Vísbending - 21.05.1999, Qupperneq 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
21. maí 1999
20. tölublað
17. árgangur
Bankar voru mikið í sviðsljósinu á
síðasta ári. Mikill fjöldi
einstaklinga nýtti sér rétt sinn til
þess að kaupa hlutabréf í Lands-
bankanum, Búnaðarbankanum og
nýjum Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins (FBA). Uppstokkun varð í
Landsbankanum þegar allir þrír banka-
stjórar bankans sögðu upp störfum í
kjölfarið á almennri hneykslan í
tengslum við ferða- og risnukostnað
bankans. í kjölfarið var bankastjóra-
gildum fækkað úr þremur í eitt. Þá hefur
FBA farið mikinn síðan hann varð til,
ijárfest víða í atvinnulífinu með það að
leiðarljósi að koma sem flestum
fyrirtækjum á frjálsan markað.
Einkavæðing
Bankamál
banka úr 3,45 (21.9.1998) i 4,31, sem er
hækkun um 24,9%. í þessu ljósi hefúr
Búnaðarbankinn verið besta fjár-
festingin á þessum timabili.
Fljótlega eftir kosningar lýsti
forsætisráðherra því yfir að ríkið mundi
selja meirihluta sinn í FBA á þessu ári.
í stefnumörkun ríkisstjómarinnar er gert
ráð fyrir því að meira en 25% af hlutafé
Landsbankans verði komið á markað
fyrir 1. júní árið 2000. Að öllunr líkindum
verður leitað lagaheimildar að hausti til
þess að selja hlutafé bæði í Búnaðar- og
Landsbankanum.
Mynd 1. Ardsemi eigin fjár i
bankakerfmu (%)
Aoð
7\.Ba
Margir fögnuðu því að loks var
ákveðið að byrja að selja
ríkisbankana á almennum markaði.
Landsbankinn bauð út hlutafé að nafn-
verði 1.000 milljónir króna í september
og þar með hafa verið seld rétt rúm 15%
af hlut ríkissjóðs í bankanum. Búnaðar-
bankinn bauð út 15% af stofnfé bankans
í lok október að nafnverði 600 milljónir
króna. I lok október voru 49% af
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins boðin
út, að nafnverði 3.332 milljónir króna.
Mikill áhugi var fyrir öllum þessum
útboðum, 10.734 aðilar skráðu sig fyrir
hlut í FBA, 12.200 í Landsbankanum og
tæplega 93 þúsund í Búnaðarbankanum,
sem er rúmlega þriðjungur þjóðarinnar.
Mikil samþjöppun hlutaljár hefur átt sér
stað síðan, 25 stærstu hluthafar FBA
eiga núna 84% hlutafjárs. í Lands-
bankanum hefur hluthöfum fækkað um
rúmlega 5000 hluthafa og hluthöfum í
Búnaðarbankanum hefur fækkað um 60
þúsund á sama tímabili.
Upphaflegt gengi hlutabréfa í
Landsbankanum var 1,9 en er í dag 2,37,
sem er hækkun um 34,7% (sjá mynd 4).
Gengi Búnaðarbankans var upphaflega
2,15 en er í dag 3,42, sem er 59,1%
hækkun. Hlutabréf í FBA voru boðin út
á genginu 1,83 en gengið er um þessar
mundir 2,50, sem er hækkun um 36,6%.
Á sama tíma hækkaði gengi í Islands-
Markaðskröfur
rðsemiskrafan í Evrópu og
3andaríkjunum í bankakerfinu er á
bilinu 15 - 20% sem er í takt við auknar
kröfur markaðarins. Á níunda ára-
tugnum var arðsemi eigin fjár banka-
stofnana í kringum 10% og mest af
þessum áratug hefúr arðsemin verið í
kringum 14%. Hér á landi er það
einungis íslandsbanki sem stendur
undir arðsemiskröfum markaðarins.
Kröfur samtímans um rekstur
fyrirtækja hafa gert það að verkum að
bankar verða að taka til í rekstrinum,
minnka útgjöld og auka tekjumar, þ.e.
að bankar verði reknir eins og fyrirtæki
en ekki stofnanir. Það sem hefur gerst
er aðallega tvennt, annars vegar hafa
bankar útvíkkað starfsemi sína, orðið
m.a. verðbréfamiðlarar, fjárfestingar-
bankar og tryggingafélög, og hins vegar
farið að lána verri viðskiptavinum en
áður, þ.e. kröfur um
lánshæfi hafa
minnkað.
Utlán banka og
sparisjóða á íslandi
voru samtals 327
milljarðar króna í
árslok 1998 ogjukust
um 31 % á árinu. Það
er eðlilegt að útlána-
aukning aukist
þegar hagvöxtur er
mikill og vextir era
lágir og það er
eðlilegt að bankar
Mynd 2. Vaxíamunur af meðalstöðu
heildarfjúrmagns (%)
Mynd 3. Hagnaður viðskiptahankanna
og sparisj. 1995 — 1995 (milljónir)
1
Gerður er samanburður á
viðskiptabönkunum og
fjallað um nokkur banka-
mál. Miklar breytingar
2
voru í bankakerfinu á
síðasta ári. Líklegt er þó að
framtíðin felií sérenn meiri
breytingar fyrir það.
3
Kosningaúslitin líta
öðruvísi út ef þau eru
skoðuð með hliðsjón af
þriggja ílokka kerfi.
4
Ragnar Þ. Guðgeirsson
löggiltur endurskoðandi
fjallar um breyttar kröftir
innri endurskoðunar.