Vísbending


Vísbending - 12.03.1999, Síða 1

Vísbending - 12.03.1999, Síða 1
V V i k n ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 12. mars 1999 10. tölublað 17.árgangur Viðskiptastríð ogvemdarstefna r tökin í „bananastríðinu" á milli Evrópusambandsins (ESB) og Bandaríkjanna hörðnuðu í upphafi mánaðarins þegar Bandaríkin ákváðu að leggja ofurtolla á nokkrar vörutegundir frá Evrópu. í sjálfu sér hefur málið ekkert með þær vörutegundir að gera heldur er ofurtollurinn settur til þess að láta hart mæta hörðu í viðskiptum þjóðanna. Þema málsins eru bananar og mismunandi viðskiptaskilyrði sem viðskipti með banana af ólíkum uppruna njóta. Viðskipti með banana frá fyrrum nýlendum Frakka í Karíba-hafinu, sem evrópsk fyrirtæki dreifa, eru á betri kjörum en bananar frá Suður- og Mið- Ameríku en þeim er dreift afbandarískum fyrirtækjum. Bandaríkjamenn kærðu á sínum tíma málið til Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar (WTO) og unnu málið. Evrópusambandið hefur hins vegar nýtt sér vankanta kerfisins og dregið að framfylgja dómi stofnunarinnar og heldur uppi vemdarstefnu sinni án breytinga. Þrátt fyrir að Evrópusambandið sé greinilega að reyna að komast hjá því að spila eftir reglum frjálsrar milliríkjaverslunar eru aðgerðir þess, eða öllu heldur aðgerðaleysi, innan reglna Alþj óðaviðskiptastofnunar- innar. Bandaríkin hafa hins vegar misst þolinmæðina og ákveðið að láta hart mæta hörðu í samræmi við „Omnibus Trade and Competitiveness Act“ frá 1988 og leggja ofurtolla á evrópskar vörur í von um að geta þvingað Evrópusambandið til þess að leika eftir reglumfrjálsrarmilliríkjaverslunar. Um leið hafa þeir hins vegar sjálfir brotið reglur Alþjóðaviðskiptastofnunar- innar. r Ognandi þrýstingur Hugmyndafræðin sem Bandaríkin hafa nú beitt í bananastríðinu, að beita vemdarstefnu á vemdarstefnu til að þvinga fram frelsi í viðskiptum, er ekki ný afnálinni. Adam Smith talaði um á sínum tíma að hægt væri að beita önnur lönd þrýstingi með því að að hóta að beita vemdarstefnu gegn útflutningi þeirra. Slík hótun gæti leitt til þess að land sem beitir vemdarstefnu gæti fallið frá henni vegna þess að það væri betra fyrir hagsmuni þjóðarinnar að láta af henni en eiga hættu að hótunin yrði að veruleika. Með þessum hætti gæti vemdarstefna sem ógnun aukið velferð þjóðar. Adam Smith og aðrir hagfræðingar hafa allar götur síðan haft áhyggjur af því að þessi hugmyndaffæði myndi ekki virka, ógnunin mundi ekki minnka viðskiptahömlur heldur verða sífelld ógnun og ekki leiða til aukins frelsis í viðskiptum. Stórar og valdam iklar þjóðir gætu notað slíkar hótanir til þess að þröngva minni þjóðum til að haga utanríkisviðskiptum sínum eins og stóm þjóðunum hentar. Ein af afleiðingunum væri sjálfviljugir kvótar sem hafa í auknum mæli orðið til í samkomulagi þjóða í staðinn fyrir tolla. Um leið er þó fallið frá frjálsri verðmyndun markaðarins. Vandamálið við ákvæði eins og „Omnibus Trade and Competitiveness act“ er hættan á að vemdarstefna sem hótun nýtist ekki til að auka ávinning þjóðarinnar í heild heldur lítilla hagsmuna- og