skipt sköpum
Þótt innra eftirlit sé í sumra huga sam-
þætt við starfsemi fyrirtækis getur
verið gagnlegt að skoða það sem skipu-
legt ferli sem sé fonnlegt og þar með
opinber hluti af rekstri. Þau atriði sem
tínd hafa verið til úr riti Ríkisendurskoð-
unar eiga við um fleiri en rikisstofnanir
og fýrirtæki og geta verið góður grund-
völlur að skipulegu innra eftirliti.
Heimild: Innra eftirlit, Ríkisendurskoðun.desember
1998.
Glæsilegursigur?
Eftirprófkjör Samfylkingar í Reykjavík
er ljóst að ólíklegt er að hún muni
fylgja þeiiTÍ frjálslyndisstefhu sem fleytt
hefur krataflokkum til valda í Bretlandi
og Þýskalandi. Reyndar má segja að R-
listinn í Reykjavík byggi á svipaðri hug-
mynd þar sem fundinn var frambærilegur
leiðtogi sem ekki er bundinn í gamlar
vinstrikreddur. Það hefur í tvigang nægt
listanum til sigurs þrátt fyrir aö listinn
hafi ekki verið sterkur að öðru leyti. Sam-
fylkingin velur hins vegar vinstrimann
af gamla skólanum til forystu. Þetta er
þeim mun athyglisverðara að Jóhanna
leiddi Þjóðvaka úr svipuðu fylgi og Sam-
fylkingin hefúr nú samkvæmt skoðana-
könnunum, eða 25-30%, í um 7% í kosn-
ingum fyrir fjórum árum. I kosningabækl-
ingum sem bárust í hvert hús í Reykjavík
fýrir prófkj örið mátti sj á að J óhanna hafði
leitað til ímyndarsmiða íýrir myndatöku.
Kannski fær stefnan líka nútímalegra
yfirbragð fýrir kosningar.
Girðingar og múrar
Girðingar og vandræðagangur
Kvennalistans vekja menn til um-
hugsunar um lýðræði í prófkjörum. Það
er vissulega svo að alls ekki er ástæða
til þess að flokkar bindi sig við prófkjör
fýrir kosningar. Til dæmis var Ingibjörg
Sólrún, borgarstjóri, ekki skipuö í sæti
á framboðslista samkvæmt prófkjöri. En
þegar tvö- til þrjú hundruð atkvæði
nægja til þess að fíeyta mönnurn (þ.m.t.
konum) inn á þing þá hljóta menn að
efast um að reglumar séu eðlilegar. Sér-
réttindi kvennalistakvenna eru hvorki
þeim né öðrum konuin til framdráttar.
Góðurhagnaður
Hagnaður íslandsbanka og Fjárfest-
ingabankans hefur nýlega verið
kynnturog skiluðubæði fýrirtækin góðri
aíkomu. Stærðargráðan af hagnaðinum
varumeinnmilljarðurkrónasemermiklu
ineira en menn þekktu hjá íslenskum
fyrirtækjum fyrir skömmu. Eftir koll-
steypur Utvegsbanka, Sambandsins og
Álafoss, svo dæmi séu nefnd, hefur
mönnum orðið ljóst að það er fýrirtækj-
um nauðsynlegt að skila góðum hagn-
aði og hafa styrka eiginfjárstöðu. Allt
annað leiðir til ófamaðar eins og ffarn-
angreind dæini sanna.
c-------------------------------
ÖRitstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri og
ábyrgðarmaður., Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23,
105 Reykjavík.
Sími: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang:visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvisindastofnun Háskólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis
ýútgefanda. /
4