Vísbending


Vísbending - 25.06.1999, Síða 1

Vísbending - 25.06.1999, Síða 1
V V i k u ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 25. júní 1999 25. tölublað 17. árgangur 1929 og 1999 Eitt af því sem er svo skemmtilegt við tilveruna er að um leið og hún breytist þá endurtekur hún sjálfa sig reglulega. Jafnvel óreiða náttúrunnar er talin vera byggð á endurtekningum um leið og hendingum. Verðbréfahrunið 1929 að eru ekki margir sem muna þann tíma þegar bandaríski verðbréfa- markaðurinn hrundi árið 1929 eftir ótrúlegt vaxtarskeið allan áratuginn. Margir efnamenn urðu öreigar á örskotsstundu og var ástandið svo slæmt um tíma að starfsmenn á hóteli í grennd við Wall Street spurðu gestina við komu hvort þeir væru komnir til þess að sofa eða stökkva út um glugga. I kjölfarið á hruninu varð mesta kreppa sem orðið hefur í bandarísku þjóðfélagi. Verðbréfahrunið er þó ekki ástæða kreppunnar að mati sérffæðinga en hafði veruleg áhrif á þá atburðarás sem leiddi til hennar. Endalaus hamingj a Virtur bandarískur hagffæðingur að nafni Irving Fisher sagði árið 1929 að verð á hlutabréfum hefði náð því stigi að það myndi ekki lækka heldur haldast hátt. Einungis fáeinum vikum síðar fél 1 Dow Jones vísitalan um rúmlega þriðjung. Fisher hafði gjörsamlega á röngu að standa eins og reyndar margir aðrir samtíðarmenn hans enda trúðu þeir að í Ameríku væru menn að upplifa ný efnahagslögmál og nýtt tímabil óendanlegs hagvaxtarskeiðs, nýjan efnahagsveruleika. Nýr efnahagsveruleiki essi nýi veruleiki efnahagslífsins fólst í því að með tilkomu seðlabanka Bandaríkjanna árið 1913 var búið að eyða hagsveiflum í bandaríska hagkerfmu. Sveiflur fyrri tíma hafði mátt rekja til þess að það vantaði seðlabanka til þess að veita bankageiranum fjármagn á tímum óstöðugleika. Geta seðlabankans til að stjóma vaxtastigi og að veita fé til bankanna með kaupum og sölu á ríkisskuldabréfum átti að tryggja stöðugleika á markaðnum. Fleira skapaði nýjan efnahags- veruleika, þar á meðal aukið frelsi í viðskiptum, minnkandi verðbólga og vísindalegar stjómunaraðferðir „taylor- ismans“ (og „fordismans"). Verka- skipting og færibandavinna vom ávísun á aukna skilvirkni. Fyrirtæki sameinuðust einnig og það jók hagkvæmni þeirra í krafti stærðar- hagkvæmninnar. Eðlilegt var að álykta að öll þessi framleiðni- og hagkvæmniaukning, stöðugt og bætt viðskiptaumhverfi og almenn bjartsýni ætti að endurspeglast í verðmæti fyrirtækja, þ.e. gengi hlutabréfa. Eytt um efni ffam ótt nýi efnahagsveruleikinn bæri stöðugt meiri og betri kræsingar á borð á fyrsta farrými þjóðarskútunnar voru áfram sömu molamir brauð verkamannsins. Aukin skilvirkni skilaði sér ekki í launaumslag starfsmanna. Engu að síður jókst kaupgeta þeirra vegna þess að ffamboð af fjármagni var stórlega aukið. Lítið mál var að fjármagna aukin útgjöld með auknum lántökum; bilar, ísskápar, húsgögn og föt, allt var keypt í reilóiing. Allt átti að ljármagna með tekjum sem viðkomandi myndi fá í framtíðinni. Spákaupmennimir Arið 1929 hafði ótrúlegur fjöldi einstaklinga tekið þátt í viðskiptum á verðbréfamarkaðinum. Allir vom með, enda var hálf-bjánalegt að standa fyrir utan þegar allir sem tóku þátt í verðbréfaviðskiptum græddu á tá og fingri, enda sögðu sérfræðingar að fjárfesting í verðbréfum skilaði langmestri ávöxtun allra fjárfestingar- möguleika. Hvort sem það var Hollywood-elítan, viðskiptajöfrar eða þvottakonan á hominu þá vora allir með, allir voru sérfræðingar. Allir sem höfðu áhuga á að auðgast voru tilbúnir að hætta öllu því sem þeir áttu eða gætu komist höndum yfir. Það þurfti engan fjármálaráðgjafa. „Þú gast lokað augunum, bent fmgrinum hvert sem var á stóra töfluna og hlutabréfið sem þú keyptir byrjaði að hækka,“ sagði Grucho Marx. Þó verð fyrirtækja væri of hátt skv. hefðbundnum virðismælikvarða á fyrirtækjum skipti það engu máli því það átti að meta fyrirtæki út frá væntanlegum framtíðartekjum. S vartur fimmtudagur ann 24. október 1929, sem kallaður er svartur fimmtudagur í hagsögunni, hrundi hlutabréfaverð fyrst um 15 - 20% en bankar komu markaðinum til aðstoðar og lækkun undir lok dagsins var því ekki veraleg. Umsvifm á markaðinum höfðu þó verið þreföld á við venjulegan dag. Spákaupmenn gátu slakað á yfir helgina en mánudaginn eftir lækkaði Dow Jones vísitalan um 12,8%, úr 299 í 260, á þriðjudeginum (svarta þriðjudeginum) lækkaði hún um 11,5%, úr 260 í 230. Vísitalan var komin niður í 198þann 13. nóvember. Næstu daga hækkaði þó vísitalan aftur um 25% og menn tóku að trúa á markaðinn aftur. Hann var þó ekki traustsins verður og Dow Jones vísitalan seig niður í þar til hún hafði náð botninum um mitt sumar 1932. Þá stóð hún í 41,88 og hafði lækkað um 90% frá 3. september 1929 þegar hún stóð hæst í 381. Spilað á markaðinn Ikjölfarið á hruninu 1929 komu upp nokkur hneykslismál. Starfsmenn iðnaðarbankans í Flint í Michigan höfðu lagt fjármagn bankans undir í veróbréfaviðskiptum og tapað um 3,5 milljónum Bandaríkjadollara, sem leiddi til lokunar bankans. Sögur af innherjaviðskiptum og ívilnunum til þeirra sem voru innan fyrirtækjanna, sögur um að ekki hafi alltaf verið veittar upplýsingar til markaðarins af hreinskilni og jafnvel að sumir hafi nýtt sér brjálæði markaðarins og búið til (Framhald á síðu 4) Margt er líkt með þriðja ^ íslensk menning er lík Ásgeir Jónsson hag- a samkeppnisfær og hvað'' I áratugnum og tíunda ) menningu Norðurlanda- 7 fræðingur fjallar um /| má gera til þess að áratugnum hvað varðar ^ kjamans en er þó að vissu landbúnaðinn og veltir betrambæta hann í hlutabréfamarkaðinn. leyti einstök. fyrir sérhversu vel hann er framtíðinni. 1

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.