Vísbending - 19.02.1999, Qupperneq 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
19. febrúar 1999
7. tölublað
17.árgangur
Vaxandi orkunotkun
Framþróun í heiminum á þessari öld
hefur verið ótrúleg. Sennilega er
sama hvaða annað tímabil í sög-
unni er valið til samanburðar. Til þessa
hefur þróunin ekki verið jafn ör á jafn
stuttum tíma. Eðlilegt er að rekja uppruna
þessarar þróunar til þeirrar byltingar
sem varð er mönnum tókst að nýta afl
gufunnar til að knýja vélar fyrir230 árum.
Þótt ýmiss konar tilbúin orka hafi verið
þekkt fyrir þann tíma, t.d. vind- og valns-
myllur, urðu straumhvörfín á ofanverðri
átjándu öld og síðan hefurþróunin verið
stórstíg. Til að byrja með voru kol mikil-
vægasti orkugjafmn en á síðustu öld
hófst einnig nolkun olíu og gass lil að
knýja vélar. Þegar þekking á rafmagni
jókst komu til vatnsaflsvirkjanir sem þó
urðu ekki verulega stór orkugjafi í sam-
anburði við kol og olíu. A þessari öld er
kjarnorkan sennilega þekktasti nýi orku-
gjafínn en einnighafa augu mannabeinst
að sólarorku, vindorku og jafnvel afli
sjávarfalla.
Helmings aukning
Frá 1973 til 1996 jókst orkunotkun í
heiminum um 50% og sýnir það
hversu mikil þróun er enn í gangi. Olía
er mikilvægasti orkugjafmn og kol eru í
öðru sæti. Mynd 1 sýnir samanburð á
helstu orkugjöfum 1973 og 1996. At-
hyglisvert er hversu notkun gass og
kjarnorku hefur aukist og má það að
Tafla 1. Helstuframleiðendur, útflytjendur og innflytj-
endur olíu í heiminum (1997 og 1996 millj. tonn)
16000
14000
12000
10000
8000
6000
4000
2000
___Olía
Framlciðsluland mt Útnytjendur (1996) m t Innflytjendur (1996) mt
Sádí-Arabía 439 Sádí-Arabía 327 Bandaríkin 432
Bandaríkin 3 83 Noregur 142 Japan 225
Rússland 303 Rússland 1 26 Þýskaland 104
íran 1 82 íran 125 Kórea 100
Venesúela 175 S.A.f.1 1 00 Frakkland 84
Mexíkó 1 68 Venesúela 96 Ítalía 82
K.ína 1 60 Nigería 85 Holland 62
Noregur 1 56 Bretland 8 1 Singapúr 55
Bretland 1 28 Mexíkó 79 Spánn 55
S.A.C.1 1 20 Kúvæt 64 Bretland 51
Önnur lönd 1227 Önnur lönd 498 Önnur lönd 538
Alls 3442 Alls 1722 Alls 1788
' S.A.f. erSameinuðu Arabisku furstadæmin
miklu leyti rekja til
olíukreppanna sem
gengu yfir á áltunda
og níunda áratugn-
um. Spáð er að orku-
notkun eigi eftir að
vaxa enn og er gert
ráð fyrir að orkunotk-
un verði rúmlega
tvisvar sinnum meiri
(2,26) árið 2020 en árið
1973.
Olía er
aðalorkugjafmn
Þóttmikilvægi olíu
sem aðalorku-
gjafa heimsins hafi
minnkað um tæplega
10% á árunum 1973 til
1996, óx hráolíufram-
leiðsla samt um 20%
á þessu tímabili. Tafla 1 sýnir helstu
framleiðslulönd, útflyljendur, og inn-
flytjendur hráolíu árið 1997. Það sem
vekur sérstaka athygli er að Bandaríkin
sem eru annar stærsti olíuframleiðandi
heimsins er jafnframt stærsti innflytj-
andi olíu. Það er einnig athyglisvert að
Bretland sem er í níunda sæti yfir fram-
leiðendur og í áttunda sæti yíir útflytj-
endur er einnig á listanum yfir stærstu
innflytjendur olíu. Þetta er sérstaklega
athyglisvert þar sem aðeins er átt við
h r á o 1 í u .
Helst er olía
notuð í
tengslum
við flutn-
ingastarf-
semi og
jókst hlut-
fall olíu sem
orkugjafa í
þeirri starf-
semi úr
42,1% árið
1973í55,l%
árið 1996.
Hlutfall
oliunotkun-
ar í iðnaði
Mynd 1. Ráðstöfun orku ogspá umframtíðar-
ráðstöfun (mtoe; 1 mtoe = 11630 gvst)
1996 2010 2020
jj Kjamorka Vatnsorka^ Kol ^Annaö
dróst saman úr 26,3% áriðl973 í 19,7%
árið 1996.
Gas hefur rokið upp
Framleiðsla gass hefur aukist verulega
á síðustu árum. Árið 1973 var gas-
framleiðsla talin vera 1.233 milljarðar
rúmmetra en tuttugu og ijórum árum
síðar var gasframleiðslan talin 2.296
milljarðar rúmmetra. Árið 1973 var hlut-
deild OECD-landa af gasframleiðslu
heimsins 71% en árið 1997 var hún að-
eins 46,5%. Á sama tíma jókst hlutdeild
fyrrum Sovétríkja úr 19,6% í 28,7% og
landa í Asíu (utan OECD) úr 1,3% í 9,2%.
Hluldeild landa í Afríku og Suður-
Ameríku jókst úr 2,9% í 8,2% á þessum
tíma. Rússland eitt og sér framleiðir tæp-
lega íjórðung alls gass í heiminum og
svipaða sögu er að segja af Bandaríkj-
unum. Þrátt fyrirmikla framleiðsluflytja
Bandaríkjamenn inn gas sem nemur
3,6% af árslramleiðslunni í heiminum.
Gas er helst notað í iðnaði en hlut-
fallsnotkun þess af heildarorkugjöfum
í þeim geira dróst saman úr 57% í 43,8%
á árunum 1973 til 1996. Önnur notkun,
Framhald á síðu 2
1
Orkunotkun í heiminum
hefur aukist verulega síð-
ustu áratugi og út lit er íyrir
að notkunin
2
mum enn
vaxa á næstu árum. Olía
kologgaseruhelstu orku-
gjafar heimsins með um
90% hlutdeild af heild.
3
Þorvaldur Gylfason telur
brýnt að næsta ríkisstjóm
taki á Evrópu-, banka- og
útvegsmálum.
4
Framhald ágrein Þorvaldar
Gylfasonar um þrjú brýn
verk næstu ríkisstjómar og
lr.h. á grein um orkumál.
1