Vísbending


Vísbending - 23.06.2006, Síða 2

Vísbending - 23.06.2006, Síða 2
ISBENDING Vaxandi umsvif banka og sparisjóða Jón Sigurðsson hagfræðingur Breytingar á starfsemi banka og sparisjóða á íslandi síðastliðinn hálfan annan áratug eru glöggt dæmi um það að fjármálaþjónusta er ekki lengur bundin innan landamæra þjóðríkja. Við blasir nýtt umhverfi ijöl- þjóðlegra fjármálafyrirtækja sem starfa í mörgum löndum og á mörgum sviðum fjármálaþjónustu í senn. Aðild Islands að Evrópska efnahags- svæðinu, EES, fól í sér fjórfrelsið svo- kallaða - frelsi í vöru-, þjónustu- og fjár- magnsviðskiptum og frjálsa för fólks til starfa - sem leiðarljós um allt Evrópska efnahagssvæðið samkvæmt samningi við Evrópusambandið. Efling íslensku bankanna á síðustu árum sýnir glöggt hversu erfitt er að sjá fyrirafleiðingamarafþví að frelsi erveitt til fjármagnshreyfmga. Eitt er þó víst í þessum efnum og það er að með frelsinu fær framtakssemi og framkvæmdaþróttur að njóta sín sem viðskiptahöft og gjald- eyrishömlur drápu áður í dróma. Breytingar í bankakerfinu í upphafi tíunda áratugarins var gripið til margvíslegra aðgerða til þess að draga úr rekstrarkostnaði banka og sparisjóða. Starfsfólki fækkaði fram til 1995 en þá virðist þessu hagræðingartímabili hafa lokið. Fjöldi afgreiðslustaða í bankakerf- inu hefur því sem næst staðið í stað, ver- ið í kringum 180, síðastliðin tuttugu ár. Starfsmönnum hefur hins vegar fjölgað jafnt og þétt frá árinu 1996 og voru orðnir 3800 árið 2004. Það er athyglisvert að bera þessa þróun saman við það sem gerst hefur í þessum efnum annars staðar á Norðurlöndum. Afgreiðslustöðum banka og sparisjóða í þessum löndum hefur fækkað um næst- um helming á þessum árum. Þá hefur starfsfólki banka og sparisjóða í þessum löndum fækkað um 30% á þessu árabili. Þessi þróun á Norðurlöndum er oft skýrð með tilkomu tölvuvæðingar í bankavið- skiptum. Þessi skýring virðist þó ekki eiga við á I slandi, þessu tölvuvædda landi þar sem fleiri einkatölvur eru á hvert mannsbam en í flestum öðrum löndum. I þessum tölum felst einnig að hver af- greiðslustaður og bankastarfsmaður hér á landi sinnirhelmingi færri íbúum en gerist annars staðar á Norðurlöndum. Hlutur fjármálaþjónustu í atvinnu og tekjum á Islandi hefúr aukist síðustu fimmtán árin. Hvað atvinnu varðar er þessi aukning þó lítil en hlutdeild fjár- málaþjónustu í tekjum þjóðarinnar hefur hins vegar tvöfaldast og er nú álíka stór eða stærri en hlutur sjávarútvegsins, tæp- lega 8%. Efnahagur banka og sparisjóða Efnahagsreikningur íslenska bankakerfis- ins hefur vaxið með risaskrefum á síðustu árum. Þrennt fer saman: kaup á erlend- um lánastofnunum og vaxandi umsvif erlendis og mikil útlánaaukning innan- lands. I lok árs 2005 námu heildareignir bankakerfisins 5800 milljörðum króna, sem er næstum sexföld landsframleiðsl- an. Til samanburðar voru heildareignir bankannatæplega 60% af landsframleiðsl- unni árið 1990. Það er engin furða að svona ör vöxtur - heildareignir bankakerfisins næstum tvöfölduðust árlega tvö ár í röð, 2004 og 2005 - veki spumingar um það hversu öruggar þæreignirsemsvo hratt hafa safnast séu. Sem betur fer þola reikning- ar íslenska bankakerf- isins og áhættan sem í þeim felst nákvæma skoðun. Eiginfjárhlutföll og lausafjárstaða em í góðu lagi og lán í van- skilum minni en þau hafa verið um margra ára skeið. Ahættustýr- ing í íslenskum lána- stofnunum hefur tekið miklum framförum og stóru bankamir búa sig nú af kappi und- ir það að fylgja ýtrustu kröfum nýrra alþjóðareglna um eigið fé sem búist er við að gangi í gildi á næsta ári. Avöxtun eigin fjár í bankakerfinu var með allra besta móti árið 2005 og er áætluð um 28-29% á árinu 2006. Þess- ar afar hagstæðu afkomutölur skýrast að nokkru leyti af tilfallandi gengis- og eignaverðsbreytingum þannig að und- irliggjandi ávöxtun er nokkru lægri en þessar tölur sýna en þó vel viðunandi. Uppgjör bankanna fyrir fyrsta fjórðung ársins 2006 sýnir framhald á afar góðri afkomu og sterkum efnahag. Fjármálaeftirlitið gerirreglulega álags- prófanir á efnahagsreikningum íslensku bankanna. I þeim eru metin áhrifin af því að hlutabréf og markaðsskuldabréf í eigu bankanna lækki vemlega í verði. Enn fremur em tekin dæmi af rýmun verð- mætis vaxtafrystra lána og fúllnustueigna á bókum bankanna. Með líkum hætti eru reiknuð áhrif umtalsverðra breytinga á gengi erlendra gjaldmiðla og vöxtum á erlendum lána- markaði. Niðurstöðurnar úr þessum álagsprófunum sýna að eiginfjárstaða íslenskra banka þolir vemlegar sveiflur í ytri skilyrðum. Erlendar lántökur bankanna til þess að fjármagna erlend eignakaup og um- svif og til endurlána innanlands, m.a. til húnæðis- og neyslulána, hafa verið miklar síðustu ár. Þessi þróun og sú staðreynd að raungengi krónunnar um síðastliðin ára- mót var afar hátt og eignaverð með allra hæsta móti gáfu vissulega tilefni til þess að hægja á ferðinni og fara að öllu með gát þótt íslenskar lánastofnanir séu yfir- leitt vel varðar fyrir breytingum á gengi krónunnar og alþjóðlegum vaxtabreyt- ingum. Helsta áhyggjuefnibankannaum þessar mundir er að almennar breytingar á alþjóðalánamarkaði, bæði hvað varðar vaxtakjör og aðgang að lánsfé, geti orðið þeim - og öðrum lántakendum - óhagstæð- ar á næstu misserum. Vextir hafa nú um árabil verið lágir á alþjóðalánamarkaði og eignaverð hátt. Hækkun vaxta í heim- inum og lækkun verðs á fasteignum og verðbréfúm gæm veitt bönkunum þungar búsifjar ef þetta gerist snöggt og viðbún- aður þeirra er ónógur. I þessu sambandi er ástæða til þess að vekja athygli á því að reikningar banka- kerfisins sýna að hrein erlend skuldastaða þess í hlutfalli við heildareignir hefur farið ört lækkandi frá árinu 2000 þegar ís- lensku móðurfélögin fóru fyrir alvöru að bæta erlendum starfsstöðvum við rekstur sinn. Hreinar erlendar skuldir í hlutfalli Myrul I: íbiuifjöUli á hvern ajf>reiáslwitaá bankanna árin 1986-2004 A myndinni sést aó annars staóar á Norðurlöndum eru munfleiri íhúar á hvern af afgreiðslustöðum bankanna en á Islandi. 2

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.