Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1939, Side 2

Frjáls verslun - 01.03.1939, Side 2
Gjaldeyrisástandið og álit landsins út á við 'pMestum mun nú orðið fullkomið áhyggjuefni hvernig ástandið er orðið í gjaldeyrismálun- um. Síðustu 3-4 mán. hafa innflytjendur fengið að greiða lítið annað en það, sem flutt er inn frá „clearing“ löndunum, Þýzkalandi og Italíu. Víxlar og kröfur fyrir matvörur, sem komið hafa síðustu mánuðina, hefir annað hvort verið endursent eða þessi plögg liggja í bönkunum og ekki fæst að greiða þau. Undanfarið mun hafa verið leitast við eftir megni að sjá um, að inn- flytjendur kæmist ekki í vanskil með hinar nauðsynlegustu matvörur, svo sem kornvörur, kaffi og sykur. En nú er svo komið, að margir stærri innflytjendur fá þessar vörur ekki send- ar hingað, nema áfallnar kröfur verði leystar fyrst. Hlýtur því að reka að því, áður en langt um líður, að innflutningur matvöru þverrar og gengur til þurðar, ef ekki verður gagnger breyt- ing á gjaldeyris- og innflutningsmálum vorum. Erlendar þjóðir vita hvað er að gerast hér. Það er varla ofsögum sagt, að ríkisstjórnir og útflytjendur annarra landa fylgjast betur með því hvað er að gerast hér í gjaldeyrismál- unum en almenningur hér á landi. Fulltrúar er- lendra ríkja hér senda skýrslur sínar til ríkis- stjórna sinna og skýra frá öllu því, er skiptir máli fyrir útflutningsverzlun þessara landa. — Allir skilja, að það er ekki smáræðis atriði fyr- ir þær þjóðir, sem hingað selja vörur, hvort vörurnar eru greiddar á réttum gjalddaga, eða hvort hætta er á, að andvirðið „frjósi“ hér inni. Af vanþekkingu skilja menn ekki hér á landi hversu nákvæmlega hinar stærri þjóðir fylgjast með öllu er skiptir viðskiptahagsmuni þeirra, jafnvel á hinum minnstu mörkuðum. Þessi lönd vaka yfir hagsmunum kaupsýslumanna sinna og veita einstaklingunum alla þá aðstoð sem hægt er. Skýrslur ræðismannanna, þær, er héðan koma, eru síðan sendar út af ríkisstjórnum hvers lands til innflytjenda, sem skipti hafa við ísland, svo að þeir geti fylgzt með ástandinu, og hagað sér eftir því. Öðru hverju hafa innflytjendum hér borizt bréf frá viðskiptavinum sínum erlendis, þar sem þeir skýra frá upplýsingum, sem þeir hafa fengið frá sínum eigin stjórnarvöldum um gjald- eyrisástandið hér á landi. Þessar upplýsingar hafa gengið í þá átt, að beina athygli manna að því, að gjaldeyrisleyfunum hér sé ekki treyst- andi, og það komi nú oft fyrir, að gjaldeyri skorti á gjalddaga. Að vísu sé slíkum greiðslu- leyfum framlengt, en það sé engin frekari trygg- ing fyrir greiðslunni þegar víxillinn falli í næsta skipti. Þegar svo sé farið að framlengja víxl- unum hvað eftir annað, sé hætta á, að eitthvað af fjárhæðinni frjósi inni. Oft eru kröfurnar (víxlarnir) endursendar, án þess að um nokkra framlengingu sé að ræða. — Þessar upplýsingar eru venjulega gefnar í hlutlausum tón, án þess að beint sé verið að vara firmun við að verzla hér, en þeim er ætlað sjálfum að taka ákvörðun sína um það, hvort þau vilja halda áfram við- skiptunum þegar þau hafa fengið að vita hvern- ig ástandið er hér. í skýrslunum er sagt rétt og hlutlaust frá, og verður ekki séð, að um neinar ýkjur sé að ræða. Hér er verið að gæta hagsmuna erlendra manna með því að skýra frá því, hvernig ástandið er hér í gjaldeyrismálunum. En þess er ekki að dyljast, að slíkar upplýsingar geta aðeins vald- 2 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.