Vísbending


Vísbending - 06.08.1999, Page 1

Vísbending - 06.08.1999, Page 1
V V i k u ISBENDING rit um viðskipti og efnahagsmál 6. ágúst 1999 31. tölublað 17. árgangur Um laun og græðgi Mikil umræða heftir verið um laun í þjóðfélaginu síðustu tvær vikur á meðan blöð og tímarit rýna í launatekjur nokkurra valinkunnra andlita. Slík hnýsni getur þó verið hinn ágætasti umræðugrundvöllur um laun forstjóra stórfyrirtækja almennt. Forstjóralaun Forstjóri Eimskips hefur mestallan þennan áratug verið launhæstur íslenskra forstjóra. Nafnlaunahækkun hans, m.v. kannanir tímaritsins Frjálsrar verslunar, á milli áranna 1989 og 1998 er 186%. A síðasta ári voru laun hans 2,3 milljónirkrónaámánuði eða27,7 milljónir á ársgrundvelli. Þessar launatekjur eru þó allar launatekjur einstaklings en ekki fyrir einstakt forstjórastarf, þó að í eftirfarandi útreikningum sé gertráð fyrir að aðrar launatekjur tengist viðeigandi forstjórastarfi. Isjálfu sér ernokkuð erfitt að meta raunlaun forstjóra þar sem þau eru i raun þríþætt, þ.e. laun, hlunnindi og afkastahvetjandi laun sem þurfa ekki að koma fram nema á nokkurra ára fresti. Á meðfylgjandi mynd (mynd 1), sem sýnir launatekjur fjögurra forstjóra, má sjá að laun þessara forstjóra fylgjast nokkuð að, jafnstígandi. Einnig má sjá að laun forstjóra Eimskips og Skeljungs, Tajla 1. Árstekjur 20 forstjóra (i þúsuiulum króita) Myiul 1. Lauit forstjóra fjögttrra ísleitskra stórfyrirtœkja á verðlagi hvers árs (í þúsunduiii króita) ■Eimskip Skeljungur SH ■ Flugleiðir Nafn og fyrirtœkl 1998 Hðrður Sígurgestsson, forstj. Eimskips 27.648 Kristinn Björnsson, forstj. Skeljungs 19.768 Geir Magnússon, forstj. ESSO 18.748 Axel Gíslason, forstj. VÍS 16.721 Bogi Pálsson, forstj. P. Samúels. (Toyota) 16.476 Haraldur Gíslason, frkvstj. í Vestmannaeyjum 16.008 Sindri Sindrason, frkvstj. Pharmaco 15.777 Siguröur Helgason, forstj. Flugleiöa 13.968 Magnús Gauti Gautason, frkvstj. Snœfells 13.682 Ólafur Ólafsson, forstj. Samskipa 13.312 Óskar Magnússon, stjform. Baugs 13.272 Brynjólfur Bjarnason, frkvstj. Granda 13.204 Þórólfur Árnason, forstj. Tals 13.175 Gunnar Örn Kristjánsson, forstj. SÍF 13.025 Kristján Richter, forstj. K. Richter 12.996 Sigfús Sigfússon, forstj. Heklu 12.950 Lilja HrÖnn Hauksdóttir, eigandi Cosmo 12.895 Sverrir Sigfússon, frkvstj. hjá Heklu 12.525 Vilhjálmur Fenger, forstj. Nathan & Olsen 12.444 Einar Benediktsson, forstj. OLÍS 12.357 Meðaltekjur 20 tekjuhæstu forstjóra 15.047 sem hefur yfirleitt verið næsthæstur eða með hæstu mönnum, hafa farið mjög hratt stígandi á síðustu þremur árum. Tvær óvenjulegar sveiflur má sjá í línuritinu, annars vegar tekjustökk forstjóra Eimskips á milli áranna 1995 og 1996 og hins vegar dýfu sem forstjóri Skeljungs tekjur á milli áranna 1989 og 1990 sem er hægt að útskýra með að forstjóraskipti urðu í Skeljungi á þessum tíma, Kristinn Björnsson tók við af Indriða Pálssyni. Ánnars fylgir meðaltal þessara fjögurra forstjóra launum forstjóra Skeljungs. Þegar meðaltal þessara fjögurra forstjóra er borið saman við launa- vísitölu kemur i ljós að nafnlauna- hækkanirþeirra eru í fullkomnu samræmi við launavísitölu (sjá mynd 2). Láglaunaforstj órar Þegar erlendir forstjórar eru bornir saman við íslenska forstjóra kemur í ljós að kalla mætti íslenska forstjóra láglaunaforstjóra. Meðaltekjur tuttugu launahæstu forstjóra íslenskra fyrirtækja (forstjórar fjármálafyrirtækja eru ekki á þessum lista) fyrirárið 1998 eru réttrúmar 15 milljónir króna (sjátöflu 1). I könnun á launum forstjóra hjá fyrirtækjum í Evrópu má sjá að meðaltalið á Spáni, sem er lægst af uppgefnum löndum, er vel yfírtuttugu milljónirkróna. Ástæðan er að vissu leyti að íslensk fyrirtæki eru yfirleitt minni en þau sem eru í könnuninni en það eru fyrirtæki með veltu sem erábilinu 16,5 til 34,5 milljarða króna. Eimskip var með 16,5 milljarða veltu á síðasta ári sem gerir forstjóra Eimskips samanburðarhæfan. Árstekjur hans myndu setja hann einhvers staðar á milli meðaltalsins í Þýskalandi og Svíþjóð en langt undir meðaltajinu í Hollandi, Sviss, Belgíu, Italíu, Frakklandi og Bretlandi. í Bretlandi, þar sem meðaltalið er hæst í Evrópu, er það vel yfír 45 milljónum á ársgrundvelli, nálægt því að vera tvöfalt hærra en forstjóri Eimskips getur státað af. Bandarískir forstjórar Það er merkilegt að jafnvel þó að í Bretlandi séu greidd hæstu forstjóralaun í Evrópu eru þau langt undir því sem gerist í Bandaríkjunum, allt að helmingi lægri. Bandarískum forstjórum eru meira að segja greidd 30% hærri laun í Bretlandi en breskum forstjórum. Allir tuttugu hæst launuðu forstjórar í heimi starfa fyrir bandarísk fyrirtæki. Á síðasta ári var Michael Eisner, forstjóri Walt Disney, efstur á lista með tekjur upp á rúmlega 400 milljónir eða tekjur sem inyndu nægja til þess að gera 15 Eimskipsforstjóra tiltölulega ánægða. Þetta er þó bara lítill hluti launa hans því að það sem gerir hann að launahæsta forstjóra heims er (Framhald á siðu 3.) 1 Stjómendur íslenskra fyrirtækja eru ekki á háum launum ef miðað er við forstjóra erlendis. 2 Þekkingarstjómun er nýtt hugtak í viðskipta- fræðunum sem náð hefur verulegum vinsældum. 3 Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor svarargrein Halldórs Jóns- sonar sem var gagnrýni á 4 grein Hannesar sem birtist í 26. tbl. Vísbendingar og fjallaði um sátt um fyrir- komulag fískveiða. I

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.