þrýstihópa. Afleiðingin verði ekki aukið l'relsi heldur að þjóðin verði af ódýrara eða betra framboði erlendis ffá. Með því að leggja ofurtolla á evrópskar vömr sem hafa ekkert með banana eða aðra ávexti að gera eru Bandaríkin nákvæmlega að þjóna litlum hagsmuna- og þrýstihópum en um leið em þau að tryggja sér samningsstöðu. Frjáls vemdarstefna rátt fyrir að skilvirkni Alþjóða viðskiptastofnunarinnar hafí ekki alltaf verið eins og best væri á kosið hefur stofnunin virkað ótrúlega vel. Siðan árið 1995 hefur stofnunin afgreitt 163 ágreiningsmál ámilli þjóða. Tollar hafa verið lækkaðir og lög um vemdun höfundaréttar hafa verið sett. Sumir eru þó á þeirri skoðun að það gangi aldrei upp að reyna að halda uppi ffíverslun og jafhvel að undanþágulaus fríverslun geti leitt til verndarstefnu frekar en að styrkja stoðir alþjóðar- verslunar. Millivegur sem nefna má gagnkvæm skipti (e. reciprocity) hefur verið nefndur sem lausn þó að enginn viti nákvæmlega hvernig hægt er að útfæra slíkt skipulag. Engu að síður er ljóst að sérhagsmunir þjóða og hagsmunahópa innan þjóða gera það að verkurn að alltaf verði fundnar einhverjar leiðir til þess að hygla heimamönnum á kostnað erlendra keppinauta (og yflrleitt á kostnað neytenda og þjóðarinnar sem heildar). Um leið og tollar hafa verið lækkaðir hafa þjóðir verið iðnar við að finna aðrar leiðir, kerfisbundnar leiðir, til þess að gera erlendum keppinautum of dýrt og erfltt að koma inn á markaðinn. Framtíð alþjóðaverslunar egar stórar þjóðir eins og Bandaríkin em famar að taka reglumar í sínar hendur er mikil hætta á þvi að þær reglur sem reynt hefur verið að mynda um alþjóðaviðskipti missi áhrif sín og minni þjóðir sjái ekki ástæðutil að fylgjareglum sem þjóna ekki þeirra hagsmunum. Þó að það sé ekki gott til afspurnar að Evrópusambandið reyni að komast undan reglum alþjóðaviðskipta þá verður það að teljast heillavænlegri lausn að fylgja einhverri millileið á milli hefðarinnar fyrir fríverslun, hefð sem má fínna í Þýskalandi og á Bretlandi og hefðarinnar fyrir vemdarstefnu, hefðar sem má finna í Ítalíu og í Frakklandi, heldur en að þrýsta svo á fríverslun að lönd taki upp harða verndarstefnu. Margir óttast einmitt að ef uppsveiflan sem hefur átt sér stað í Vestur-Evrópu fari niður á við rnuni margar þjóðir bregðast við nteð verndarstefnu sem mun auka bæði fallhæðina og fallhraðann þannig að alþjóðalegkreppayrði uppskeran. Hvort „bananastriðið“ sé upphafíð að endalokum uppsveiflu alþjóða- viðskipta, rétt eins og annars konar stríð batt enda á síðustu uppsveiflu alþjóðaviðskipta um síðustu aldarmót, getur líminn einn leitt í ljós. ^ „Bananastríðið" á milli ^ Nýsköpun er vaxtar- ^ Helgi Gestsson viðskipta- i Verðbréfaviðskipti á I Bandaríkjanna og 1 broddur sem nauðsynlegt 2 fræðingur fjallar um /| netinu hafa stóraukist á _L Evrópusambandsins tók er að hvetja ti I og lágmarka mótandi samanburð í fáeinum árum og margir alvarlega steffiu nýlega. kerfísbundnar hindranir. stefnumörkun fyrirtækja. hafa nýtt sér möguleikann.

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.