Vísbending - 12.02.1999, Síða 4
ISBENDING
Framhald af síðu 2
Hlutverk stjórnar
J Jmgjörð stjórnunar fyrirtœkja á að
C_/ tryggja að stjórn geti mótaö stefnu
og haft virkt eftirlit með framkvœmd
hettnar og að stjórn beri ábyrgð gagtt-
vart fyrirtœki og hluthöfum.
A. Stjórnarmenn eiga að taka ákvarðanir
á grundvelli nauðsynlegra upplýs-
inga, vera í góðri trú, sýna tilhlýði-
lega kostgæfni og varfærni og gæta
hagsmuna fyrirtækisins.
B. Gætaverðurað sambærilegri meðferð
allra hluthafa í stjórnarákvörðunum
sem geta haft áhrif á ólíka flokka hlut-
hafa.
C. Stjórn á að tryggja að farið sé eftir
lögum og að tekið sé tillit til hagsmuna
hluthafa.
D. Stjóm á að taka að sér ákveðin lykil-
atriði, þ.m.t. að:
1. meta stefnu fyrirtækis, meiriháttar
áætlanir, áhættustefnu, árlegar
áætlanir og viðskiptaáætlanir, setja
frammistöðu markmið, fylgjast
með framkvæmd og frammistöðu
fyrirtækis og hafa eftirlit með meiri-
háttar fjárútlátum, yfirtökum og
sölu á deildum eða fyrirtækjum,
2. velja, launa og hafa eftirlit með
lykilstjórnendum og ef nauðsyn
ber til að leysa þá undan starfs-
skyldum ásamt því að skipuleggja
endurráðningu,
3. ákveða laun stjórnenda,
4. hafa eftirlit með og grípa inní mögu-
lega hagsmunaárekstra stjórn-
enda, stjórnarmanna og hluthafa,
t.d. vegna misnotkunar eigna fyrir-
tækis eða óeðlilegra viðskipta
tengdra aðila,
5. tryggja áreiðanleika kerfa sem sjá
um reikningsskil og upplýsinga-
gjöf um fjárhagsmálefni, þ.m.t.
óháða endurskoðun og viðeigandi
eftirlitskerfi, sérstaklega kerfi sem
fylgjast með áhættu, fjárhagseftir-
liti og löghlýðni,
6. fylgjast með gæðum stjórnunar-
aðferða sem notaðar eru og stuðla
að nauðsynlegum breytingum eftir
því sem þörf er á og
7. hafa eftirlit með upplýsingamiðlun
og samskiptum.
E. Stjóm á að geta metið hlutlægt atriði
er varða fyrirtækið, óháð stjómend-
um.
l.Stjórn ætti að hugleiða notkun
viðeigandi fjölda stjórnarmanna
sem ekki eru jafnframt stjómendur
til að tryggja að óháð mat á málum
þar sem hugsanlegt er að upp geti
komið hagsmunaárekstrar.
2. Stjómamenn eiga að taka sér nægj-
anlegan tíma til að sinna skyldum
sínum.
F. Stjómarmenn verða að hafa aðgang
að nákvæmum, viðeigandi og tíman-
legum upplýsingum til að geta upp-
fyllt skyldur sínar.
Heimild: Draft OECD Principles of Corportae
Governance, 08/02/1999
Aðrir sálmar
Framhald af síðu 3
Athygli vekur að ef um einstakling eða
hjón er að ræða með háar tekjur sem búa
í ódýrri íbúð þá þurfa þau að búa lengi
í íbúðinni til að það borgi sig að kaupa
hana. Astæðan fyrir því er að vaxta-
bótakerfið hvetur til skuldsetningar.
Þetta er ein af skýringunum á því að
skuldir heimilana hafa vaxið.
Hversu viðkvæm er
niðurstaðan
Þegar rannsóknir hafa verið fram-
kvæmdar vaknar spurningin hvort
niðurstaðan sé viðkvæm fyrir breyting-
um á forsendum. Til að athuga þetta er
framkvæmd svokölluð næmnigreining.
Næmnigreining er gerð með því að
breyta einni forsendu en halda öðmm
föstum og athuga hvaða áhrif breyting-
arnar hafa á niðurstöðuna.
