Vísbending - 01.11.2002, Page 1
V
V i k u
ISBENDING
rit um viðskipti og efnahagsmál
1. nóvember 2002
44. tölublað
20. árgangur
Umsnúningur í útflutningi
Inýlegri skýrslu Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar kemur fram að
alþjóðavöruútflutningur í heiminum
dróst verulega saman á síðasta ári, eða
um 4,3% að verðmæti (í Bandaríkja-
dollurum). Þetta eru veruleg umskipti
frá árinu 2000 þegar alþjóðavöruútflutn-
ingurinn jókst um 12,7%fráárinu 1999.
Það er líka fátt sem bendir til þess að
útflutningur muni taka mikið við sér á
þessu ári.
Alþjóðlegur útflutningur
Heildarvirði alþjóðavöruúlflutnings
árið 2001 var um 6.155 ntilljarðar
Bandaríkjadala en var 6.430 milljarðar
árið 2000. Samdráttur í magni er þó minni
eða um 1,5%. I upphafi ársins 2001 var
því spáð að vöruútflutningurinn myndi
aukast um 7% og á seinni hluta ársins
var því spáð að aukningin yrði um 1%
en m.a. vegna eftirskjálfta hryðjuverk-
anna þann 11. september á síðasta ári
dró mun hraðar en ætlað hafði verið úr
verðmætum vöruútflutnings, eða um
4,3% (sjá43. tbl. 2001). Vöruútflutningur
er um 80,6% af alþjóðaviðskiptum,
þjónustuútflutningur er því um 19,6%
af alþjóðaviðskiptum. Heildarvirði
alþjóðaþjónustuútflutnings var um
1.460 milljarðar Bandaríkj adala á síðasta
ári og dróst saman um 0,5% en þjónustu-
viðskiptin jukust um6% frá 1999 til 2000.
Það leikur því enginn vafi á að verulega
hefur dregið úr umsvifum í heimshag-
kerfinu. Verg heimsframleiðsla á síðasta
ári jókst engu að síður urn 1,5% en það
er athyglivert að heimsframleiðslan,
þegar þjónusta og byggingarfram-
kvæmdir eru undanskildar, dróst saman
um 1%. Þessi heimsniðursveifla hefur
því ekki einungis komið fram í verðmati
á hlutabréfamörkuðum eins og sumir
virðast halda fram.
Samdráttur vöruútflutnings var mis-
munandi eftir heimssvæðum, þannig var
samdrátturinn um 15,8% í Japan og um
9,2% í Asru allri, 9,4% í Mið-Austur-
löndum og 3,4% í Rómönsku-Ameríku.
Samdráttur vöruútflutnings frá Norður-
Ameríku nam um 6,3% á sama tíma og
hann var 0,9% í Evrópusambandslönd-
unurn. Þó að samdrátturinn hafi verið
mismikill eftir heimssvæðum var hann
næsta alþjóðlegur, undantekningarnar
voru Mið- og Austur-Evrópulönd sem
juku útflutning sinn um 11,5%, og Kína,
sem jók hann um 6,8% á síðasta ári.
Mynd 1. Vöruútflutningur eftir
heimssvœðum
0 600 1200 1800 2400 3000
(í milljörðum Bandaríkjadala)
Mynd 2. Þróun vöruútflutnings á
Islandi og í heiminum, 1991-2001
Mynd 3. Þróun þjónustuútflutnings
á Islandi og í heiminum, 1991-2001
Þegar fyrri hluti þessa árs er skoð-
aður er fátt sem bendir til að mikill
umsnúningurverði áþessu ári. Verðmæti
alþjóðavöruviðskipta dróst saman um
4% á fyrri hluta ársins í samanburði við
sama tíma árið 2001. Þó mátti merkja að
vöruútflutningurinn væri eilítið að rétta
úr kútnum á öðrum ársfjórðungi sem
hefur gefið spámönnum Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar hugrekki til að spá
því að umfang alþjóðavöruviðskipta
muni aukast um 1 % á þessu ári og enn
þá meira að verðmæti, að því gefnu að
OECD-ríkin muni eitthvað hressast á
seinni hluta ársins. Það verður þó að
teljast töluverð bjartsýni.
Islenskur útflutningur
Það er athyglivert að skoða útflutning
íslendinga í samanburði við alþjóð-
legan útflutning. Vöruútflutningur Is-
lendinga, reiknaður í Bandaríkjadollur-
um, jókst um 3,6% á síðasta ári og þjón-
ustuútflutningurinn jókst um 4% en
samdráttur varð í alþjóðavöru- og þjón-
ustuútflutningi eins og áður sagði. Þó
skyggir nokkuð á þessa mynd þegar
horft er yfir lengra tímabil en þá kemur
fram að á sama tíma og alþjóðavöruút-
flutningurinn jókst um 75% frá 1991 til
2001 jókst vöruútflutningur Islendinga
um 28%. Þessi mismunur skapast af lítilli
aukningu vöruútflutnings frá íslandi á
fyrri hluta tíunda áratugarins, frá 1997
hefur íslenskur vöruútflutningur hins
vegar aukist um 7,5% og haldið í við
alþjóðavöruútflutninginn sem hefur
aukist um 10,4%. Þjónustuútflutningur
frá Islandi hefur hins vegar aukist mun
hraðar en alþjóðaþjónustuútflutning-
urinneðaum 117%frá 1991 ísamanburði
við 77%. Aukningin umfrarn alþjóða-
jrjónustuútflutning hefur nær öll orðið
á síðustu fimm árum en frá 1997 hefur
íslenskur þjónustuútflutningur aukist
um 35% á meðan aukningin hefur verið
urn 10% íheiminum. En þjónustuútflutn-
ingur skapar nú um þriðjung gjaldeyris-
tekna Islendinga. Það má því segja að
íslensk útflutningsviðskipti hafi verið
að taka við sér á síðustu misserum.
Heimild: A Iþjóðaviðskiptastofmmin.
1
Alþjóðaviðskipti dróg-
ust verulega saman á
síðasta ári sem eru mikil
umskipti l'rá árinu 2000.
2
Neytendur virðast eitt-
hvað þunglyndir ef marka
má væntingavísitölur
Bandaríkjunum.
;,3
Bjami Bragi Jónsson fjallar
um auðæfi hafsins í þriðju
og síðustu grein sinni um
auðæfi Islands. Hann bend-
4
ir m.a. á að nýta verði mark-
aðs- og verðkerfið til að
úthluta réttindum og jafna
skilyrði atvinnugreina.
1