Vísbending


Vísbending - 07.05.1999, Page 1

Vísbending - 07.05.1999, Page 1
V V i k ii ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 7. maí 1999 18. tölublað 17.árgangur Framleiðni og lífskjör: Hvar stöndum við? borvaldur Gyllason prólessor Það eru skiptar skoðanir um efnahagsstöðu íslands í alþjóðasamhengi, þótt undarlegt megi virðast. Sumir telja, að Islendingar séu í þeim hópi þjóða, sem býr nú við beztu lífskj ör í heimi. Aðrir túlka tiltækar upplýsingar svo, að íslendingar séu því miður enn að súpa seyðið af óstjóm fyrri ára og standi því ekki jafnfætis þeim þjóðum, sem búa við beztu kjörin. Hvor skoðunin er rétt? Þeir, sem telja lífskjör okkar Islendinga vera í fremstu röð, styðjast við tölur um lands- framleiðslu á mann. Mynd 1 sýnir landsframleiðsluámannárið 1997 íþeim sex löndum auk Islands, sem Seðla- bankinn birtir upplýsingar um í Hag- tölum mánaðarins til að bera ísland saman við önnur lönd. Þama er ísland fyrir ofan meðallag og feti ffamar en til að mynda Danmörk. Landsframleiðslan er mæld með svonefndum kaupmáttar- kvarðatil að lyftaþeim löndum, þar sem verðlag er lágt, og öfugt. Þessi kaup- máttarleiðrétting færði ísland niður eftir listanum fyrr á árum, þegar verðlag var mjög hátt hér heima miðað við mörg önnur lönd, en svo er ekki lengur, því að samkeppni hefur aukizt og verðlag hér heima því færzt nær verðlagi í útlöndum. Alþjóðabankinn hefur aðeins annan hátt á kaupmáttarleiðréttingunni en OECD. Bankinn styðzt við gengis- viðmiðun yfir þriggja ára bil i stað eins árs í senn til að lyfta þeim löndum, þar sem raungengið fer lækkandi, og öfugt. Þetta er gert vegna þess, að of háu gengi fylgir hætta á gengisfalli, sem myndi draga landið niður eftir listanum. Tölur bankans eru lægri en tölur OECD fyrir öll löndin í hópnum; bankinn metur landsffamleiðslu á mann á íslandi árið 1997 til dæmis á 22500 dollara á móti 25449 dollurum samkvæmt tölum OECD. Mestu skiptir þó það, að lands- framleiðsla á mann er ekki góður mælikvarði á lífskjör vegna þess, að þessi kvarði tekur ekki mið af þeirri fyrirhöfn, sem býr á bak við framleiðsluna. Nefnarinn í hlutfallinu er ekki réttur. Landsframleiðsla á vinnu- stund gefur betri mynd af framleiðni vinnunnar, þ.e. afköstum, og þá um leið af lífskjörum. Mynd 2 sýnir landsframleiðslu á vinnu- stund í sömu sjö löndum og áður. Nú hafnar ísland í neðsta sæti, því að við þurfum að hafa meira fyrir framleiðslunni: við höfum hærrahlutfall mannfjöldans í vinnu en allir hinir, og vinnuvikan er að jafnaði lengri á Islandi en víðast hvar annars staðar, þótt hún sé að vísu enn lengri í Bandaríkjunum og Japan eftir þessum tölum. Mynd 3 sýnir lands- framleiðslu á vinnustund árið 1997 í öllum OECD-löndum, þar sem tölur eru til um meðallengd vinnuvikunnar. Myndin sýnir, að ísland er í 16. sæti af 21. Allar þær þjóðir, sem við erum vön að bera okkur saman við, eru fyrir ofan okkur á listanum. Nú eru að vísu ýmsir fletir á þessu myndefni. Sumir gleðjast yfir mikilli vinnu og meta kjör sín eftir árangri vinnunnar án tillits til erfiðisins, sem að baki býr. Það er virðingarvert sjónarmið, ef menn líta svo á, að vinnan sé guðs dýrð. Aðrir efast um ágæti mikils vinnuálags, því að það getur bitnað á ýmsum öðrum lífskjaraþáttum, svo sem barnauppeldi og eðlilegu heimilislífl. Langflestir myndu þó taka því fegins hendi að fá að vinna minna fýrir óskert kaup. Einmitt þess vegna er framleiðsla á vinnustund betri lífskjarakvarði en framleiðsla á mann. Það er kj ami málsins. Þetta er samt ekki allt. Tölur um meðallengd vinnuvikunnar eða um meðalfjölda vinnustunda á hvem vinnandi mann á ári eru ekki til um Mynd 1. Landsframleiðsla á mann 1997 (Bandarikjadollarar á kaupmáttarkvarða) Heimild: OECD. Mynd 2. Landsframleiðsla á vinnustund 1997 (Bandarikjadollarar á kaupmáttarkvarða) 20 30 40 Heimildir: Alþjóöabankinn og OECD. allmörg OECD-lönd, a.m.k. ekki í gagnasafni OECD. Þess vegna vantar Austurriki, Belgíu, Grikkland, írland, Lúxemborg, Pólland, Tyrkland og Ungverjaland á mynd 3. Við þetta bætist það, að tölumar em ekki fyllilega sambærilegarámilli landa, svo aðmyndir 2 og 3 ber því að túlka með varúð. Um Island er það að segja, að ýmsum mun fmnast vinnustundafjöldinn, sem íslenzka súlan hvílir á, vera tortryggilega lítill. Samkvæmt tölum OECD vinnur hver starfsmaður á íslandi 1860 stundir á ári, sem þýðir tæplega 36 stunda vinnuviku að jafnaði á móti 32 stundum í Danmörku til samanburðar. Það er því brýnt, að til dæmis Alþjóðavinnumála- stofhunin í Genf eða OECD í París láta það ekki dragast lengur að safna og dreifa samræmdum og tæmandi tölum um fjölda vinnustunda í aðildar- löndunum. Svo lengi sem slikar tölur eru ekki til, munu menn halda áfram að velkjast í vafa um framleiðni og lífskjör. (Framhald á næstu síðu) 2Þjóðargersemi íslendinga samkvæmt rannsóknum i IMD er fólkið sem landið J byggir. ^ ÞorvaldurGylfasonfiallar I um mælingar á efnahags- 1 stöðu íslands í alþjóða- samhengi. Bjami Bragi Jónsson hagfræðingur fjallar um viðskiptahallann, hvort hann sé veikleika- eða 4velsældannerki en hallinn'' var þrálátt vandamál um áratugaskeið fyrir efna- hagslíf þjóðarinnar. 1

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.