Niðurstaðan um að það sé hagkvæmara
að kaupa heldur en leigja er viðkvæmust
fyrir breytingum í húsaleigu. Ef fólk
getur leigt íbúð á lágu verði þá getur
verið hagkvæmara að leigja. Aðrar for-
sendur skipta minna máli fyrir niður-
stöðu.
Hægt er ad nálgast reiknilikanið á slóð: http://
www.hi.is/~benedip/kaupleiga.
TafJu 4. Nœmnigreining (m.v. 6.5 mkr. íbúð og 180. þkr. mán. laun)
Ef eftirfarandi liækkar um 1%: |>á vænkast hagur: um krónur:
Húsaleiga Kaupandi 98.278
Tekjur Leigjandi 16.545
Avöxtunarkrafa Leigjandi 39.105
Arleg hækkun húsnæðisverðs Kaupandi 22.888
Fjármagnskostnaður við útborgun Leigjandi 18.602
Rekstrarkostnaður fasteigna Leigjandi 4.903
Vextir húsbréfa Leigjandi 4.361
^Kaupverð Leigjandi 42.464
Búið er að dreifa möppum fyrir Vísbendingu. Ef mappa liefur ekki borist er viðkomandi
beðinn um að hafa samband við Visbendingu í síma 5617575 og verður hún þá send um hæl.
Ég vil eiga allan
heiminn
r
Aviðskiptaþingi kvartaði forsvars-
maður OZ undan því að bankar
hefðu tekið fyrirtækinu illa þegar fors-
varsmenn mættu á skrifstofur þeirra með
ekkert nema viðskiptaáætlun að vopni.
Ekkert hefði kornist að hjá bankastjór-
unum nema steypa, þ.e. steypa í hefð-
bundinni merkingu orðsins. Menn
þyrftu að setja hús að veði fyrir láni. En
ný er öldin önnur. Enginn er óhultur
fyrir kostaboðum banka, verðbréfafyrir-
tækja, fjármögnunarleiga, fjárfestinga-
banka, tryggingafélaga og annarra sem
þurfa nauðsynlega að koma peningum
í lóg. Menn þurfa ekki lengur að hafa
fyrir því að fylla út innskattsskýrslur á
Hrauninu til þess að ná sér í pening.
Nýlega hefur skotið upp kollinum ný
fjármögnunarleið. Menn þurfa einungis
að hringja í verðbréfafyrirtæki ef þeir
hafa hug á því að eignast fyrirtæki. Ef
hugmyndin er nógu stór er hún um-
svifalaust samþykkt. Fjárfestar þurfa
ekki að leggja fram eigið fé heldur fá þeir
lán fyrir ákveðnum hlut en fjárfestinga-
fyrirtækin tjármagna það sem á vantar
fyrir eigin reikning. A leifturhraða geta
menn eignast heilar fyrirtækjakeðjur og
geta vitnað í gömlu tannkremsauglýs-
inguna þegar þeir fara út: „Og svo þurfti
ég ekkert að borga.“
Þessi aðferð hefur gert ákveðna ein-
staklinga forríka víða um heim, ekki síst
í Bandaríkjunum. Hlutimir sem keyptir
eru hækka stórlega í verði meðan lánin
fara sér hægar. En hugmyndin þekkist
víðar. I Danmörku keypti trygginga-
félagið Hafnia stóran hlut í kollegum
sínum í Baltica með náin kynni í huga.
Ekkert varð úr því, hlutabréf beggja féllu
í verði og nú er hvorugt þessara stór-
velda til. Vandinn er sá að stundum fer
allt á versta veg. Bréfin sem virtust pott-
þétt fjárfesting með mikla hagræðingar-
möguleika og skjótfengin gróða reynast
lakari en vonir stóðu til. Það er mjög
gaman að standa í stórræðum og er sér-
staklega auðvelt með peninga sem mað-
ur á ekki sjálfur. Einmitt þess vegna er
það mikilvægt að eigið fé sé lagt fram,
peningar sem menn hafa efni á að tapa.
^Ritstjórn: Tómas Örn Kristinsson ritstjóri og
ábyrgðarmaður., Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Talnakönnun hf., Borgartúni 23,
105 Reykjavik.
Simi: 561-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang:visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvisindastofnun Háskólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis
^útgefanda.______________________________y
4